Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Page 13

Vinnan - 01.04.1994, Page 13
_______________________________________13 Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands Islands: Eigum a'á) beita okkur alls staðar þar sem vö getum orbið til góds — Leiöirnar liggja frá Reykjavík, ekki síöur en til Reykjavíkur; og þaö er svo merkilegt að þetta er jafn langt! Þaö var stund milli stríöa hjá Birni Grétari Sveins- syni, formanni Verkamannasambands íslands, þegar Vinnan náöi tali af honum á skrifstofu sambandsins laugardaginn sem var fyrsti almennilegi vordagurinn um allt land þetta árið. Hann var nýkominn úr tíu funda ferö um Austurland þar sem hann hitti stjórnir og trún- aðarmannaráð sambandsfélaganna og ætlaöi mánudagskvöldið næsta á eftir aö leggja í samsvar- andi ferö um Suðurland. — Ég slapp við vetrarveðrin og komst þetta allt ak- andi þótt lítillega hafi þurft að ýta. Þaö var svona á mörkunum að hægt væri aö komast upp úr Njarðvík- inni, á leiö úr Borgarfirði eystra og upp á Hérað, og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði voru feiknalega leiðinleg; það var komið vor í vegina. Það er engin nýlunda hjá Birni Grétari að flengjast á Volvonum landshorna á milli; meðan hann var formaður Jökuls á Höfn urðu ferðirnar um sandana ærið margar til að sinna störfum forystumanns í Verkamannasambandinu. Eftir að hann var kjörinn formaður Verkamannasam- bandsins, haustið 1991, urðu ferðirnar enn tíðari og eiginkonan heldur því fram að hann hafi verið meira og minna í Reykjavík í sex mánuði en sjálfur telur hann útilegumánuðina hafa verið fjóra! Það varð því að vörgu leyti léttir þegar úr varð að hann var ráðinn í fullt starf hjá Verkamannasambandinu í stað Þóris Daní- elssonar, sem hafði verið framkvæmda- stjóri sambandsins frá upphafi en hætti störfum þar fyrir rúmu ári fyrir aldurs sakir. — Það var náttúrlega ákaflega erfitt að Eftir Þorgrím Gestsson gera út frá Höfn og vitanlega gekk það ekki til lengdar. Þegar kom að því að mér bauðst að koma hér inn sem starfandi for- maður lokaði ég einfaldlega dyrum að baki mér og tók um það ákvörðun að flytja frá Höfn og í Breiðholtið. En ég segi það nú stundum að mér þyki erfiðara að vakna á morgnana við hljóð í strætis- vagni heldur en fuglasöng! Harðneskjuleg afstaða Nú er formaðurinn nýkominn úr vor- reisu um gamlar slóðir. Hvernig er hljóð- ið ífólkinu? — Það sem einkennir umræðuna á þessum fundum er náttúrlega þessi sam- dráttur í atvinnunni og minnkun kaup- VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.