Vinnan - 01.04.1994, Síða 36
36
Helga Stefánsdóttir,
Akureyri:
"Fæ enga
fræðslu um
hreyfinguna"
Helga Stefánsdóttir býr í Þorpinu á Ak-
ureyri og vinnur í Strýtu sem er niðursuðu-
verksmiðja byggð á rústum hins gjaldþrota
K. Jónsson hf. Helga er að verða tvítug en
hefur unnið í fyrirtækinu frá árinu 1988, ef
frá er talið barneignaleyfi sem hún fékk
þegar hún eignaðist dóttur sína sem nú er
hálfs annars árs gömul.
Helga segist einmitt hafa verið í því
leyfi þegar K. Jónsson varð gjaldþrota en
hvað segir hún um starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar, sér hún mikið til hennar á
vinnustað sínum?
„Nei, það verður lítið vart við þá nema
eitthvað sé um að vera, eitthvað mikið.“
Helga hefur farið á námskeið fyrir fisk-
vinnslufólk, en hún hefur ekki hlotið neina
fræðslu um starfsemi stéttarfélaganna.
„Það hefur enginn gefið sig fram til að
segja mér neitt og ég hef aldrei þurft að
leita til félagsins, nema þegar ég missti
helminginn af vinnunni og fékk bætur á
móti. Þá þurfti ég að mæta til að stimpla
mig og ná í bætumar.“
- Hefurðu velt því fyrir þér hvert pen-
ingamir fara sem dregnir eru af þér?
„Nei, ég hef ekki pælt í því, kannski er
ég ekki komin á þann aldur þegar fólk gerir
það. Ég hef heldur aldrei fengið neitt til
baka, aldrei farið í orlofshús svo dæmi sé
tekið. Ég hef bara borgað í þetta,“ segir
Helga Stefánsdóttir.
Hollustuvernd ríkisins
Heilbrigö þjóð
í hreinu landi
SENDUM BARÁTTUKVEÐJUR I TILEFNI AF
1. MAÍ
IL
Landssamband
vörubifreiðastjóra
Verkamannasamband
Islands
PJÓNUSTUSAMBAND
ÍSLANOS J
jto l
ir
Sairnðn
SAMBAND IÐNFÉLAGA
Landssamband
iðnverkafólks
Sjómannasamband
íslands
Rafiðnaðarsamband
(slands
íslenzkra
verzlunarmanna