Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Qupperneq 78
1886
76
C. Ýmsir sjúkdómar.
Geðs júkdómar.
Með einhvers konar geðveiki eru taldir 15 sjúklingar í 6 héruðum, með hysteria
122 sjúklingar í 6 héruðum, með palpitationes cordis nervosae 17 í 2 héruðum, með
insomnia 7 í 2 héruðum, með hypochondria 7 í 1 héraði, með delirium nervosum 1
og með alcoholismus acutus 5 í 2 héruðum.
Gigtarsjúkdómar.
Með rheumatismus af vmsu tæi eru taldir 85 sjúklingar í 5 héruðum.
Osteitis (beinbólga).
7. læknishérað. Contractura genus kom fyrir í dreng vestan af landi. Osteitis
í neðri enda lærleggsins, og hafði liðurinn smákreppzt. Undir chloroformnarcosis
rétti ég hann alveg og lagði síðan sterkjuumbúðir, og fór hann heim nokkru síðar
og gengur nú við staf eða jafnvel staflaust.
Skyrbjúgur (scorbutus).
1. læknishérað. Þótt skortur hafi verið talsverður á bærilegu viðurværi hér í
umdæminu, hefur mjög lítið eða svo að kalla ekkert borið á skyrbjúg, sem yfir
höfuð að tala kemur hér örsjaldan fyrir.
2. læknishérað. Hefur oft komið fyrir og það enda nokkuð jafnt yfir allt árið.
Talin fram 22 tilfelli.
6. læknishérað. Óvenjumörg tilfelli af skyrbjúg undir vorið vegna lítils afla og
skorts á nýmeti.
10. læknishérað. Nokkur tilfelli, enda er þessi sjúkdómur algengur hér á veturna
og vorin meðal hinna fátækustu, er lifa í þurrabúð og hafa mjög óhentugt mataræði.
15. læknishérað. 6 tilfelli.
III. Fæðingar.
1. læknishérað. Af þeim fæðingartilfellum, sem ég hef orðið að hjálpa, hefur
töng verið viðhöfð sumpart af adynamia uteri (2), sumpart vegna komplikationa,
sem hafa verið hættulegar annaðhvort fyrir mæður eða barn. I þeim tilfellum, sem
ég hef hjálpað, hefur bæði móður og barni heilsazt vel.
4. læknishérað. Tvær tangarfæðingar. Ein kona dó, eftir að hafa fætt macererað
fóstur.
6. læknishérað. Tvær tangarfæðingar.
7. læknishérað. Læknir viðstaddur 4 fæðingar. Engin kona lézt af barnsförum.
9. læknishérað. Ég hef verið við eina fæðingu. Þegar höfuðið og herðarnar voru
fæddar, stóð alllengi á lífinu. Þó var burðinum náð, án þess að opna þyrfti líf hans,
en andvana var hann og ekki hægt að lífga. Herzli og bólgu mikla mátti finna efst
í lífinu hægra megin, og leit út fyrir, að lifrin væri svo mjög ofvaxin. Konunni
lieilsaðist vel.
10. læknishérað. Ein tangarfæðing.