Blik - 22.04.1947, Page 36

Blik - 22.04.1947, Page 36
32 B L I K SPAUG Kaup kaups. Mark Twain fór eitt sinn að fá lánaða bók hjá vini sínnm, sem tjáði sig fiisan til þess að lána honum bókina, en hann yrði aðeins að lesa hana í sínu húsi, þar eð hann hefði þann sið að lána ekki bækur út úr bóka- safni sínu. Nokkrum dögum seinna ósk- aði sami vinur Mark Twain’s að fá lánaða sláttuvél hjá honum. ,,Það er alveg sjálfsagt, en þú verður bara að nota hana hér, þar eð ég lána hana aldrei út af lóðinni“, svaraði Mark Twain. * Sagt er að Noel Coward hafi eitt sinn sent bréf til tuttugu manna í London, sem hljóðaði svo: „Allt er komið upp, flýið á meðan hægt er“. Allir þessir tuttugu fóru skyndilega burt úr borginni. * Abraham Lincoln hafði sagt nokkur vingjarnleg orð um ó- \ini sína. Kona nokkur spurði þá: „Hvers vegna talið þér vel urn óvini yðar, þegar þér ættuð lield- ur að útrýma þeim?“ „Já, en kæra frú, útrými ég þeini ekki, þegar ég geri þá að vinum mínum?“ Hermaður frá Aþenu var halt- ur á öðrum fæti og hlógu félag- ar hans í hersveitinni að hon- um. „Eg er hér til að berjast, en ekki til þess að hlaupa“, svaraði hann. * Jón við nrjög grannan mann: „Þú ert eins og mjór nagli, sem vantar á bæði oddinn og hausinn“. * Monsúnar eru vindar, sem blása úr öllum áttum. * Úr stíi í stíhnn: Úr beinunum fáum við lýsi og beinamjöl en mikinn grút úr lifrinni. Til umhugsunar: Viljirðu komast hjá aðfinnsl- um, þá segðu ekkert, gjörðu ekk- ert og vertu ekkert. Samt ertu eitthvað. Hvað? Við þökkum öllum, sem gefið hafa ársritinu greinar eða skýrsl- ur til birtingar. Einnig þökkum við þeim, sem auglýsa í blaðinu og veita okkur þannig fjárhags- legan stuðning. Ólafur Gránz, teiknikennari skólans, teiknaði myndina á kápu og kunnum við honum beztu þakkir fyrir. Útgáfustjórnin.

x

Blik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.