Blik - 22.04.1947, Síða 31
B L I K
27
F r í s 111 n d a v i n n a
Á umliðnum árum, þegar far-
ið var að berjast fyrir styttum
vinnudegi almennings, var ástæð-
an sú, að gefa almenningi kost á
að lifa meira menningarlífi, en
mögulegt var með striti myrkr-
anna á milli.
Ástæða var til að ætla, að sú
þjóð, sem um þúsund ár „hafði
setið við sögur og ljóð“, tæki
þessu tækifæri fegins hendi. En
allar slíkar áætlanir fóru hrapa-
lega út um þúfur.
Það sem vonað var, að þjóðin
tæki sér fyrir hendur, svo sem
aukna menntun, lestur góðra
bóka, íþróttaiðkanir, eða sem
sagt það, sem líkami og sál gæti
þroskazt af, létu í flestum tilfell-
um á sér standa, en hinnar menn-
ingarsnauðu skemmtanir kaup-
staðanna, göturáp og hvers kyns
óáran flaug eins og eldur í sinu
um landið, í stað þess, sem von-
ast var eftir.
Nú er spurningin sú, hvort
ekki er enn hægt að koma a. m.
k. unglingunum á rétta leið.
Hér í Eyjum er nú hafin bygg-
ing á myndarlegu gagnfræða-
skólahúsi og með því hljóta að
aukast möguleikarnir til aukinn-
ar menntunar, ekki eingöngu fyr
ir þá, sem stunda nám í Gagn-
fræðaskólanum, því tæplega þarf
sá skóli á húsinu að halda allan
daginn, og gæti eflaust léð hús-
næði fræðslustarfsemi, svo sem
kvöldskóla eða námsflokkum,
þar sem mönnum gæfist kostur á
að bæta við til dæmis íslenzku-,
reiknings- og tungumálakunn-
áttu sína, allt eftir þMí, livað
hverjum hentaði. Ekki þarf að
elast um, að slík fræðslustarf-
serni myndi njóta vinsælda hér,
ekki síður en annarsstaðar.
Hinum, sem ekki hafa áhuga,
á hinum hóklegu fræðum,
þarf að kenna einhverja frí-
stundavinnu (Hobby), sem er
við þeirra hæfi, líkt og nú er
kennt t. d. í Handíðaskólanum
í Reykjavík.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að vinna að loknu dags-
verki, sem er fjarskyld hinu dag-
lega starfi, er undir mörgum
kringumstæðum hvíldar ígildi.
Og einmitt þessvegna er það
stórt atriði, er menn verða sér
viti um frístundavinnu, að velja
starf, sem ólíkast því, er þeir
inna af liöndum daglega.
Slíkt frístundastarf er nauðsyn-
legt hverjum einum, sem nokk-
urn frítíma hefur, því, segir máls-