Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 23

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 23
Landsfundur 1981 Ályktun um utanríkismál Á ráðstefnu málefnanefndar Sjálf- stæðisflokksins um utanríkismál, sem. haldin var dagana 16. og 17. október undir yfirskriftinni „Utanríkisstefnan og Sjálfstæðisflokkurinn” var staðfest sam- heldni sjálfstæðismanna í utanríkismál- um. Fyrir frumkvæði þeirra hafa íslend- ingar þorað að taka afstöðu í utanríkis- málum, reynslan hefur sýnt, að þeir hafa tekið rétta afstöðu, sem grundvallast hefur á norrænu samstarfi, þátttöku í starfi Sameinuðu þjóðanna og varnar- samstarfi vestrænna þjóða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið sjálfum sér samkvæmur í utanríkismál- um. Hann fylgir ábyrgri utanríkisstefnu, sem í senn tekur mið af brýnum hags- munum íslands og þeirri þróun, að þjóð- irnar verða hver annari háðari. I hug- myndabaráttunni á alþjóðavettvangi er afstaða Sjálfstæðisflokksins skýr, hann berst fyrir mannréttindum og frelsi þjóða og einstaklinga til að ráða málum sínum án íhlutunar stórvelda. Sjálfstæðisflokk- urinn berst gegn útþenslu heims- kommúnismans og varar við tilraunum áhangenda hans bæði utan og innan landamæra íslands til að koma hér á landi á því þjóðskipulagi, sem hneppir þjóðir í fjötra, stefnir að því að uppræta menningu þeirra, lítur á kristna trú sem andstæðing og breytir blómlegum byggð- um í fátæktarhéruð í nafni Marx og Leníns. Landhelgismálið Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið aflvaki þjóðarinnar í sókn hennar eftir yfirráðum yfir auðlindum í hafinu og á hafsbotni. Öll þýðingarmestu skrefin í landhelgisbaráttunni hafa verið tekin að frumkvæði sjálfstæðismanna eins og staðfest hefur verið í baráttunni fyrir 200 mílna yfirráðunum. Sjálfstæðisflokkurinn vill, að staðinn verði vörður um það, sem áunnist hefur að þessu leyti. Af hyggindum og festu verði tekist á við þau ágreiningsmál, sem enn eru óleyst, þar með talin hafsbotns- málin, og það haft að leiðarljósi að fórna ekki meiri hagsmunum fyrir minni í bráð og lengd. Með hliðsjón af hinu víðfeðma yfirráðasvæði íslendinga, sem er á hafinu um 7 sinnum stærra en landið sjálft, er brýnt að stjómmálalegar forsendur ráða mótun þeirrar stefnu, sem fylgt verður í starfi Landhelgisgæslunnar. í því tilliti er nauðsynlegt að hafa hugfast, að eftirlit gæslunnar teygir sig yfir svæði, sem skiptir mjög fniklu í hernaðarlegu tilliti. Efnahagsmál og viðskipti Alþjóðasamvinna um efnahagsmál verður sífellt þýðingarmeiri. Aðild ís- lands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og viðskiptasamningur landsins við Efnahagsbandalag Evrópu tryggja landsmönnum greiðan aðgang að mikils- verðum mörkuðum. íslendingar eru í hópi þeirra þjóða, sem einna mest eru háðar viðskiptum við önnur lönd. Það ætti því að vera höfuðmarkmið íslend- inga að standa vörð um alþjóðlegt við- skiptafrelsi og sjá til þess, að það verði ekki skert með innflutningstakmörkun- um, tollahindrunum eða öðrum slíkum tálmunum. Fáum þjóðum er brýnna að standa vörð um þessi atriði en íslending- um. Hafa ber í huga, að það kann að vera hættulegt að vera um of háður einum aðila um mikilvæg aðföng eins og olíu. Sérstaklega verður þetta varasamt, þegar sá aðili, sem við er skipt, fylgir stefnu, er miðar að því að nota viðskipti, menningartengsl, vísindasamvinnu og hernaðarmátt með samræmdum hætti í því skyni að auka áhrif sín og völd um víða veröld. í viðskiptum við Sovétríkin er nauðsynlegt að taka mið af þessari staðreynd og því, að einu mikilvægu tengsl þeirra við ísland eru á viðskipta- sviðinu. Þessum tengslum mun Sovét- stjórnin ekki fórna ótilneydd heldur laga sig að þeim kröfum, sem til hennar eru gerðar, og auðvitað ganga á lagið ef ís- lendingar láta eins og þeir eigi einskis annars úrkosta en versla við hana. Sjálfstæðisflokkurinn vill að íslend- ingar gerist aðilar að Alþjóðaorkustofn- uninni (Intemational Energy Agency) eins fljótt og kostur er. Aðild að stofnun- inni mun veita landsmönnum tryggingu gegn alvarlegum olíuskorti og jafnframt aðgang að mikilvægum upplýsingum um olíumarkaði og rannsóknum á sviði orkumála. Harðlega ber að átelja, hvernig núverandi ríkisstjórn hefur tafið framgang þessa máls, þótt frumvarp um inngöngu íslands í þessa stofnun hafi verið tilbúið í tæp tvö ár. Samskipti við þróunarlöndin Vegna hinna almennu frjálslyndu mannúðarviðhorfa, sem setja svip sinn á stefnu Sjálfstæðisflokksins, hefur llokk- urinn sérstökum skyldum að gegna við mótun skynsamlegrar stefnu gagnvart þróunarríkjunum. Aðstoð íslands við þessi ríki hefur verið hlutfallslega lítil, undanfarin ár hefur árlegt framlag til þessara mála numið 0.05 til 0.06% af þjóðartekjum. íslendingar hafa þó skuldbundið sig meðal annars í lögum frá Alþingi, að stefna að því að 1% af þjóðartekjum verði varið til að sinna aðstoð við þróunarlöndin. Af siðferðilegum ástæðum ber íslend- ingum skylda til að gera það, sem í þeirra valdi er, til að koma í veg fyrir, að með- bræður þeirra í öðrum löndum og álfum svelti eða líði skort á annan hátt. Jafn- framt skal til þess litið, að hagsmunir íslendinga og þróunarþjóða falla saman með margvíslegu móti. Áhrifum sínum á alþjóðavettvangi eiga fslendingar að beita til að efla stuðning við þróunar- löndin og standa þar með einnig vörð um grundvallaratriði viðskipta- og athafna- frelsis. Meta á hverju sinni, hvaða leið er heppilegust og skilar mestum árangri fyrir þróunarríkin og nýtir best fjármagn og mannafla af íslands hálfu. í því efni mun reynslan af aðstoð íslands við Grænhöfðaeyjar vafalaust verða stefnu- markandi. Samhliða því sem ríkisvaldið hefur þá forgöngu, sem hæfileg og eðli- leg er miðað við skipan þróunaraðstoðar á alþjóðavettvangi, skal með ráðum og dáð hlúð að starfi þeirra aðila og félaga- samtaka sem starfa að þróunaraðstoð. Orkumál og stóriðja Sjálfstæðisflokkurinn fylgir þeirri stefnu, að íslendingar eigi hverju sinni að ákveða, hvernig haga skuli hlutdeild 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.