Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Side 48

Vinnan - 01.12.1976, Side 48
Bjöm Jónsson t.h. og Snorri Jónsson, forseti og varaforseti ASÍ að loknu kjöri á 32. þingi ASÍ. um kost á að sitjá, og gerir það alla virka þátttöku í alþjóðasamtökum mjög dýra. Hins vegar höfum við reynt eftir föngum að verá virkir í Norðurlandasamstarfinu, en Norræna verkalýðssambandið er ungt að árum, aðeins þriggja ára. Til þess að þátttaka okkar komi að fullum notum þarf að þýða og koma í ís- lenskan búning því sem frá sambandinu kemur og dreifa út í hreyfingtma. Það hef- ur valdið okkur erfiðleikum vegna mann- aflaskorts. En virkir höfum við verið að því leyti, að við sækjum fundi i sam- bandinu og eigum menn i sémefndum þar og tökum þátt í þeim ákvörðunum sem teknar eru. Vinnán: Teljið þið aö þetta hafi mikið gildi? Snorri: Já, ég tel það. Það er líka nauö- synlegt fyrir Norðurlöndin í heild að marka sameiginlega afstöðu á alþjóðavett- vangi. Þeir voru hér fyrir nokkru síðah formaður og varaformaður Norræna verka- lýðssambandsins og lögðu sérstaka áherslu á þetta atriði. Það kom fram hjá þeim, að saman væru Norðurlöndin mikið afl í alþjóðlegu stárfi verkalýðssamtakanna. Ólafur: Svo er það áreiðanlega þýðing- armikið fyrir okkur, og hefur jafnvel beint efnahagslegt gildi, að við getum haft þessi alþjóðasamtök að bakhjarli í átökum, sem við kunnum að eiga í hér heima . Vinnan: Áttu við beinar peningagreiðsl- ur í verkföllum? Ólafur: Já, ég á við fjárhagslegan stuðn- ing og það að geta leitað til annarra samtaka um stöðvun vinnu í krafti þessa samstarfs, þegar verið er t.d. að brjótast í gegn með samgöngutæki erlendis, flugvélar eða skip. Ásmundur: Það skiptir okkur töluvert miklu máli að hafa opinn glugga út á við og fylgjast með því hvað þar er að ger- ast. Ég held að það sé ákaflega nauðsyn- legt, ef vera á frjósamt starf héma, að einhver aðstaða sé til þess að fylgjast með því hvað erlendis er að gerast. Vinnan: Ásmundur, hvert er þitt stárf á skrifstofunni? Ásmundur: Það er dálítið erfitt að gera grein fyrir verksviði mínu, ef mið er tek- ið af þeim tíma sem ég hef starfað hér, vegna þess hve kjarasamningar hafa verið stuttir og í rauninni eilíft samningaþóf allan tímann. Þetta ástand hefur tengt starfið algerlega þessum samningum enn sem komið er. Það hefur beinst að því að afla gagna og meta þær upplýsingar og gögn sem lögð eru á borð samninganefnd- ánna. Þótt hjá Alþýðusambandinu starfi hag- fræðingur breytir það ákaflega litlu varö- andi sjálfa samningagerðiná. Samningarn- ir verða alltaf pólitískt mat þeirra félags- kjörinna fulltrúa sem þá gerá hverju sinni. Hlutverk hagfræðingsins er að gefa þeim grundvöll til þess að haga ákvarðanatöku þannig að sjá megi að einhverju leyti fyrir hvaða áhrif samningamir muni hafa á ýmsa aðra hiuti. Ég held að það hljóti að vera mikilvægt fyrir samningamennina. En ég tel ennfremur æskilegt, að hag- fræðingur Alþýðusambandsins hafi tölu- verðu hlutverki að gegna varðandi undir- búningsvinnu við stefnumörkun með undir- búningsvinnu við stefnumótim, með gagna- söfnun og útreikningum, ef tími skapast milli samninga. Það gæti verið góður bak- hjarl fyrir forystumennina til pólitisks frumkvæðis. Vinnan: Telurðu ao efla beri þessa deild? Ásmundur: Ég held að ekki sé raunhæft að tala um það fyrst um sinn. Ef nefha starfslið, þá er það í sambandi við upp- á eitthvert svið, þar sem við þurfum aukið lýsingar, jafnt innan hreyfingarinnar sem út á við. Ég tel líka æskilegt að hér sé starfandi lögfræðingur. Einmitt í þessum efnum er mikilvægt að koma á sterkum deildum hjá Alþýðusambandinu, fremur en hvert Landssamband fyrir sig taki þetta að sér. 48 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.