Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 40
40
Aðalsteinn Baldursson er einn af
yngstu verkalýðsleiðtogum
landsins. Hann hefur verið
formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur síðan í haust en kom þá
heint úrflskvinnslunni.
Aðalsteinn Baldursson, formaður VerkalýSsfélags Húsavíkur:
„Minn styrkur áb koma
beint úr pu&inu77
Aðalsteinn Baldursson, starfsmað-
ur á skrifstofu Verkalýðsfélags
Húsavíkur, mun vera annar yngsti
formaður verkalýðsfélags á land-
inu en hann er 34 ára gamall. Að-
alsteinn tók við formennsku í
Verkalýðsfélagi Húsavík 1. sept-
ember s.l. þegar fyrrverandi for-
maður VH, Kári Arnór Kárason,
tók við starfi framkvæmdastjóra
Lífeyrissjóðs Norðurlands.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aðalsteinn
gegnt og gegnir ýmsum trúnaðarstörfum
innan verkalýðshreyfingarinnar. Hann
hefur átt sæti í stjórn Verkalýðsfélags
Húsavíkur í 6 ár og setið tvö tímabil sem
varaformaður. Hann hefur átt sæti í stjórn
útgerðarfélagsins íshafs, verið fulltrúi
starfsmanna í stjórn Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, er í stjórn Atvinnuþróunarfé-
lags Þingeyinga, á sæti í sambandsstjórn
Verkamannasambands Islands, miðstjórn
Alþýðusamband Norðurlands og er í
stjórn fiskvinnsludeildar Verkamannasam-
bandsins. Auk starfa að verkalýðsmálum
hefur Aðalsteinn unnið mikið að félags-
málum á öðrum sviðum, m.a. að íþrótta-
málum, og hann er formaður félags „frí-
stundabænda“ á Húsavík og hefur verið
með rollur frá barnæsku.
Við spyrjum þennan unga atorkumann
fyrst um nám og starfsferil til þessa dags.
— Frá 13 ára aldri vann ég í fiski á
sumrin og raunar oft á veturna einnig. Þá
var svo mikið að gera að maður fór stund-
um beint úr skólanum í fiskvinnslu. Því
miður hefur ástandið breyst í þessum efn-
um og í dag mega unglingar teljast heppn-
ir að fá einhverja vinnu yfir sumarið.
Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á bú-
skap. Faðir minn var með rollur og ég var
öllum stundum í kringum þetta með hon-
um sem strákur. Það lá því beint við að
fara í búfræði, sem ég gerði og útskrifað-
ist sem búfræðingur frá Hvanneyri 1979.
Að námi loknu fór ég að vinna hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur við löndun og
saltfiskverkun og fór þá strax að að hafa
afskipti af réttindamálum á vinnustað. Það
var töluverð óánægja innan fyrirtækisins
með launamismun á vinnustað sem gat
numið um 70%. Eg var fljótlega kosinn
trúnaðarmaður og var falið að ganga í
þetta mál. Eg var ungur og ákafur og taldi
að það yrði auðvelt að leiðrétta þetta mis-
rétti og sagði mínum mönnum að ég yrði
búinn að redda þessu eftir viku. En þessi
vika varð reyndar að 10 árum því það var
ekki fyrr en árið 1991, skömmu áður en
ég hætti, að barátta okkar skilaði fullum
launajöfnuði innan fyrirtækisins. Þannig
að maður kynntist því strax að það kostar
oft mikla þolinmæði að vinna að verka-
lýðsmálum og barátta fyrir réttindum skil-
ar sjaldnast árangri strax.
— Þú starfar sem sé í 10 ár sem verka-
maður í erfiðisvinnu og söðlar síðan um
og verður skrifstofumaður. Voru þetta
ekki mikil viðbrigði?
— Jú, svo sannarlega. Eg var ráðinn
starfsmaður Verkalýðsfélags Húsavíkur
Veistu þú að:
MÆLIFRÆÐIER GRUNDVALLAR-
AIRIDI f VIÐSKirilM OGIDNADI?
íslenskur viðskiptavinur þinn á aðeins að treysta löggiltri vog.
í Evrópsku samstarfi er faggilding staðfesting á hæfni starfsemi?
Um allan heim er aðeins treyst á kvarðað mælitæki?
LÖGGILDING KVÖRÐUN FAGGILDING
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandis Bureau of Legal Metrology
SÍÐUMÚLA 13 • PÓSTHÓLF 8114* ÍS-128 REYKJAVÍK SÍMI 91 -681122
VINNAN