Vinnan - 01.12.1976, Síða 50
Að ofan: 29. þing ASÍ. E.t.v. Karlakór verkamanna á Stokkseyri. N.t.v. 1. maí í Reykjavík 1976.
Vinnan: Nú kemur það fram hjá ykkur
öllum að það skorti á nægjanlegar upplýs-
ingar í hreyfingunni og þá væntanlega bæði
frá forystu til félagsmanna og öfugt. Hvem-
ig á að lagfæra þetta?
Óiafur: Það skortir mjög á fræðslustarf-
semina í samtökunum. Hana þarf að efla
verulega. Auk þess þarf að koma á kröft-
ugum erindrekstri hjá Alþýðusambandinu.
Ásmundur: Það þarf í auknum mæli að
vinna upp gögn varðandi tiltekna mála-
flokka og senda þau út í félögin til um-
ræðu. Eftir skoðun í félögunum kæmu þau
aftur til meðferðar hjá þeim pólitísku að-
ilum, sem málin heyra undir. Þannig tækju
fleiri þátt í ákvarðanatöku og valdið
dreifðist um leið og starf skrifstofu og
miðstjómar styrktist.
Vinnan: Finnst ykkur ríkjandi stefna hjá
félögunum að skammta um of fjármagn
til starfsemi Alþýðusambandsins?
Snorri: Alþýðusambandið hefur haft of
lítil fjárráð undanfarin ár. Það hefur verið
öflugu starfi fjötur Um fót. Á síðasta sam-
bandsstjómarfundi var skattur félaganna til
Alþýðusambandsins þó töluvert mikið lag-
færður. Enn vantar samt á að menn taki
rögg á sig og tryggi að þessi skattur hækki
í samræmi við verðbólguþróunina í land-
inu.
Ólafur: Ég held að Alþýðusambandið sé
ekki vísvitandi svelt af fjármagni lengur.
Eflaust er ágreiningur um hversu víðtækt
starf þessi miðstöð verkalýðshreyfingarinn-
ar eigi að reka. Náttúrulega er hægt að
finna ótal verkefni, sem segja má með
misjöfnum rétti að Alþýðusambandið eigi
að sinna en getur ekki, m.a. vegna fjár-
skorts.
Ef ég mætti taka sem dæmi þann vísi
að umræðum, sem orðið hafa um atvinnu-
lýðræði í hreyfingunni, þá hefði að minu
viti þurft að búa út fmmgögn um mál-
ið, kynna hugmyndina og koma henni á
framfæri, þannig að hún sé aðgengileg
hverjum félaga í hreyfingunni. Síðan
þyrftu kjörnir trúnaðarmenn að fara um
og ræða málið á grundvelli þessara gagna.
Við höfum séð hvemig að þessu er unnið
á Norðurlöndum. Þar hefur umræða um
atvinnulýðræði staðið í 20 ár og hugtak-
ið verið útvíkkað stig af stigi. Slík vinnu-
brögð kosta að sjálfsögðu bæði fé og
mannafla.
Ásmundur: Það er spurning hvort ekki
þarf líka skipulagsbreytingu á starfi mið-
stjórnar, t.d. með fleiri föstum nefndum
um tiltekna málaflokka. Það er ekki hægt
að leysa öll mál með því einu að ráða
fleiri menn á Alþýðusambandið. Starfs-
menn hafa ekki þær pólitísku forsendur
sem félagskjörnir forystumenn hafa til að
ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
Vinnan: Oft heyrist að það sé starfsemi
Alþýðusambandsins töluverður fjötur um
fót, að yfirleitt sé leitað til sömu manna
um flest sem ákvarða þarf. Ef nefndir eru
settar á laggimar sitja sömu mennimir
ávallt í þeim. Er miðstjórnin ekki nógu
vakandi fyrir því að dreifa starfinu á
fleiri menn?
Ásmundur: Það er eðli málsins sam-
kvæmt mjög algengt að forseta og fram-
kvæmdastjóra sé falið af miðstjórninni að
50 VINNAN