Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 12
12
legu tengsl sem eru milli íbúa landsins
og herbúðanna verða gjörsamlega að
engu ef nokkur afskipti verða af verk-
fallinu. Mæli [ég] því sterklega með
því að til engra, [ég] endurtek, engra
aðgerða verði gripið sem hafa í för
með sér að bandarískur her blandist í
vinnudeilur hér.“
Herráðsforinginn (Chief of Staff),
Marshall, var sömu skoðunar og sendi
minnisgrein til hermálaráðuneytisins
[War Department] um að láta INDIGO
(dulnefni fyrir Bonesteel) fá eins fljótt
og auðið væri með tilliti til leyndar eft-
irfarandi tilkynningu: „BEITING
BANDARÍSKRA HERSVEITA SEM
VERKFALLSBRJÓTA ER ÓHEIM-
ILUÐ.“ [“USE OF AMERICAN
TROOPS AS STRIKEBREAKERS IS
DISAPPROVED. ]. Einnig lét hann
fylgja að ef slík beiðni bærist frá Is-
landi þyrftu verulega öflug rök að
fylgja. Ætlunin væri ekki að mæla með
slíku.
Af ofansögðu má sjá hve samdóma yfir-
maður bandaríska dvalarliðsins á Islandi og
yfirmenn hermála í hermálaráðuneytinu
voru um að láta ekki undir nokkrum kring-
umstæðum herinn skipta sér af vinnudeil-
um á Islandi. Bretar virðast hafa verið fyrr
reiðubúnir að setja hermenn sína í vinnu í
stað íslenskra verkamanna ef flutningar
vegna styrjaldarinnar, sem þeir voru beinir
þátttakendur í, yrðu verulega truflaðir.
Verkföll voru að þeirra mati runnin undan
rifjum kommúnista. Má til sanns vegar
færa að griðasáttmáli Sovétríkjanna og
Þýskalands nasismans hafi gert íslenska
kommúnista æði tortryggilega í augum
breska hernámsliðsins. Þegar Bandaríkja-
menn komu í boði Islendinga til landsins
höfðu orðið gífurlegar breytingar í sam-
setningu bandalaga hinna stríðandi ríkja.
Herir Sovétríkjanna og Þýskalands háðu
grimmar orrustur sín á milli. Það var eðlis-
"'‘■moihltD-
jAMhority A/A/Q
Zzr-NARA. Qafp
F~>
m 370.61 (6-23-425
Bamtsstm .jœ œs
: d/s
T,CU33ITBD 133SW2 CSSBHí
3uhJ*ott Oố.af OiS. Aiay ?orcca ln Croakins
ft;36rllta
Tho Cliiaf ojC StoCf dlwctet
W
I. Thnt tha COXhxdas aeeoaso in ooda ba tranaaittod
to IoDIGO, XoelaDd by:tho rxxit',' (OtpKlitious vjmdo pooaiblo comíe-
‘,ant Tíith coorooyi ‘' IÖOSD
03E 0? AisaicAö tacopc A3 smiEcaaaÆEas is di3a7íeovbd
PoriBd BO iznmioi Q7, 0IH2CTB0 SOClt ACTIÍlTr UÍLE33 100 R3-
ccsaæsD raru soasTAíiiAL heasohs Poriod -nua m seplt ro
roua suiaEn poca su' 7iva
l'ARStHT.I.
- II.. Ib«t the Asaifttaat Cblef of SUÍf, 0-2 «nd tl-.e Coaaatding
Oofwral, Cervisss at Sapply bo fumlahad nith a copy of tho aotloo
dlreotod la porasrBph- 1, 'flbove.
Cbw „ Q+avruijJ,fáifó’: i-. HrigetUor Oonorol,
*0alaUab CbU£ or 3taff*
HOTB FOR RECOROt' 0íil^a' 3. .
In hio Koaaaga OM1I-7447 (6-23-42) the CG, I3C atatas that the
.Cqnainnriant of tho-.HayaÍýójerating, Baao íeeland reporto that the
róanBeofttative • pt-XÓ^SÍ^Sbi^ÍJi^íiáau ia Icelaod haa roooiaaendod
Arnyv.Porcoo 'ji'Ioelaui ao atrikobroakora in a
eÍTllian otoVoíIoroa' strllte; ogoinot.the S.S. Carabolla (Panaœa).
' a that' the' WiDk dioapprovo this giving roaoono ln detail.
'•aw'jmiíp—
munur á veru herliðs Breta annars vegar og
Bandaríkjanna hins vegar á Islandi og hann
kom fram í afstöðu þeirra til verkfalla ís-
lenskra verkamanna.
Sáttasemjari ríkisins og
ógilding gerðardómslaganna
Ríkisstjómin vissi af áhyggjum Banda-
ríkjamanna. Sendiherra þeirra tilkynnti
henni um þessar áhyggjur sínar og sendi-
herra Islands í Washington tjáði henni
fréttir þaðan. Samninganefnd Bandaríkja-
manna á Islandi greindi frá geigvænlegum
afleiðingum af því að afgreiða ekki skip
sem væru í siglingum vegna stríðsins. Því
var það að sáttasemjaranum var falið að
gera allt til að ná samkomulagi deiluaðila.
Vinnuveitendafélag Islands sendi lista 25.
júní með nöfnum 300 hafnarverkamanna til
allra aðildarfélaga sinna í því augnamiði að
fá alla atvinnurekendur til að ráða engan
þeirra til sín í vinnu.
Þann sama dag, 25. júní, kom til
kasta sáttasemjara ríkisins. Hann boð-
aði til fundar verkamenn við höfnina
(ekki Verkamannafélagið Dagsbrún)
ásamt stjómum Eimskipafélagsins og
Skipaútgerðar ríkisins. Náðist sam-
komulag sem í stórum dráttum var
samkvæmt kröfum verkamanna. Þeir
fengu samþykkt að fyrir hverja
klukkustund sem unnin var í nætur-
vinnu (frá kl. 8 síðdegis til 7 árdegis)
skyldi greiða til viðbótar hálfrar
klukkustundar dagvinnukaup. Tíma-
kaup í dagvinnu varð kr. 4,30 að við-
bættri verðlagsuppbót. Eftirvinna
reiknaðist frá kl. 6 til 8 en á móti féll
umsaminn kaffitími niður.
Með samningunum voru gerðar-
dómslögin endanlega gerð að dauðum
og ómerkum bókstaf þótt formleg
jarðarför þeirra yrði ekki fyrr en 25.
ágúst þetta ár. Vígstaða verkamanna
og iðnaðarmanna var að sama skapi sterk
eins og hún var veik hjá atvinnurekendum.
Þeir voru ekki í öfundsverðri samningaað-
stöðu. Þeir urðu nauðugir viljugir að játa
sig sigraða fyrir aðstæðum sem þeir engan
veginn gátu haft stjórn á — stríðsástand-
inu. Erjur urðu áfram milli atvinnurekenda
og launafólks út árið 1942 og barðist Al-
þýðusamband Islands fyrir því að sam-
ræma kaupgjald sem víðast á landinu og
óskaði eftir því við setuliðið og ríkisstjóm-
ina að enginn taxti.
Til þess höfðu þeir 4000 íslendinga
þegar flest var á sínum vegum árið 1942.
yrði settur af hálfu setuliðsins án samn-
ingaumleitana og samþykkis verkalýðsfé-
laganna. Það var undir íslendingum sjálf-
um komið hvort þeir væru ábyrgðarfullir.
Setuliðið ætlaði sér það eitt hlutverk að
treysta varnir og auka sóknarmátt Banda-
manna í stríðinu við Þjóðverja.
hóte/
SELFOSS
Eyrarvegi 2, sími 98-22500
Leigjum út, allt
að 400 manna
sali fyrir
ráðstefnur,
fundi og
árshátíðir.
Aðstaðan er
fyrsta flokks og
við leggjum
metnað okkar í
góðan mat og
lipra þjónustu.
VINNAN