Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 38

Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 38
38 Benedikt Davíðsson, forseti ASI, Ingeborg Vinther,formaðurfœreyska Verkamannasambandsins, og Ole Kristian Klein, fulltrúi grœnlenska Alþýðusambandsins, hittust á samráðsfundi í Reykjavík fyrir skömmu. Þar var samþykkt að stefna að því að halda aðalfund Verkalýðssambandsins í Norður-Atlantshafi í Fœreyjum í haust. Samstarfsfundur Verkalýðssambandsins í NorSur-Atlantshafi: „Enginn skilur ástandið í Færeyjum nema upplifa þaB sjálfur77 — segir Ingeborg Vinther, formaöur færeyska Verkamannasambandsins. — Danir hafa smeygt snöru um háls Færeyinga. Peningar sem frá þeim koma fara einungis í aö bjarga færeyskum og dönskum bönkum, ekkert af þeim hefur fariö til fólksins, sagði Ingeborg Vinther, formaöur færeyska Verkamanna- sambandsins, meöal annars á sam- starfsfundi Verkaiýðssambandsins í Norður-Atlantshafi sem var haldinn í Reykjavík seint í mars. Ingeborg Vinther upplýsti að skráð at- vinnuleysi í Færeyjum væri 21 prósent en væru taldir með þeir sem flutt hefðu á brott auk annarra sem eru horfnir af vinnumark- aði, þar á meðal í nám, sagði hún að at- vinnuleysið væri álitið vera um 35 prósent. Hún lét í ljós mikla vantrú á færeyskum stjómmálamönnum sem hún sagði að hugs- uðu einungis um hvernig hægt væri að mæta kröfum dönsku ríkisstjórnarinnar. — I rauninni getur enginn skilið ástand- ið án þess að hafa upplifað það á sjálfum sér — og í Færeyjum er farið að tala um það í fullri alvöru að verkalýðssamtökin bjóði fram í lögþingskosningunum í nóv- ember í haust, sagði Ingeborg Vinther. Island, Grænland og Færeyjar eiga aðild að Verkalýðssambandinu í Norður-Atlants- hafi en samstarf þessara þjóða í verkalýðs- málum hefur staðið í 12 ár. A fundinum í Reykjavík hittist samráðsnefnd sambands- ins, sem í eiga sæti formenn verkalýðssam- banda landanna þriggja, og ræddu stöðu þessa samstarfs og framhald þess. Þegar hefur verið ákveðið að aðalfundur sam- bandsins verði haldinn í Færeyjum í sept- ember. Ole Kristian Klein, fulltrúi grænlenska Alþýðusambandsins, sagði að atvinnuleysi þar væri um 15 prósent og færi vaxandi. Astæðan er minnkandi þorskafli og menn hafa einnig áhyggjur af verðfalli á rækju. — Hjá okkur snýst umræðan um að finna eitthvað annað en fisk til að lifa af og þar er einkum litið til þjónustu við ferða- menn, sagði Ole Kristian Klein. Vandi Grænlendinga er ekki aðeins minnkandi þorskveiði. Allur námarekstur liggur niðri; gull hefur raunar fundist en of dýrt er að vinna það. Grænlendingar hafa einnig miklar áhyggjur af áhrifum starf- semi og málflutnings Grænfriðunga á at- vinnulíf sitt. Grænlendingar hafa sýnt mikinn áhuga á að læra af okkur Islendingum hvemig við höfum staðið að ýmsum málum og nefndu sérstaklega félagslega íbúðakerfið og líf- eyrissjóðakerfið. Grænlenska landstjómin á mestallt húsnæði á Grænlandi og leigir það út. Af þeim sökum þarf oft að semja um húsaleigu í kjarasamningum. Stutt er síðan farið var að koma upp lífeyrissjóðum á Grænlandi en við uppbyggingu þeirra hefur til þessa verið litið til danskrar fyrirmynd- ar. VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.