Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Page 28
1882
26
kennt sjúkdóms þessa fyrir 6 árum, og fór hann svo í vöxt, að þá er hún leitaði sér
læknishjálpar, var neðri rönd lifrarinnar að finna 2" fyrir ofan efri rönd grindarholsins.
Ég viðhafði bruna, og náðist sullurinn, en nokkru seinna fékk hún bólguþrymil undir
hægra rifjahylki og í báða framhandleggi. Gerði ég þá incisio í alla þessa þrymla, og
tæmdist út nokkuð af illalyktandi pus. Síðan fékk hún hósta og þyngsli fyrir brjóstið,
og var expectorat purulent, einnig mjög illa lyktandi. Þetta hélzt í nokkra daga. Síðan
smáþyngdi henni, þar til hún dó af hypostatisk pneumonia. Section: Lifrin var á
nokkrum stöðum föst við undirlífsvegginn. Með því að gera incisio í hana kom út
pus, og var hún öll hægra megin infiltreruð með því, en í gegnum diaphragma var op
upp í hægra lunga, og var allur neðri partur þess destrueraður, og í hilus pulmonis
var mjög stór sullur.
11. og 12. læknishérað. Nokkrir sjúklingar með sullaveiki. Engin aðgerð fram-
kvæmd.
15. læknishérað. Af krónískum veikindum kom eins og vant er sullaveiki oftast
fyrir, alls 39 sjúklingar. Hjá 1 af þessum var mjög mikil og langvinn gula samfara
veikinni. í 3 tilfellum sprungu sullirnir og gengu niður, hjá 3 opnuðust þeir inn í lungu,
hjá 2 út í holið og olli peritonitis, og á 1 gróf út um abdominalvegginn, og gekk lengi
gröftur út um þetta op. Haemoptysis kom fyrir hjá 5 sjúklingum, og er það víst, að
hjá 3 stóð hún í sambandi við sullaveiki.
18. læknishérað. Stakk á 2 sullaveikisjúklingum, annar dó, en hinn varð heill
heilsu.
19. læknishérað. Stakk á sullaveikri konu, sem dó 3 mánuðum síðar.
20. læknishérað. Nokkrir eru hér sullaveikir, en engir á því stigi, að hand-
læknishjálp verði eða þurfi þar við að beita að svo stöddu.
5. Kláði (scabies).
Tilgreind i tölum aðeins 34 tilfelli í 2 héruðum.
18. læknishérað. Kláði hefur ekki verið algengur hér, en eftir að mislingarnir
hættu, hef ég fengið fjölda slíkra sjúklinga.
20. læknishérað. Fáein tilfelli.
6. Geitur (favus).
Tilgiæind 3 tilfelli í 15. héraði, en ekki getið annars staðar.
7. Krabbamein (cancer, sarcoma).
9. læknishérað. Tumor mammae (cancer?) 1. Sjúklingur var gömul kona og
var því ekki skorin. Hún dó.