Blik - 22.04.1947, Page 32

Blik - 22.04.1947, Page 32
28 B 1.1 K hátturinn: „Betra er illt að gjöra en ekki neitt“. Ákjósanleg frístundavinna er til dæmis: Listiðnaður hverskon- ar, bókband, tréskurður, teiknun útvarpsvirkjun, ljósmyndavinna o. fl. Til allrar eða flestrar frístunda vinnu þarf erlend efni og nú sem stendur er mjög erfitt að fá slík efni, vegna gjaldeyrisvandræða. Það er aðeins ein spurning af mörgum, hvort gjaldeyri þjóðar- innar væri öllu ver varið, þótt keypt væri efni til frístunda- vinnu í staðinn fyrir nokkurn hluta þess áfengis sem árlega er hellt yfir þjóðina. Búast mætti við því, að það fækkaði brennivínskrónunum, sem í ríkissjóðinn fara, en til að vega upp á móti því tjóni, má gera ráð fyrir, að landið eign- aðist heilbrigðari æskulýð, sem hverju landi er nauðsynlegra en nokkrar milljónir króna fyrir brennivínsokur, en auk þess myndi þessi breyting á innflutn- ingi ríkisins gera það að verkum, að útgjöld ríkisins til lögreglu og fangelsishalds gæti minnkað allmjög. Hér að framan er aðeins lítil- lega bent á leið til að forða börn- um og unglingum af götunni. Þessi leið er nú mjög fjölfar- in víða um heim, og til marks um, að hún á hljómgrunn meðal íslenzku þjóðarinnar er það, að á undanförnum árum hafa flutzt hingað frá Bandaríkjun- um tímarit, sem fjalla um þessi efni, og það er hrein hending, ef slík tímarit eru ekki uppseld innan fárra daga frá því þau koma í bókabúðir. Margir merkir uppeldisfræð- ingar telja Hobby-leiðina heilla- vænlega til andlegs og líkamlegs þroska fyrir börn og unglinga. Hér er verk að vinna fyrir þá, sem vilja íslenzkum æskulýð vel. ng SPAUG fært úr stíl í stílinn. Eitt af innyflum mannsins er samvizkan. Hún er mórauð í flestum. * I Vestmannaeyjum eru til hús- dýr, sem heita kanínur, sem hvorki mjólka né verpa eggjum. Þær eru ferfætt dýr með stór eyru og skott á rassinum. í Reykjavík ganga kanínurnar á tveim fótum. Þær hafa engin eyru en hafa loðin skott á baki og brjósti og eru notaðar handa hermönnum. * Aðalsmenn stunda aðallega kontóristastörf og annað þ. u. 1.

x

Blik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.