Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Page 83
81
1887
5 eða 6 daga. í nokkrum þyngri tilfellum lágu menn þó um hálfan mánuð. Það
mælir einnig gegn skarlatssótt, að eggjahvíta fannst ekki i þvagi. Ég fann eggja-
hvitu í aðeins 1 tilfelli af 22, sem ég rannsakaði.
I. læknishérað. Þetta árið hafa hinir svokölluðu „rauðu hundar“ (erythema
multiforme) gengið yfir. Hið fyrsta tilfelli, sem ég sá, var í Latínuskólanum. Þeir
hafa síðan gengið yfir allt til ársloka. Einkum lögðust þeir á börn og unglinga, en
ég sá einnig nokkur tilfelli, þar sem um fullorðna var að ræða. Flestir, sem lögðust,
kenndu hálsbólgu, og þótt flestir slyppu við þá eftir stuttan tíma, þá áttu þó eigi
fáir óvenjulega lengi í þeim eða afleiðingum þeirra, og á sumum börnum var svo
mikið hreistrið, að hörundið losnaði í stórurn flögum. Á einstaka barni virtist háls-
bólgan vera illkynjuð, og leit eigi út fyrir annað en difteritisskóf væri í kverkunum.
Á stöku sjúkling bólgnuðu hálskirtlarnir mjög mikið.
9. læknishérað. 38 tilfelli. I júlímánuði stakk sér niður hálsbólga, er lýsti sér
i fyrstu í öllu svo sem venjuleg hálsbólga, en brátt kom það í ljós, að hálsbólgu
þessari fylgdi rauður útsláttur, og á eftir kom skinnkast mikið, einkum á unglingum
og börnum. Þessi útsláttur byrjaði með rauðuin blettum, sem smám saman stækkuðu,
Unz þeir sameinuðust og breiddust þannig út um rneira hluta líkamans. Skinn-
kastið eða skinnflagningurinn varð mjög mikill og náði, svo sem auðvitað er, yfir
sama svið og útslátturinn. Veiki þessi var mjög væg, og ég veit eigi til, að nokkurt
hættulegt tilfelli hafi komið fyrir, og því siður, að nokkur hafi dáið úr henni. Þegar
veiki þessi kom fyrst á gang, hélt ég, að hún væri hálsbólga, því mér kom eigi til
hugar, að hér gæti verið að ræða um skarlatssótt. Þegar ég heyrði getið um út-
sláttinn, datt mér í hug, að veikin mundi vera rauðir hundar, en er ég sjálfur sá
útsláttinn, féll ég frá þvi, því að útslátturinn í rauðum hunduin er flekkóttari en
hér átti sér stað og eigi svo rauður og skinnkastið margfalt minna. Auk þess hefði
hálsbólga eigi verið sjúkdómseinkenni á sérhverjum sjúkling í rauðhundasótt. Hinn
einkennilegi rauði útsláttur, skinnkastið og hálsbólgan, sem stöðugt sjúkdómseinkenni,
leiddi mig til að álíta, að veiki þessi ætti skylt við skarlatssótt, jafnvel þótt skarlats-
sótt sé sjaldgæf hér á landi, og tilfellin, er ég hef séð og haft sögur af, voru yfir höfuð
miklu vægari en vænta rnátti í skarlatssótt, eftir því sem henni er lýst.
II. læknishérað. Útbrotaveiki (roseola) hefur gengið allt árið, þó einkum fyrra
hluta þess. Veiktust af henni bæði börn og fullorðnir. Varð veiki þessi talsvert skæð,
einkum á börnum, svo að jafnvel einstaka barn dó úr henni. Veikinni fylg'di oft
hálsbólga bæði að utan og innan. Var bólgan utan á hálsinum stundum rotnunar-
kennd, stundum snerist veiki þessi upp í heimakomu í andliti.
12. læknishérað. (Læknir í 11. héraði gegndi). í 12. læknishéraði urðu minni
brögð að útsláttarveikinni. Bar fyrst á henni síðast í júnímánuði á Húsavík. Geklc
hún svo bæði þar í kaupstaðnum og nágrenninu, en breiddist svo ekki víðar út.
13. læknishérað. Seinustu 3 mánuðina af árinu hafa gengið hér almennt „rauðir
hundar“ (rubeolae), sem hafa að jafnaði byrjað með hálsbólgu (amygdalitis) og
tekið bæði fullorðna og börn, en ekki orðið neinum að fjörtjóni.
Í4. læknishérað. Frá því snemma i september og til þessa hefur gengið rnjög
almennt væg scarlatina á börnum og enda fullorðnum, og þar af nokkur tilfelli af
scarlatina sine exanthemate, einkum í fullorðnum. Rubeolae hefur eigi gengið hér,
6