Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 30
30____________________________________________________
Hafsteinn Stefánsson:
Áiur voru skipin úr tré
en mennirnir úr stáli...
— Ég viidi ekki láta nudda mér upp úr því að ég sæti of lengi í starfi. Ég var kominn á aldur og því ekki
ástæða til þess að streitast við lengur. Það er nú oft þannig innan verkalýðshreyfingarinnar sem ann-
ars staðar að menn vilja verða makráðir þegar fram í sækir og sitja sem fastast. Þetta er eins og með
ketti sem eitt sinn voru góðir veiðikettir — það vill enginn taka að sér að lóga þeim þegar þeir eru
hættir að gera gagn, enda vinaleg og góð dýr, segir Hafsteinn Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður
Verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi og baráttumaður ævilangt fyrir bættum kjörum og jafnrétti.
Hafsteinn er sjötíu og þriggja
ára og ber aldurinn með reisn.
Hann talar hægt, en með áherslu,
og kveður fast að orði þegar við
á. Hann er þó enginn orðhákur
og fer ekki með dylgjur og sví-
virðingar um það sem honum
mislíkar. Samt fer ekki á milli
mála að þar talar maður sem hef-
ur skoðanir, og skiptir þá engu
þótt þær séu ekki alltaf samstiga
almannarómi og þeim sem með
völdin fara hverju sinni.
Hafsteinn hætti störfum hjá
Þór um síðustu áramót eftir tíu
ára starf. Honum er auðheyrilega
ekki eiginlegt að tala um sjálfan
sig en hann fæst þó til þess að
segja okkur undan og ofan af um
það helsta sem hann hefur tekist
á hendur innan hreyfingarinnar.
Aðeins sextán ára gekk hann
til liðs við Verkalýðfélagið Ár-
vakur á Eskifirði.
— I mínum huga er Árvakur
alltaf dálítið merkilegt félag. Það
stóð fyrir stofnun samvinnufé-
lags og keypti fjóra báta sem
gerðir voru út með samvinnufé-
lagsformi um nokkurra ára
skeið. Fólk fann fyrir þessu á
ekki stærri stað en Eskifjörður
var þá og atvinna af skornum
skammti.
Frá Eskifirði lá leið Hafsteins
til Eyja en þar gekk hann til að
byrja með í Sjómannafélagið
Jötunn.
— Á þessum árurn voru
hatrömm pólitísk átök innan
verkalýðshreyfingarinnar. Við
sem kallaðir vorum kommúnisÞ
ar náðum völdum í félaginu á
lýðræðislegan hátt á aðalfundi.
Eg vona að ég móðgi engan þó
að ég slái því fram að Jötunn
hafi verið leiðandi í kjaramálum
sjómanna um langan tíma.
Við stóðum í hörðurn verk-
föllum og við lá að hendur væru
látnar skipta. Það var staðið í
ströngu. Þegar barist var fyrir
kauptryggingunni um miðjan
fimmta áratuginn kostaði það
tveggja mánaða verkfall og við
komumst ekki á sjó fyrr en undir
lok febrúar. Meðan á verkfalli
stóð höfðum við ekkert annað en
lánstraust til að lifa á.
Við lentum í öðru löngu og
ströngu verkfalli og frá áramót-
urn var fyrst farið á sjó síðasta
dag febrúar. Út úr því verkfalli
náðum við fram örlítilli hluta-
hækkun sem þótti mikil ósvinna
að fara fram á. Af reynslunni
vorum við búnir að læra það að
ef við settum fram nokkuð háar
kröfur gætum við slegið talsvert
af við samningaborðið en samt
fengið okkar fram. Þetta gekk nú
svona heldur betur eftir, segir
Hafsteinn og það fer vart milli
mála að þessir atburðir eru hon-
um enn í fersku minni.
Eftir nokkurra ára vist í Jötni
var vettvangur Hafsteins um
skeið í Iðnaðarmannafélagi
Vestmannaeyja en hann er lærð-
ur skipasmiður auk þess að vera
með skipstjórnarréttindi. Því
næst lá leiðin í Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Verðandi.
Meðfram félagmálastappi innan
verkalýðshreyfingarinnar tók
Hafsteinn virkan þátt í stjórn-
málum, fyrst í Sósíalistaflokkn-
um og síðar Alþýðubandalaginu.
Um tíma sat hann í bæjarstjóm
Vestmannaeyjabæjar.
— Fljótlega eftir að við flutt-
um hingað á Selfoss eftir gos tók
ég við starfi hjá Verkalýðsfélag-
inu Þór og var kjörinn varafor-
maður, sem ég á víst að heita
enn. Mér fannst þá við hæfi að
ganga einfaldlega í félagið og
hafa það sem félagsmönnum
hafðist.
Hafsteinn segir tildrög þess
að hann og eiginkona hans, Guð-
munda Gunnarsdóttir, fyrrver-
andi formaður Verkakvennafé-
lagsins Snótar, settust að á Sel-
fossi þau helst að um þær mund-
ir hafi hann setið í bæjarstjórn
Vestmannaeyja.
— Eg var eini iðnaðarmaður-
inn sem þar átti sæti og ég var
kosinn til þess að fara með verk-
fræðingum út til að velja þau hús
sem til greina kom að kaupa og
flytja hingað upp. í því var ég að
snúast næstu tvö árin og var síð-
an fenginn til að sjá um uppsetn-
ingu húsanna á Selfossi.
Það fæddist lítil mús
Hafsteinn segir að eigi hann
að bera saman verkalýðshreyf-
inguna eins og hún er í dag og
hún var um miðja öldina felist
gleggstur munur í því getuleysi
sem virðist allt um lykjandi í
starfsháttum hreyfingarinnar um
þessar mundir og trúleysi-á eigin
mátt.
— Ef til vill má velta því fyrir
sér hvort það hafi einatt verið ár-
STYRKJUM LANDGRÆÐSLU MEÐ
Mest seldu dekk á íslandi
íslensk framleiðsla
á frábæru verði
Af hverjum seldum hjólbaröa
renna 10 kr. til Landgrœöslu ríkisins
814009 Skipholtí 35 s, 31055
VINNAN