Stefnir - 01.12.1981, Page 63

Stefnir - 01.12.1981, Page 63
 Dagblöð Sovétríkjanna lúta öðrum lögmálurmen vestr'rén dagblöð. Það er ekki skylda þeirra að veita upplýsingar, og sannleikurinn er ekki mælikvarði þeirra. Þau eru verkfæri embættismanna flokksins og því ber þeim að þjóna og styrkja embættakerfið, án tillits til annars. Blöðunum er ekki aðeins Ieyfilegt að falsa, rægja eða þegja fréttir í hel, heldur er það skylda þeirra, ef það gagnar flokksforystunni. Lygar og fals- anir eru ekki kallaðar sínum réttu nöfnum. Rætt er um sjónar- hól flokksins eða sjónarhól stéttabaráttunnar. Tilgangurinn helgar meðalið. Flokksforystan sker úr um, hvað er satt og rétt, og ákveður, hvað landsbúum ber að frétta um og hvað ekki. Málgagn blaðamannafélags Sovétríkjanna hefur kveðið á um það, með tilvísun í Lenín, að „flokkurinn stýri dagblöð- unum”. Blaðamennska er hluti flokksstarfsins og flokks- áróðursins. „Sovéskir blaðamenn eru iðjusamir aðstoðar- menn flokksins... Það er skylda þeirra að berjast gegn öllu, sem hindrar framgang okkar”.2) Þeir mega ekki í nokkru tilviki skoða atburðina frá sjónarhóli utanaðkomandi aðilja; slíkt væri andstætt meginreglu útbreiðslustarfsemi flokksins. Sjónarmið þeirra og sjónarmið flokksins verða að vera þau sömu. Það er ennfremur skylda sovéskra blaðamanna að fræða starfandi fólk í anda kommúnískrar sannfæringar. Þeir verða að halda við „andúð lýðsins á hugmyndafræði andstæð- inganna” og brýna stöðugt fyrir honum, að „kraftur marxis- mans- leninismans erósigrandi.”3) Sovésk dagblöð gera ráð fyrir, að lesendur þeirra séu ótrú- lega auðtrúa. í ræðu, sem rithöfundurinn Svirski hélt á flokks- nefndarfundi í Moskvu í janúar 1968, skömmu áður en hann var gerður brottrækur úr flokknum, sagði hann: ,,Við höfum vanið okkur svo á að ljúga, að oft reynum við ekki að gera lýgi okkar sennilega.” 4) Að frátöldum örfáum útvöldum hafa óbreyttir borgarar mjög takmarkaða möguleika til að fá Æðstu valdamenn Ráðstjómarríkjanna viðhafnarsteuingu á grafhýsí Leníns. Myndin var tekin 1964 - skömmu eftir valdatökl^ Srésnevs og Kosygins. Frá vinstri eru Malínovskí, Brésnev, Kosygin og Podgorny. Fjölmiðlar ,- Ráðstjórnarríkjunum iuta í einu og öllu valdboði flok ksforystunnar. nánari upplýsingar um það, sem dagblöð birta. Dag eftir dag segja dagblöðin lesendum sínum, að heimsálitið styðji sjónar- mið Moskvu í alþjóðamálum. Máli sínu til sönnunar vitna þau í greinar úr dagblöðum í A-Berlín, Sofíu, Varsjá, Búdapest og Ulan Bator, þ.e.a.s. vísað er í veröld, sem er bundin við Prússland, Saxland, Slesíu, hálfan Balkanskagann og Mongó- líu. Auk þess er öðru hvoru vitnað í flokksblaðið í Nicaragua og ef vel ber í veiði í blað franskra kommúnista Humanite. Sovétborgarar hafa almennt ekki tækifæri til þess að kanna sjálfstætt hvert heimsálitið raunverulega er. Þeir fá ekki að fara til vesturlanda og þeir hafa ekki aðgang að ókommúnisk- um vestrænum blöðum og stundum jafnvel ekki að erlendum kommúniskum blöðum. Málgögn kommúnistaflokka Rúmeníu og Ítalíu, Scinteia og L’Unitá fengust ekki í margar vikur hjá rússneskum blaðasölum eftir innrásina í Tékkó- slóvakíu. í nokkrum hótelum Intourist geta útlendingar þó keypt Time, Le Monde og Neue Zúricher Zeitung. Sovéskir borgarar geta reyndar hlustað á erlendar hljóðvarpsstöðvar, svo framarlega sem útsendingar þeirra eru ekki truflaðar. Krúss jéf lét hætta truflunum 1963 en Bresnéf kom þeim á aftur eftir innrásina í Tékkóslóvakíu. Þeim var þó aðeins beitt gegn erlendum útsendingum á rússnesku. Nú er jafnvel hætt að trufla nokkrar þessara útsendinga. Ekki er ljóst, hvort það er tilviljun eða ritskoðun, sem ræður hvaða útsendingar eru truflaðar. Engin ákveðin stefna virðist ráða þar um. Könnunin náði yfir eftirfarandi blöð á tímabilinu 1. júlí 1968 til 30. júní 1969: Flokksmálgagnið Pravda, blaðið Sovjetskaja Rosija, sem einnig heyrir undir miðstjórnina, stjórnarblaðið Isvestia, verkalýðsfélagsblaðið Trud, málgagn æskulýðssam- bandsins, Komsömolskaja Pravda og herblaðið Rauðu stjörnuna. Aðeins greinar, frásagnir og ljósmyndir, sem snertu innanríkismál Bandaríkjanna voru taldar með og aðeins þær, sem voru ítarlegri en stuttar tilkynningar frá fréttastofum. Greinar og Ijósmyndir frá stríðinu í Víetnam voru m.ö.o. ekki teknar til greina, nema þegar f jallað var um eða sýndar myndir frá mótmælagöngum stríðsandstæðinga í Bandaríkjunum. Greinar og frásagnir um stjórnmálaleg og viðskiptaleg tengsl Bandaríkjanna við önnur lönd voru ekki heldur teknar með. Um þau efni var raunar einungis skrifað á neikvæðan hátt fyrir Bandaríkin. Greinar og frásagnir, sem fjölluðu um fleiri en eitt éfni- t.d. lögregluogkynþáttaárekstraeðaeymd ogafbrot - voru skráðir í viðeigandi tlokka, en þó aðeins taldar með einu sinni í heildarfjölda greinanna. Sérhver mynd var aðeins talin einu sinni, hvort sem hún birtist oft eða ekki. Ég taldi 188 myndir og var tæplega helmingur þeirra, eða 79, af lögregluþjónum við störf. Flestar voru af lögregluþjón- um, þar sem þeir voru annaðhvort með kylfur á lofti eða að berja fólk með kylfunum. Hinar sýndu lögreglumenn vopnaða skotvopnum, vatnsbyssum og lögregluhundum eða þá, að hún var að slá einstaklinga, yfirbuga þá eða flytja á brott. Yfirleitt Bókarkafli Stefnis Dagblöð undir ráöstjórn Grein sú sem hérfer á eftir í þýðingu Ólafs Péturssonar birtist fyrst í Neue Ziiricher Zeitung og síðan í bókinni Die Socialistischen Einungschaften der Sovietunion eftir Roger Bernheim. Bernheim dvaldist í Ráðstjórnarríkjunum á árunum 1967-1970 og kynnti sér „félagslegan ávinning byltingarinnar”. Meðal þess sem hann komst að raun um var algjört ósjálfstœði fjölmiðlanna sem allir eru í raun undir sömu stjórn. Um þetta segir höfundurinn: ,,Blöð- unum er ekki aðeins leyfilegt að falsa, rægja eða þegja fréttir í hel, heldur er það skylda þeirra, efþað gagnar flokksforystunni”. Rangar hugmyndir um ástandið í heiminum Lesendur sovéskra dagblaða fá vegna stöðugra rangfærslna rangar og einhliða hugmyndir um ástandið í heiminum. Ég gerði lista yfir allar greinar og Ijósmyndir, sem sex stærstu dagblöð Sovétríkjanna birtu á einu ári frá Bandaríkjunum. Niðurstaða þessarar könnunar var sú, að sovésk dagblöð gefa kerfisbundið ógeðfelldar upplýsingar um landið. Lesendum er látið skiljast, að Bandaríkin séu grimmdarlegt lögregluríki þar, sem eymd, fátækt, hungur, glæpir og siðspilling séu alls- ráðandi vegna tillitslauss arðráns þeirra, er fara með völdin. 62 voru lögreglumennirnir með hjálma á höfði og afmyndaða andlitsdrætti. Fórnardýrin voru vopnlaus og snöggklædd. í næst stærsta hópnum voru 57 myndir af alls konar andófi. 27 myndir voru af mótmælum gegn stríðinu í Víetnam, en hinar voru af mótmælum stúdentasamtaka gegn fátækt, atvinnuleysi og þess háttar. Kynþáttahatrinu var helguð 41 mynd. Þær voru af fátæktarhverfum negra, andófi svartra og af lögreglunni í baráttu við þá. í fjórða hópnum var 21 myndaffátækt, hungri og atvinnuleysi. Frá geimferðum Appollo 7. 8. 9. og 10. voru 20 myndir og sýndu þær geimfarana og geimskip þeirra. Glæpir og siðleysi voru sýnd á 20 myndum. í síðasta hópnum voru stakar myndir, sem sýndu t.d. bandaríska nasista, barna- lækninn Spock, sem var dæmdur vegna samsæris gegn stríðinu í Víetnam og verstu ýkjur í bandarískum auglýsingum. Fyrir utan geimferðamyndirnar voru engar, sem sýndu Bandaríkin í jákvæðu ljósi. Reyndar gætu andófsmyndimar gegn fátækt, stríði og misrétti verið jákvæðar, ef þær sýndu ekki að jafnaði grimma lögreglumenn fremst á myndunum til að vekja við- bjóð hjá áhorfanda. Frásagnir og greinar voru alls 564. Flestar, þ.e.a.s. 96, fjölluðu um kosningabaráttuna um forsetaembættið 1968. Sumar greinanna sögðu efnislega frá baráttumálum forseta- efnanna. Aðrar voru skrifaðar í þeim tilgangi að sýna sovésk- um lesendum fram á, að kosningar í Bandaríkjunum væru ólýðræðislegar. Álíka margar greinar, eða 93, fjölluðu um glæpi, siðleysi, eiturlyf og annað efni, sem kalla má nafninu ,,sjúkt samfélag”. 74 greinar fjölluðu um eymd, fátækt, hungur og atvinnuleysi, 64 um kynþáttaárekstra og 43 um grimmd lögreglunnar. Um hernaðaranda og nasisma í Banda- ríkjunum birtust 34 greinar, 22 um andóf stúdenta og 20 um Apolloferðirnar. Um áhrifalausan kommúnistaflokk Banda- ríkjanna fjallaði|31 grein, eða helmingi fleiri en um geim- ferðirnar. Samskonar könnun á sovéskum hljóðvarps- og sjónvarps- sendingum, er fjalla um Bandaríkin, mundi leiða til svipaðrar niðurstöðu. Sjónvarpið sýnir einkum eymd, siðleysi, glæpi, kynþáttaárekstra, sjúklega skemmtanafýsn, grimmdarlega lögregluþjóna, grimmdarlega hermenn og grimmdarlega borgara. Inn á milli er brugðið upp myndum frá fangabúðum og útrýmingabúðum Hitlers. Dagblöð og önnur blöð reyna einnig að læða því inn hjá lesendum, að bandaríska þjóðfélag- ið líkist í vaxandi mæli Þýskalandi á dögum Hitlers. Sovésk dagblöð gefa einnig rangar upplýsingar um aðra hluta heimsins. Þegar geðbilaður ástralskur maður, sem ekki var gyðingur, kveikti í Al-Aksa moskunni, hneyksluðust sovésk blöð á þessari ögrun ísraela. En þegar sjálfboðaliðar frá Palestínu ræna flugvélum eða kasta spreng jum inn í erlend- ar skrifstofur flugfélags ísraela, er þess annaðhvort lítillega getið eða alls ekki. Tillögur Bandaríkjanna sumarið 1970 um frið í austurlöndum nær hétu í sovéskum dagblöðum „friðar- átak Egypta."51 Sovésk dagblöð birta hvorki texta né innihald yfirlýsinga erlendra ríkisstjórna né erlendra kommúnista- flokka, ef um er að ræða deilur viðkomandi lands eða við- komandi flokks við Moskvu. Leiðtogarnir í Prag í tíð Dubceks kvörtuðu oft undan þessu, og sama má segja um leiðtogana í Peking. í lok hinnar löngu kveðju, sem kommúnistaflokkur Kína sendi KFS 14. júní 1963, stóð: ,,Hvers vegna birtið þið ekki opinberlega skoðanir okkar fyrst þið álítið þær svona staðlausar og óumræðanlega lélegar? Við höfum birt ykkar skoðanir. Gefið sovéskum félögum og fólkinu í heild tækifæri til að hugsa sjálfstætt og dæma sjálft, hvor okkar hefur rétt fyrir sér.” Það er meginregla sovétkommúnismans, að engin ástæða sé til þess að gefa andstæðingunum orðið, þar sem þeir hafa ávallt á röngu að standa. Flokkurinn lætur þó íbúana vita, hvert álit hans er á málflutningi andstæðinganna. Þegar 63

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.