Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 50
1884
48
4. læknishérað. Margir með sullaveiki eins og venjulega. Ég viðhafði brennslu
(Recamiers) á 12 ára stúlku, og kom út mikill, grænleitur, gallblandaður vökvi
ásamt firnum af sullblöðrum. Sjúklingur, sem var mjög magur, með gulu og nætur-
svita, hefur nú náð sér svo, að matarlyst er orðin góð, og hún fitnar með hverjum
degi. Gulan horfin, og sullurinn fer minnkandi, en þó gengur út á hverjum degi
seropurulent vökvi með sullblöðrum.
5. læknishérað. Enn hef ég tvisvar gert palliativ punktur, í hvorugt sinn
peritonitis. Batinn er að vísu enginn, ekki radikal að minnsta kosti, enda er eigi
við því að búast.
9. læknishérað. Echinococcus hepatis 11, pulmonum 2, abdominis 1.
10. læknishérað. Echinococcus hepatis 2. Punktur-kanyla látin liggja og við-
hafður stærri og stærri troicart. Bati.
11. læknishérað. Fremur fáa sjúklinga með sullaveiki hef ég séð og enga
opererað.
12. læknishérað. Echinococcus hepatis 14.
15. læknishérað. Eehinococcus 42. í 2 tilfellum sprungu sullir inn i magann
og canalis intestinalis og gengu bæði upp og niður, án þess að sjúklingarnir yrðu
neitt veikari. í 4 tilfellum opnuðust sullir inn í lungun og gengu upp. Haemoptysis
kom alltaf og reconvalescence langvinn. Er einn búinn að liggja 11 vikur, og öðru
hverju ganga sullir upp enn. í 4 tilfellum sprungu sullir inn í kviðarhol. Þrír
sjúklingarnir dóu (2 snögglega). Einn komst af, og kom þar fram hið einkennilega
erythem, rauðir, klæjandi jirymlar í hörundinu. Einn sjúklingurinn var stúlka á 15.
ári, sem í mörg ár hefur þjáðst af þessu og oft sprungið í. Ekki var hægt að operera,
þar sem sullirnir voru svo margir. í 3 tilfellum kom fyrir peritonitis, sem sjálfsagt
er sjaldgæft symptom i veikinni. í 1 tilfelli fannst tumor glöggt og enda sást per
vaginam, eins og hann fannst per anum. Hann fyllti alveg út vagina, þannig að
afturveggur hennar þrýstist fram að symphysis pubis. Orsakaði dysuri, og var mjög
örðugt að koma katheter inn. í abdomen voru fleiri echinococci. í 1 tilfelli sprakk
í vitskertri og óðri konu í umbrotum hennar, og mjög mikið af sullvatni og sull-
húsum tæmdist út per vaginam. í 1 tilfelli myndaðist abscessus hepatis. Mors. Alls
dóu 5 sjúklingar.
17. læknishérað. 77 tilfelli, 3 dóu.
18. læknishérað. 6 tilfelli.
20. læknishérað. Fáeinir munu vera hér sullaveikir, en engir á því stigi, að
handlækningum jmrfi þar við að beita að svo stöddu.
5. Kláði (scabies).
Tilgreind eru í tölum 127 tilfelli í 7 héruðum. Auk þess er kvillans getið i
4 héruðum.
1. læknishérað. Af hörundskvillum koma fæstir til læknismeðferðar. Scabies
og eczemata eru vanalega hinir algengustu.
5. læknishérað. Nefndur, en ekki getið fjölda tilfella.
10. læknishérað. Mjög mörg tilfelli.