Blik - 22.04.1947, Side 5
BLIK
ÁRSRIT GAGNFRÆÐASKÓLANS í VESTMANNAEYJUM
Vestmannaeyjum í apríl 1947
HELGA SCHEVINGS
MINN2T
Sunnudaginn 16. marz s.l.
voru 15 ár liðin £rá stofnun Sam-
bands bindindisfélaga í skólum
í tilefni afmælisins var lagður
blómsveigur á leiði Helga Schev-
ings, aðalforgöngumanns sam-
bandsins og fyrsta forseta þess.
Athöfnina framkvæmdi skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans, en nem-
endur skólans og kennarar, góð-
templarar og skátar og fl. bæjar-
búar gengu í skrúðgöngu í
kirkjugarð undir íslenzka fánan-
um. Við leiði Helga Schevings
flutti skólastjóri þetta ávarp:
í dag minnumst við hér við
þetta leiði mikils menningar-
starfs og líknarstarfs, sem stofnað
var til fyrir 15 árum.
Ungi maðurinn, sem hér livíl-
ir, hóf merkið. Skólasystkini hans
liðu undir áþján og ógæfu, sem
er samfara drykkjuskap og ann-
ari óreglu. Þá var það, sem Helgi
Scheving fékk nokkra heilbrigða
æskumenn í lið með sér til þess
að stofna og starfrækja bindindis
félag með nemendur Mennta-
skólans í Reykjavík. Þeir beittu
sér síðan fyrir stofnun bindindis-
félaga með æskulýð annara fram-
haldsskóla.
Þessi æskulýðsfélög mynduðu
síðan með sér samband, sem er 15
ára í dag. Helgi Scheving var
fyrsti forseti þess og fórnaði því
mikilli orku og miklu starfi,
meðan hans naut við. Við misst-
um hann óvænt og skyndilega
tvítugan að aldri og mun það sár
seint gróa þeim, sem þekktu
hann bezt.
Helgi var einn af fyrstu nem-