Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 29
27
1882
C. Ýmsir sjúkdómar.
Brjóstveiki.
9. læknishérað. Læknir tekur fram, að langvinn bronchitis og emphysema sé
mjög algengt á íslandi og hyggur, að þessum sjúkdómum sé oftast til að dreifa,
þegar menn látast úr lungnasjúkdómi. Hann vekur athygli á því, að tiltekin störf,
t. d. að hrista hey, séu likleg til að valda emphysema.
11. læknishérað. Meðal almennustu langvarandi sjúkdóma er brjóstveiki komin
af myglu í heyi (höasthma) hjá mönnum, sem hafa fengizt við heyútlát.
Kviðarmein (abscessus abdominalis).
15. læknishérað. Sjúklingur hafði verið í fjallgöngu og var að reka fé heim til
sín. Þurfti hann að hlaupa fyrir kind og fann þá allt i einu mjög mikið til vinstra
megin í abdomen eins og snöggur og sár stingur væri eða eitthvað hefði slitnað,
og hann gat með naumindum dregizt heim. Nú bólgnaði holið að utan vinstra megin
neðanvert við naflann, og kom þar stór gúll. Þegar ég kom til hans, var hann búinn
a!® tiggja í 2 vikur. Gúllinn hafði minnkað mikið nóttina fyrir í hóstahviðu, var samt
fluctuerandi enn, hér um bil 2% þuml. í diameter og mikil harka út frá. Hörundið
var með eðlilegum lit. Ég gat hvergi séð merki þess, að framandi líkami hefði
stungizt inn um hörundið eða fundið til þess í gúlnum sjálfum. Af því ég var
ekki viss í diagnosis og mér fannst fluctuationin nokkuð djúp, en ég hafði ekki
allt með mér til að geta gert incision antiseptiskt, lét ég halda áfram heitum
bökstrum. Gerði þá út eftir nokkra daga, og varaði sá útgangur lengi, þangað til
loksins út kom fiskbein 1% þuml. á lengd. Eftir það hætti útgangurinn, og opið
greri fljótt. Af því að menn eru vanir hér að þurrka föt hæði á görðum og fisk-
hjötlum, ímynda ég mér, að þetta bein hafi verið í nærfötum drengsins, og þegar
hann hljóp, rekizt inn í hann.
Móðursjjki.
8. læknishérað. Móðursýki er fjarska almenn veikindi hér meðal kvenfólks-
ins, jafnt gamals sem ungs, og finnst mér þessi veikindi vera hér talsvert tíðari
en annars staðar á landinu.
Skyrbjúgur.
2. læknishérað. Vart varð við skyrbjúg í héraðinu um haustið, enda er hann
allalgengur hér. Við honum nota ég mjög mineralsýrur og acid. citric. crystallisat.,
uppleysta í saft, t. d. syr. aurantii eða syr. rub. aloi.
5. læknishérað. 85 tilfelli, þess utan víst fleiri, sem ég sá ekki. Á honum fór
að bera í apríl, og orsakaðist hann af harðlifi fólks um þær mundir og fátækt
manna. Fólk varð á sumum bæjum í Suðurfjarðahreppi að lifa eingöngu á grautum
úr höfrum og söltuðum fiski, viðbitslaust. Kýr voru gagnslausar, steingeldar og
víða skriðhoraðar, bændur heylausir, en enginn gróður kominn. Á þeim bæjum,
þar sem enn var til hey og kýr gátu því mjólkað, varð ég alls eigi var við scorbutus.