Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Qupperneq 80
1886
78
2. Sjúkrahús.
Á sjúkrahúsinu í Reykjavík lágu alls 45 sjúklingar á árinu, þar af 4 frá árinu
á undan. 32 eru taldir hafa hlotið fullnaðarlæknismeðferð, 4 dóu, og 1 lá til næsta
árs. Legudagar voru samtals 1881 og meðaltalslegudagafjöldi á hvern sjúkling, sem
lifði, var 44,7, en 12 á hvern dáinn.
11. læknishérað. Á sjúkrahúsinu á Akureyri lágu 19 sjúklingar á árinu, 14
þeirra brautskráðust, 4 dóu, og 1 var eftir um áramót. Legudagar voru samtals 659.
Sjúkdómar voru: Abscessus 1, abscessus congestivus dorsi 1, descensus uteri 1,
echinococcus hepatis 2 (1 dó), hysteria 1, icterus 1, mastitis 1, melancholia 1, morbus
cordis 1, myelitis lumbalis c. paralysi 2 (dóu báðir), peritonitis perforativa 1 (dó),
pectoralia 1, pleuritis 1, pneumonia 1, tumor albus genus 1, tumor regionis parotideae
1, vulnus contusum capitis 1.
Fótur var tekinn um mitt læri af manni með tumor albus genus, og naut ég
við það ágætrar aðstoðar yfirlæknisins á danska herskipinu „Diönu“, dr. Nielsens,
og heppnaðist það vel. Af kvenmanni með tumor regionis parotideae skar ég æxli
þetta, og yfirgaf hún spítalahúsið eftir 19 daga dvöl þar, gróin sára sinna. Aðrir
skurðir voru ekki gerðir, er teljandi séu.
3. Mataræði.
2. læknishérað. Matarhæfi manna hefur verið mjög svo óbreytt og hjá mörgum
ónógt, þar sem fæðan hefur mestmegnis eða nær eingöngu verið fiskmeti. Af þessu
hefur leitt, að mikill hluti sjúkdómstilfella hafa verið sjúkdómar orsakaðir af ónógu
og óhentugu matarhæfi, svo sem diarrhoea, dyspepsia og scorbutus. Allt árið um
kring er sama fæðan og hún tilreidd eins: Morgunmatur harður fiskur og brauð með
smjöri (ef til vill), tólg eða bræðing (brædd saman tólg og þorskalifur) og kaffi
á eftir. Kvöldmatur grautur, oftast úr bankabyggi. Um mjólk eða mjólkurmat er
ekki að tala hjá tómthúsmönnum. Kjötmeti sést ekki nema hjá hinum efnuðu.
Kálmeti eða jarðarávextir mjög sjaldgæfir nema eftir hausttíma hjá sumum. Svona
er nú matarhæfinu háttað í góðu árunum og þegar vel gengur, en eftir því sem
minna aflast, fer matarhæfið versnandi. Þá fara menn að borða tvímælt, brauð og
feitmeti fer að verða af skornum skammti og vökvun (grautur á kvöldin) sjald-
gæfari. En í lengstu lög hafa menn kaffi. Verður þá aðalmaturinn fiskur sá, sem
aflast. En nú þegar ekkert aflast og ekkert fæst úr kaupstað, má ímynda sér, hvernig
lífið muni vera.
4. Bólusetningar.
Landlæknir telur lyfjabúðina í Reykjavík hafa viðunandi nægilegt bóluefni.
Þeir fáu læknar, sem minnast á bólusetningar, telja, að lítið hafi farið fyrir þeim.
5. Lyfjabúðir.
Landlæknir skoðaði lyfjabúðina í Reykjavík og telur hana hafa viðunandi
lyfjabirgðir. Otibúið á ísafirði, sem sett var á stofn 1885, var lagt niður á árinu,