Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 51

Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 51
sjá um framkvæmd á einstökum málum. En það er þá gert að aflokinni umræðu miðstjórnar, þannig að þá er í rauninni búið að taka ákvörðun um hvernig málið skuli leyst. Ólafur: Að sumu leyti held ég að þetta eigi við rök að styðjast. Þegar skipa á menn til að fjalla um ákveðna málaflokka koma oftast fyrst í hugann menn með reynslu og þekkingu á viðkomandi málum og þeir eru skipaðir í nefndir og ráð. Þess er þá ekki alltaf gætt hvort þeir séu hlaðnir öðr- um störfum. Þama þyrfti kannski að dreifa kröftunum betur og leita uppi nýja menn til að takast ábyrgð á hendur. Snorri: Ég held að þetta dæmi sem Ólaf- ur tekur eigi miklu fremur við annars stað- ar í hreyfingunni en í miðstjórn Alþýðu- sambandsins. Vinnan: Hjá félögunum þá? Snorri: Hjá félögunum og landssam- böndunum. Vinnan: Nú er þróunin sú, að Alþýðu- sambandið er í rauninni að verða æ rík- ari þáttur í sjálfu stjórnkerfinu. Það hef- ur afskipti af ýmsum atriðum sem varða stjórn landsins á miklu breiðari grund- velli en fyrr. Teljið þið þessa þróun æski- lega eða felst í þessu viss hætta á að Al- þýðusambandið og verkalýðsfélögin taki á sig ábyrgð á ýmsum stjórnarathöfnum? Ólafur: Ég held að í þessu geti að vísu legið viss hætta og þá fyrst og fremst fyr- ir það, að Alþýðusambandið hefur ekki haft neina grundvallandi stefnuskrá í þeim málaflokkum, sem sífellt er verið að leita tii þess með, svo sem húsnæðismál, félags- mál, tryggingamál o.s.frv. Því er hætt við að þeir sem málin annast byggi fremur á eigin persónulegri skoðun og innrætingu en þeir hafi þann styrk sem byggir á stefnumörkun í hreyfingunni. Alþýðusam- bandið getur fremur sveigt þjóðfélagið til nýrrar gerðar, ef stefna okkar liggur fyrir skýrt útfærð. Snorri: Ég er í höfuðatriðum sammála því sem Ólafur segir. Það er rétt að við eigum enga heildarstefnuskrá, en ef menn hins vegar kynna sér samþykktir sam- bandsþinga og sambandsfunda síðustu ára- tugi kemur í ljós, að um víðtæka stefnu- mörkun hefur verið að ræða. Auðvitað hefur Alþýðusambandið og þeir menn sem fara með umboð þess hverju sinni reynt að fylgja henni fram. Ólafur: En ég held það sé öruggt að Al- þýðusambándið og félagar þess geti ekki kappkostað að halda árunni hreinni með því að eiga alls engin samskipti við önn- ur þjóðfélagsöfl, hvort sem þeir telja þau fjandsamleg eða ekki . Vinnan: Að lokum, hvert er brýnasta verkefni 33. þings ASÍ, sem haldið er á þessu afmælisári Alþýðusambandsins? Snorri: Að sjálfsögðu verður á þessu þingi eins og öðrum fjallað um kjaramál og önnur hagsmunamál verkalýðsstéttar- innar. En merkasta verkefni þingsins er að mínum dómi gerð grundvallarstefnu- skrár Alþýðusambandsins. Slík stefnuskrá væri verðug gjöf til Alþýðusambandsins sextíu ára. VINNAN 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.