Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Side 41

Vinnan - 01.04.1994, Side 41
41 haustið 1991 og kom beint að skrifborð- inu og tölvuskjánum eftir 10 ára puð í fiskvinnslu. Þetta var mikil breyting á mínum högum og félagar mínir sögðu að þessi breyting hefði endurspeglast í mitt- ismáli mínu! Það tók óneitanlega tíma að söðla um og venjast skrifstofuvinnunni. En ég vinn fyrst og fremst að félagsmál- um og starfið hér snýst mikið um sam- skipti við fólk; að því leytinu var breyt- ingin ekki veruleg. Munurinn fólst eink- um í því að í stað þess að vera líkamlega þreyttur eftir erfiði dagsins var maður andlega þreyttur eftir að hafa unnið við að leysa vandamál fólks. Eg er hins vegar á því að það sé styrkur minn að koma beint úr puðinu í þetta starf. Eg þekki af eigin raun vandamálin sem fólk á við að stríða og ég tala sama mál og fólkið. Mjög margir starfsmenn verkalýðsfélaganna koma til starfa beint úr löngu námi. Þótt menntun sé nauðsyn- leg í okkar störfum er ekki síður nauðsyn- legt að hjá hreyfingunni starfi menn sem koma beint úr sama umhverfi og skjól- stæðingar okkar og félagar. — Þú talar um andlega þreytu. Er þetta slítandi starf? — Það getur verið það, ekki síst á þess- um erfiðum tímum. Það er mjög erfitt að standa frammi fyrir fólki sem sér ekkert nema svartnætti framundan og geta e.t.v. lítið hjálpað. En maður reynir að leysa vanda sem flestra. Raunar er það svo að inni á borði hjá okkur eru ólíklegustu mál sem raunar heyra ekki undir okkur. A Húsavík starfar því miður enginn félags- málafulltrúi þrátt fyrir að bæjarfélagið hafi reynt mikið að ráða slíkan mann. Þetta þýðir að mörg mál, sem ættu að vera á verksviði félagsmálafulltrúa, lenda inni á borði hjá okkur. Fólk kemur til okkar vegna fjárhagsvandræða og ýmissa vanda- mála í einkalífi. Þótt verkalýðsfélagið geti e.t.v. lítið gert til hjálpar tekur maður öll- um vel og það hjálpar mörgum að fá tæki- færi til að tala út um sín vandamál. Það verður líka að segjast eins og er að hér á Húsavík er samhjálpin öflug. Ættingjar og vinir eru oftast reiðubúnir að aðstoða og styðja þá sem eiga við vandamál að stríða. En maður finnur greinilega fyrir því að erfiðleikamir eru meiri nú en mörg undan- farin ár. Atvinnurekendur notfæra sér ástandið í atvinnumálum og beita meiri hörku. Og fólk er hrætt og tekur stundum ekki þá áhættu að leita réttar síns gagnvart atvinnurekendum af ótta við að missa vinnuna. — Hvernig er aðstaða Verkalýðsfélags Húsvíkur? — Aðstaðan er mjög góð og þarf að vera það. I félaginu eru um 900 manns og félagið þjónar 5 stéttarfélögum. Hér er einnig útibú fyrir Lífeyrissjóð Norður- lands, vinnumiðlun, skráning atvinnuleys- is og við sinnum einnig málum Búseta. A- lagið er því oft mikið. En við höfum byggt hér upp mjög góða aðstöðu, bæði fyrir skrifstofuhaldið en einnig sal fyrir félags- aðstöðu sem við tókum í notkun fyrir 2 árum og hefur nýst mjög vel og árlega erum við þar með námskeið fyrir 5-600 manns. Forverar mínir hjá VH hafa staðið vel að málum og byggt upp gott félag sem fé- lagsmenn eru upp til hópa ánægðir með. Við gerðum fyrir nokkru könnun meðal félagsmann um viðhorf þeirra til félags- ins. Niðurstöðurnar voru mjög jákvæðar og mikil hvatnig fyrir okkur sem erum hér í forsvari. Þar kom m.a. fram að 99% fé- lagsmanna telja þjónustu okkar góða eða viðunandi og 95% telja forystu félagsins standa sig vel eða viðunandi. Ég legg raunar mikla áherslu á það að fylgjast með vilja félagsmanna og mun stuðla að því að kannanir um viðhorf þeirra verði gerðar reglulega, m.a. hvað varðar forystumenn félagsins. Stjórnarkjör, eins og að því er staðið, gefur yfirleitt ekki góða vísbend- ingu um vilja félaganna og ég vildi ekki starfa sem formaður ef ég hefði ekki traust meirihluta minna félaga, sagði Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, að lokum. VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.