Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Side 9
7
1881
fyrir kulda á þessum harða vetri. Flest börnin, sem veiktust, urðu að liggja í
vondum herbergjum, þar sem hiti fór ósjaldan niður fyrir frostmark. Skottulæknar
stunduðu marga sjúklinganna, og tók einn við af öðrum, eins og algengt er í lang-
vinnum sjúkdómum á íslandi. Talsverður manndauði varð af völdum veikinnar.
10. læknishérað. Gekk hér eins og annars staðar og var allskæður. Engir full-
orðnir eða stálpaðir létust þó af honum, heldur aðeins fá börn, yngri en 2 ára.
11. og 12. læknishérað. Kikhóstinn breiddist út um bæði læknishéruðin. Veikin
var mjög skæð, einkum á ungbörnum á fyrsta ári, eins og eðlilegt er, þar sem
híbýlum manna er svo mjög ábótavant, hvað snertir gott andrúmsloft og hlýindi,
og þar að auki vantar mikið á, að hreinlæti og aðhjúkrun sé í nokkru lagi. Þó var
það ekki sjálf veikin, heldur lungnabólga, bronchitis capillaris og aðrir brjóst-
sjúkdómar, sem bættust við og riðu sjúklingunum að fullu.
13. læknishérað. Kikhóstinn tók hér bæði fullorðna og börn, en varð þó ekki
banvænn neina fyrir hin síðarnefndu. Af þeim dóu, það ég veit, 11, en þau hafa
að líkindum verið miklu fleiri, þar eð margir ekki vitja mín, en fara til hómópat-
anna, sem hér flórera ekki síður en annars staðar.
14. læknishérað. Kikhóstinn fluttist að norðan í maímánuði og hefur haldizt
við til þessa tíma. Engin börn hafa samt dáið úr honum nema á fyrsta ári og
þó örfá.
15. læknishérað. Kikhósti gekk um haustið, aðallega í sveitum, en í fjörðunum
voru skráð aðeins 11 tilfelli.
6. Taugaveiki (febris typhoidea).
Veikin stakk sér niður víðs vegar á landinu og var í engu frábrugðin venju-
legum háttum sínum. Hennar er getið í 10 héruðum.
2. læknishérað. Stakk sér niður, en var mjög væg. Sumir lágu aðeins 7—8
daga, en aðrir 2—3 vikur. Notað var til skiptis í byrjun aperientia og emetica
og síðan mixt. ac. mineral. til inntöku. Þar sem niðurgangur fylgdi, hef ég mest
notað tinct. cascarillae og tinct. aurantii aa með ofurlitlu af vin. theb. crocatum.
4. læknishérað. Þegar leið á sumarið, tók að stinga sér niður diarrhoea og
gastroenteritis, sem úr varð um haustið venjulegur taugaveikisfaraldur. Hann hef-
ur þó haldið sér við suðausturhluta héraðsins, en síðan í nóvember hefur hann
tekið nokkrar fjölskyldur í verzlunarstaðnum, þar sem góður jarðvegur er fyrir hann.
6. læknishérað. Seint á árinu kom upp taugaveiki í tveimur verstöðvum, en
var væg og breiddist ekki út þaðan.
9. læknishérað. Taugaveiki, er sagt, að hafi komið upp á einum bæ.
10. læknishérað. 5 tilfelli, enginn dó.
11. og 12. læknishérað. Kom á einn bæ í 11. héraði, og lögðust 3 eða 4. í
húsi í kaupstaðnum lögðust 7, og dóu 2.
15. læknishérað. 31 tilfelli typhoidfeber, flest fremur væg.
11. læknishérað. Stakk sér niður í júlí og ágúst. Af 15 sjúklingum, sem leituðu
læknishjálpar, dó 1 (?).
18. læknishérað. 10 tilfelli.