Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Síða 18

Vinnan - 01.04.1994, Síða 18
18 eftir því að fólk sem lengi hafði unnið í fiski var mjög kvíðið í upphafi námskeiðs og bjóst jafnvel við því að verða tekið upp að töflu og látið reikna þar þung dæmi og verða rekið á gat. Svo var hins vegar alls ekki. Kennslan, og ekki síður námsefnið, þótti þvert á móti svo gott og vel til þess vandað að sumt af því hefur verið þýtt á er- lend mál og er nú til dæmis kennt t.d. á Norðurlöndum. Það var með gleðilegri stundum í for- mannstíð minni að mæta á útgerðarstöðun- um í lok námskeiðanna og finna hve mikils fólk, sem unnið hafði árum saman í grein- inni, mat þessi námskeið. Þau höfðu einnig veruleg áhrif á vöruvöndun og gæði sem skilaði sér í aukinni og betri sölu á íslensk- um afurðum. Þau lyftu greininni hærra. — Bónusmálin voru mjög mikill hluti formannsstarfs míns og ekki var haldinn svo fundur að þau kæmu ekki til álita. Bón- usinn lyfti kaupinu upp en hafði líka í för með sér aukinn þrældóm — einkum á kon- um, og gerir enn — og hann var notaður til að halda niðri almennu tímakaupi. Bónus- kerfið er nú orðið manneskjulegra því að nú tíðkast hópbónus í stað einstaklingsbónuss áður. Málefni farandverkafólks voru einnig of- arlega á baugi á tímabili. Aðbúnaður þess var oft fyrir neðan allar hellur, fæðið og húsnæðið var oft mjög dýrt. Þetta fór að vísu batnandi þótt sannarlega væri aldrei hlaðið undir þetta fólk. Það kom á útgerðar- staðina til að vinna og tómstundir voru fáar og afþreyingarmöguleikar í þeim rýrir, nema þá helst brennivínsdrykkja sem fólk- inu var svo álasað fyrir. Meðal farandverkafólks var nokkur hreyfing til úrbóta um tíma, enda veitti ekki af víða. Úrbætur mættu þó oft andstöðu heimamanna sem sögðu sem svo að fengi farandverkafólk frítt fæði og húsnæði væri það þar með komið með hærri laun en heimafólkið sjálft og mismunun komin upp. Barátta fyrir bættum hag þess var því hörð, og hefði mátt vera harðari kannski, en verkalýðsfélög á stöðunum voru oft treg til að rétta hjálparhönd í þessum efnum. Þá gerði það málin ekki auðveldari að farandverkafólkið var mjög sundurleitur hópur. Eg lá um tíma undir ámæli sumra forystumanna þess fyrir að vera slappur í baráttu fyrir bættum hag þess. Samtímis varð ég fyrir aðkasti sumra af félögum mín- um í VMSI fyrir að dekra þetta fólk sem sumt hvert væri einungis auðnuleysingjar og brennivínsberserkir. Mér sárnaði oft af þessum sökum þar sem ég lagði mig mjög fram um að leysa málin. En þannig er þetta: formaður verður að taka bæði hrósi og skömmum. Um málefni farandverkafólks var einfaldlega ekki samstaða innan VMSÍ. Dagsbrún hljóp hins vegar undir bagga með farandverkafólki og studdi samtök þess með fjárframlögum og með því að lána þeim húsnæði. Góð/r somstarfsmenn léttu róðurinn — Þegar ég lít til baka minnist ég helst hinnar gífurlegu vinnu sem formennskan í VMSÍ kostaði. Ég gegndi jafnframt for- mennsku í Dagsbrún og fannst stundum sjálfum sem hún sæti á hakanum þar sem ég þurfti sífellt að vera á ferðinni um allt land- ið vegna alls konar mála sem upp á komu. Það var því mjög mikilsvert að hafa góða samstarfsmenn og ég minnist sérstak- lega varaformanns VMSÍ í 14 ár, Karls Steinars Guðnasonar. Samstarf okkar var afbragðsgott og samtökunum mikill styrkur að því hve vel það gekk. Starfsmaður VMSI var alla mína tíð Þórir Daníelsson sem ann- aðist daglegan rekstur sambandsins, sá um bókhald og fjárreiður þess og upplýsinga- starfsemi og hélt utan um kauptaxta aðildar- féla^anna. Ég var vissulega ekki alltaf sammála samstarfsmönnum mínum í stjórn VMSI. Ég taldi alla tíð að áherslan ætti að vera á starf í beina þágu umbjóðendanna sjálfra og var því ekkert yfir mig hrifinn af veru okkar í alls konar erlendum samtökum og sá ekki tilganginn með því. Það koma fyrir að ég lenti í minnihluta í stjórn út af slíkum mál- um. Ég man eftir því að við vorum um tíma í tvennum sænskum samtökum verkafólks í matvælaiðnaði. Þau voru síðan sameinuð en sennilega hafa tíðindi af því borist eitthvað seint hingað því að VMSI var víst í báðum þessum samtökum um tíma þótt þau væru orðin ein samtök. Ég segi að lokum enn og aftur að það er eitt hið erfiðasta starf sem hægt er að takast á hendur að gæta hagsmuna ófaglærðs verkafólks sem alltaf á undir högg að sækja á vinnumarkaðinum. Að gegna formennsku í VMSI er því fullt starf og meira en það og því verður ekki sinnt sem skyldi á kostnað annars félags. Við formennsku í VMSI hef- ur tekið við af mér ungur maður. Björn Grétar Sveinsson, og er í fullu starfi sem er vel. Þá hefur hann við hlið sér reyndan og góðan mann, Snæ Karlsson, þannig að VMSI hefur alla burði til að vera öflugur málsvari ófaglærðs verkafólks á íslandi, segir Guðmundur J. Guðmundsson að lok- um. VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKAN FARAR- RRODDI VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.