Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Qupperneq 24
1882
22
meðgöngutímans ólu börn sin, meðan á sjúkdóinnum stóð, og þá vanalega and-
vana.
20. læknishérað. Mislingarnir byrjuðu hér um 25. júní, en voru að mestu um
garð gengnir í byrjun ágústmánaðar. í júlímánuði stóð veikin hæst. Voru þá stund-
um um 200 sjúklingar veikir í einu. Mjög var sóttin þá mögnuð og illkynjuð, og
voru henni samfara alls konar kvillar og fylgiveikjur, er taldar eru að mislingum
fylgi, nema rotnunarveiki. Þannig fylgdi þeim lungnabólga, lungnapípnabólga, augna-
bólga, hlustarverkur og bólga í hlustinni, ákafur höfuðverkur, ýmist samfara mikl-
um svefni eða oftast svefnleysi, hálsbólga og niðurgangur. Alls veiktust hér 360
manns (af 550 íbúum), en 11 dóu. Um meðferð mina á veikinni er fátt að segja.
Ég viðhafði hina venjulegu meðferð (eftir bókum). Ég sá mjög mikið gagn af upp-
sölum, stunduin itrekuðum, er ég gaf þegar í stað, er brydda tók á brjóstþyngslum.
Einnig virtist mér, að ég sæi góðan árangur af ammonium carbonicum.
3. Skarlatssótt (scarlatina).
Aðeins getið í einu héraði.
15. læknishérað. Eins og við mátti búast, hætti flekkusóttin ekki í fyrra, heldur
hefur sjáifsagt verið uppi, þótt ekki fréttist annað hingað en það væri hálsbólga
(diphtheritis), sem fleiri börn dóu úr.
4. Barnaveiki (diphtheritis et croup).
Veikinnar er getið í 7 héruðum og í tölum tilgreind 23—24 börn, sem hún hafi
orðið að bana, en ekkert verður um það vitað, hve mörg börn hafi raunverulega
dáið úr henni.
2. læknishérað. Af croup og diphtheritis komu fyrir aðeins 2 tilfelli, bæði banvæn.
5. læknishérað. Diphtheritis 9, croup 5—6 og mors í öllum þeim tilfellum.
6. læknishérað. Fremur illkynja barnaveiki gekk um haustið og varð þó nokkr-
um börnum að bana. Hún virðist orðin landlæg í þessu héraði, því að varla líður svo
ársfjórðungur, að hún stingi sér ekki niður.
10. læknisliérað. 1 tilfelli. Mors.
11. læknishérað. Diphtheritis og croup hafa stungið sér niður hingað og þangað
og tekið eitt og eitt barn á bæ. 11 börn dóu, þar af 4 á einum bæ.
15. læknishérað. Croup 5, 3 dóu.
20. læknishérað. Diphtheritis á nokkrum, köfnunarbarnaveiki (croup) á ein-
um, sem dó.
5. Kikhósti (tussis convulsiva).
Getið aðeins í 2 héruðum, leifar af fyrra árs faraldri.
6. læknishérað. Kikhósti hefur verið í 3 sóknum, þar sem hann hefur ekki
gengið undanfarin ár, en hefur ekki haft mikil áhrif á dánartölu.
15. læknishérað. Gekk um Berufjörðinn í ágúst, en mun hafa verið nokkuð
almennur í Skaftafellssýslu í vor.
J