Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Side 20
1882
18
2. Mislingar (morbilli).
2. læknishérað. Mislingar hófu göngu sína í héraðinu í byrjun júní og geisuðu
til ágústloka. Margir fengu upp úr þeim þrálátt lungnakvef, sem dró inenn til dauða
fyrr eða síðar. Ófáir þeirra, sem lifðu af, lágu 3—4 vikur. í sumum var veikin þó
mjög væg, svo að þeir lágu aðeins 2 eða 3 daga. Faraldur þessi var mannskæður,
einkum á fólki frá 20—36 ára. Sumir voru mjög Iengi að ná sér vegna þráláts niður-
gangs, sem fylgdi í kjölfarið. Við mislingunuin voru í byrjun notuð svitaaukandi
meðul í sambandi við mixt. acida mineralis, en við lungnakvefinu mixt. chloret.
ammonii og eathersaft handa börnum. Ef hóstinn var harður og þurr mixt. paregor.
expector. eða syrup. mineralis. Til að róa sjúklingana var ýmist notað syrup. morphii
eða pulv. ipecacuanh. thebaica. Við niðurganginum auk viðeigandi fæðis cascarilla
í sambandi við opium.
4. læknishérað. Mislingarnir, sem geisað hafa um allt land, komu bæði með
fiskimönnum og póstskipinu. Ekki var til þess að hugsa að stöðva þá, þar sem ekki
var hægt að einangra hina sjúku. Faraldurinn var áreiðanlega miklu heiftarlegri en
hann á að sér að vera í öðrum löndum. Hættulegustu fylgikvillar voru heila- og
brjóstsjúkdómar. Langflestir fengu ákafan og sérstaklega langvinnan, oft blóðugan
niðurgang, sem reið sjúklingunum stundum að fullu eða lék þá svo grátt, að þeir
verða lengi að ná sér. Mest dó af börnum innan 2 ára. Einkum kvað barnadauðinn
hafa verið óvenjulega mikill kringum Jökulinn, þar sem fólk er annars vant mildum
barnadauða, jafnvel miðað við það, sem gerist á íslandi. Barnshafandi konur urðu
sérstaklega hart úti í veikinni. Hóstinn olli því, að annaðhvort losnaði allt eggið eða
himnur sprungu, og fæðing gat farið af stað, hvenær sem var á meðgöngutímanum.
Mislingarnir hafa krafizt fjölda mannslífa, en ekki er nóg með það. Þeir hafa orðið
skæðastir börnum og fólki á bezta aldri. Þess vegna er það að mínu áliti skilyrðis-
laust heppilegra, að þeir verði hér landlægir, ef hægt væri að stilla svo til.
5. læknishérað. Mislingasóttin fluttist hingað og breiddist smám saman út, og
munu flestir hafa lagzt seinni part júní og í júlí. Allir þeir, sem eigi höfðu náð
35 ára aldri, veiktust, áð undanteknum tveim heimilum. Þess utan veiktist sumt
eldra fólk, sem sloppið hafði hjá sóttinni 1846. Greindir menn sögðu mér, að þeir
hefðu séð 3 börn fæðast með mislingablettum. Börnin fæddust á sama degi og
mislingarnir komu út á konunum og voru öll meira og minna ófullburða. Stadium
prodromonum var hjá mörgum ekkert að sögn. Hjá fleirum byrjaði sjúkdómurinn
§em catarrhal-feber, Iaryngo-bronchitis (hósti), catarrh af slímhimnunni í nefinu,
conj unctivitis með photophobia. Enanthem í os tók ég ekki eftir. Af komplikationum
sá ég aðeins blenorrh. conjunctivitis, sem hélzt injög lengi við á sumum, en aldrei
keratitis ulcerosa eða iritis. Álíka almennur var catarrh af tuba eustachii með
heyrnardeyfu með suðu fyrir eyrum, stundum oftar „hellu“ fyrir eyrum. Aðrar
komplikationir sá ég eigi, því hina hættulegu bronchopneumonia, sem margir fengu
og sem að minu áliti drap flesta af þeim, sem dóu, skoða ég fremur sem afleiðing
eða eftirsjúkdóm, sem og diarrhoean, sem enginn fékk um þær mundir nema eftir
afstaðna mislinga. Ég sá flesta þá sjúklinga, sem dóu af þessum eftirsjúkdómum,
og að mínu áliti dóu flestir þeirra af bronchopneumonia og hypostatisk pneumonia,