Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 43
LÆKNAR GETA
SPARAÐ
200-300
MILLJÓNIR
KRONA1
LYFJAKOSTNAÐI
Á ÞESSU ÁRI.
VONANDI
GERAÞEIRÞAÐ!
Heildarkostnaður við lyfjanotkun á
íslandi á árinu 1993 var u.þ.b. 5,1
miiljarður króna.
Þetta er há fjárhæð. Ekkcrt bendir til
annars en að útkoman verði jafnvel
hærri á þessu ári.
Þegar sama virka lyfjaefnið er skráð
undir mismunandi lyfjaheitum. frá
mismunandi framleiðendum, eru þau lyf
kölluð SAMHEITALYF. Þetta eru lyf sömu
tegundar, samskonar Iyf. Þau eru ekki
aðeins markaðssett hvert undir sínu
heiti, heldur eru þau einnig í ólíkum
umbúðum. Lyfin eru engu að síður talin
jafngild (bio-equivalent) af
heilbrigðisyfirvöldum, enda gerðar til
þeirra nákvæmlega sömu gæðakröfur.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því
að samheitalyf geta verið á afar
mismunandi verði og stundum er sá
munur margfaidur.
Ef læknar ávísa ætíð á samheitalyf með
því að merkja (§) í stað (R) við lyfjaheiti,
þegar mögulegt er, má ætla að þessi
upphæð verði mun lægri en hér að
framan greinir, eða sem nemur 200-300
milljónum króna. Þetta sýnir okkur, hve
niiklu skiptir fyrir íslenska sjúklinga og
þjóðarbú að skynsamlega sé staðið að
ávísun lyfja í landinu.
Aðhald og sparnaður í rekstri
veitir aukið svigrúm til hetri
heiibrigðisþjón ustu.
Merki læknir bókstafinn ® við lyfjaheiti á lyfseðli, fær
sjúklingur eingöngu afgreitt tiltekið lyf. Merki læknir hins
vegar bókstafinn(S)við lyfjaheiti, fær sjúklingur afgreitt
ódýrasta samheitalyf í sama lyfjaflokki.
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
K& RÍKISINS