Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 28

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 28
Landsfundur 1981 með því hafa sagt sig úr Sjálfstæðis- flokknum.” Undir þessa tillögu skrifuðu Geir H. Haarde, Ingibjörg Rafnar, Erlendur Kristjánsson, Ólafur ísleifs- son, Árni Sv. Mathíesen, Baldur Péturs- son, Óli Björn Kárason, Guðjón Kristjánsson, Kristinn Bjömsson, Hreinn Loftsson, Guðmundur Þórðar- son, Anna K. Jónsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Sigurður Óskarsson. Þá tók til máls Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, Garðabæ og kynnti til- lögu til breytinga á 17. gr. skipulags- reglna Sjálfstæðisflokksins, svohljóð- andi: ,,Pingflokkurinn kýs sér í upphafi hvers þings, formann, varaformann og ritara. Að öðru leyti setur þingflokkur- inn sér starfsreglur, sem ílokksráð stað- festir.” Flutningsmenn beggja þessara til- lagna, Geir H. Haarde og Ólafur G. Einarsson, lögðu til að tillögunum yrði vísað til skipulagsnefndar landsfundar- ins. ■Nú tóku til máls Páll Daníelsson, Hafnarfirði, Guttormur Einarsson, Reykjavík, Brynjólfur Samúelsson, ísa- firði, Inga Jóna Þórðardóttir, Akranesi, Ragnar Steinarsson, Egilsstöðum, Helgi Þorsteinsson, Dalvík, sem flutti tillögu um að við 23. gr. skipulagsreglnanna bætist: „Beinn ferðakostnaður mið- stjórnarmanna skal greiddur úr flokks- sjóði”. Flutningsmaður lagði til að til- lögu sinni yrði vísað til skipulagsnefndar. Þá tóku til máls Árni Árnason, Reykjavík og Helena Albertsdóttir, Reykjavík. Fleiri höfðu ekki kvatt sér hljóðs og var fundi slitið kl. 21.00. Þriðji fundur landsfundarins hófst í Sigtúni, föstudaginn 30. október kl. 09.20. Fundarstjóri á þessum fundi var Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík og fundarritarar þau Áslaug Ottesen, Reykjavík og Kári Jónsson, Sauðár- króki. Á dagskrá þessa fundar voru framsögu- ræður um stefnumótun í atvinnumálum og um kjördæmamálið. Fyrstur tók til máls Sigurgeir Jónsson aðstoðarbanka- stjóri og gerði grein fyrir drögum að til- . lögu, sem dreift var með gögnum lands- fundarins um stefnumótun í atvinnumál- um undir heitinu „Leiðin til bættra lífs- kjara”. Annar framsögumaður um þennan málaflokk var Pétur Sigurðsson, alþingismaður, Reykjavík. Að loknum framsöguræðum voru frjálsar umræður um þennan dagskrár- lið. Til máls tóku Kristinn Pétursson, Bakkafirði, Þorvarður Elíasson, Reykja- vík, Jón Sveinsson, Garðabæ, Pétur Blöndal Reykjavík, Ragnar Halldórs- 28 son, Reykjavík, Kristinn Jónsson, Reykjavík, Edgar Guðmundsson, Reykjavík og Ágúst Sigurðsson, Geita- skarði, A-Hún. Fleiri höfðu ekki kvatt sér hljóðs og var tillögunni um stefnu- mótun í atvinnumálum og framkomnum breytingatillögum vísað til atvinnumála- nefndar fundarins. Þá tók til máls MatthíasÁ. Mathiesen, alþingismaður, Hafnarfirði og flutti framsöguræðu um kjördæmamálið. Hann greindi frá tillögum nefndar sem kjörin var á flokksráðsfundi Sjálfstæðis- flokksins í nóvember 1980 og starfi mið- stjórnar og þingflokks að þessu máli. Að lokinni ræðu framsögumanns voru almennar umræður. Til máls tóku Guð- mundur Hansson, Reykjavík og Páll Daníelsson, Hafnarfirði. Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs og var fundi slitið kl. 12.00. Fjórði fundur landsfundarins hófst föstudaginn 30. október kl. 14.30. Þessum fundi stýrði Markús Öm An- tonsson. Á dagskrá þessa fundar var framsaga um stjórnmálayfirlýsingu og almennar umræður. Framsögumaður nefndar þeirrar er miðstjórn hafði skipað til að semja drög að stjómmálayfirlýsingu landsfundarins, Jónas H. Haralz, banka- stjóri, Kópavogi, tók fyrstur til máls. Að lokinni framsöguræðu Jónasar hófust almennar umræður og tóku þessir til máls: Varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra, Reykjavík, Ellert B. Schram, Reykjavík, Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík, Friðjón Þórðarson, dóms- málaráðherra, Reykjavík, Pálmi Jóns- son, landbúnaðarráðherra, Reykjvík, Sigurður Óskarsson, Hellu, Ólafur G. Einarsson, Garðabæ, Ámi Helgason, Stykkishólmi, Jónas Eh'asson, Reykjavík Skjöldur Stefánsson, Búðardal, Styrmir Gunnarsson, Kópavogi, Guðmundur Hansson, Reykjavík, Svanhildur Björgvinsdóttir, Dalvík, Halldór Blöndal, Akureyri og Kári Jónsson, Sauðárkróki. Fundi var slitið kl. 19.00. Fimmti fundur Fimmti fundur landsfundarins hófst í Sigtúni laugardaginn 31. október kl. 11.30, en fyrr um morguninn höfðu starfshópar starfað. Fundarstjóri var en fundarritarar þau Ragnheiður Eggertsdóttir, Reykjavík og Albert Kemp, Fáskrúðsfirði. Til umræðu og af- greiðslu á þessum fundi voru tillögur um breytingar á kosningalögum og kjör- dæmaskipan. Gísli Jónsson, Akureyri var framsögumaður þeirrar nefndar er fjallaði um þessi mál á fundinum og kynnti tillögur nefndarinnar. Síðan tóku til máls Jón Steinar Gunnlaugsson, Reykjavík, Baldur Bjamason, Vigur, ísaf., Gísli Jónsson, Akureyri, Einar Haukur Ásgrímsson, Garðabæ, Elín Pálmadóttir, Reykjavík og Jónas Bjarnason Reykjavík. Fundi varslitiðkl. 12.30. Sjötti fundur Sjötti fundur landsfundarins hófst í Sigtúni laugardaginn 31. október kl. 13.30. Fundarstjóri var Sigurður Sigurðsson, Akureyri, en fundarritarar þeir Pétur Hannesson, Reykjavík og Ellert Eiríksson, Keflavík. Á dagskrá þessa fundar voru umræður og afgreiðsla á stefnumótun í atvinnu- málum og álitsgerðum starfshópa. Fyrst var tekin fyrir ályktun um hús- næðismál og hafði Gunnar Bjömsson Reykjavík, framsögu um hana. Til máls tóku Skúli Sigurðsson, Reykjavík, Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, Reykjavík, Bragi Michaelsson, Kópavogi, Pétur H. Blöndal, Reykjavík, Sigríður Ásgeirsdóttir, Reykjavík, Skúli Sigurðsson, Reykjavík, Haraldur Blöndal, Reykjavík, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Reykjavík, Haraldur Sumarliðason, Reykjavík. Tillögunum í húsnæðismálum var nú vísað aftur til starfshóps um húsnæðismál og fjallaði hann um þau meðan aðrar umræður fóru fram á fundinum. Að lok- inni stuttri umfjöllun voru tillögurnar bomar upp á fundinum með nokkrum breytingum, sem starfshópurinn lagði til og tillögurnar þannig samþykktar sam- hljóða. Þá var tekin fyrir ályktun um um- hverfis- og skipulagsmál og var Gestur Ólafsson, Reykjavík, framsögumaður í því máli. Aðrir sem til máls tóku voru Sigurður Sigurðarson, Reykjavík. Að loknum umræðum voru tillögur starfs- hópsins samþykktar samhljóða. Þá voru teknar fyrir ályktanir í utan- ríkis- og varnarmálum. Framsögumaður þar var Geir H. Haarde. Engar umræður urðu um ályktunina, en hún var sam- þykkt samhljóða á fundinum. Ályktunin um utanríkis- og varnarmál er birt annars staðar í þessu riti. Heilbrigðismál voru næst á dagskrá og hafði Ólafur Örn Arnarson. Reykjavík, framsögu um álitsgerð starfshóps um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.