Blik - 22.04.1947, Blaðsíða 28

Blik - 22.04.1947, Blaðsíða 28
24 B L I K S Ö K I N SMÁSAGA EFTIR H. S. QUELCH Reuben Carre óskaði þess stundum, að konan sín dæi. I marga mánuði hafði hún liðið hroðalegar kvalir; hún var orð- in önuglynd og nöldrunarsöm. í hinum löngu veikindum konu sinnar hafði Reuben ailtaf verið þolinmóður og nærgætinn þang- að til kvöldið, sem hann missti stjórn á sér. Hann hafði verið að lesa fyrir hana; bókin var sér- stakiega heimskuleg og hann verkjaði í höfuðið. „Heyrðu annars Vera,“ sagði hann, er hann hafði lokið skáld- sögunni: „Mér þætti gaman að vita, hvort þér væri sama, þótt ég færi út annað kvöld. Ég hef ekki hitt kunningja mína vikum saman, það mundi vera mér dá- lítil tilbreyting.“ Fermd börn: 32 stúlkur, 40 drengir; samtals 72 börn. Hjónavígslur í Vm. 1946: 9 alls. Dánir í Vestmannaeyjum 1946: 8 konur; 14 karlar; sam- tals 22 menn. Frá Bátaábyrgðarfélagi Vest- mannaeyja: Árið 1946: Báta- fjöldi 71. Samtals 5315 smálest- ir. Samtals 1922 hestöfl. Heild- arverðmæti kr. 11.847.250,00. „Tilbreyting," hrópaði Vera, „en ég sem ligg hér dag eftir dag!“ Reuben hugsaði hljóður um þá miskunnarlausu mánuði, er hann hafði lifað í þessu herbergi, auðmýkingu, leiðindi og kvalir. „Ég veit,“ sagði hann, „að þú hefur þjáðst mikið alla þessa löngu mánuði. Ég hefi þjáðst með þér og ég hef gert mitt bezta til þess að hjálpa þér. En ég er heilbrigður og sterkur.“ „Þú hefur auðvitað þefað uppi slóð einhverrar stelpu,“ sagði Vera háðslega. Reuben var af þessu gripinn ofsalegri reiði og laut með kreppta hnefa yfir rúm- ið. Vera rak upp vein og andar- dráttur hennar varð þungur og sogandi. Hún studdi hönd sinni að hjartastað og sagði í hálfum hljóðum: „Gefðu mér eina töflu.“ Eins og í leiðslu gekk Reuben að skápnum og tók fram meðala- glasið. Þessi vanalegi pipar- myntuþefur fyllti hann óbeit. Hann mundi að \rera hafði tekið inn fyrir tuttugu mín. og Sur- gent læknir hafði tekið það skýrt fram, að undir engum kringum- stæðum mætti hún taka inn

x

Blik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.