Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Blaðsíða 91
89
1887
Skyrbjúgur.
Tilgreind eru í tölum 17 tilfelli í 4 héruðum.
6. læknishérað. Af skyrbjúg hafa eins og árið áður komið fyrir óvenjulega mörg
tilfelli seinna hluta vetrar og um vorið.
10. læknishérað. Þessi sjúkdómur er svo almennur hér, að fjöldi manna þjáist
af honum árlega, einkum þó þessi síðari ár. Hið helzta meðal, sem viðhaft er, er
skarfakál.
III. Fæðingar.
I. læknishérað. Fjórar tangarfæðingar.
4. læknishérað. Hef verið við tvær fæðingar, þar sem tangartak heppnaðist
ekki. Önnur konan var primipara, 34 ára gömul, og þar sem fóstrið var dáið, gerði
ág perforation og náði því eftir mjög erfiðan framdrátt. Konan lifði. Hin konan var
45 ára primipara með mjög þrönga grind, og þar sein höfuðið sat fast í grindinni og
vatnið farið fyrir löngu, var ekki hægt að venda. Ég lag'ði því töng á í djúpri narcosis,
en ekki tókst mér að draga barnið fram, þó að ég beitti mér af afli, milli þess sem
ég hvíldi mig. Á þessu gekk röska klukkustund. Ég ákvað því að perforera, þó að
ég væri ekki viss um, hvort fóstrið væri lifandi eða ekki. Ekki var að tala um
keisaraskurð, þar sem ég var einn langt úti á landi, i dimmu og þröngu húsi og' án
allra nauðsynlegustu hjálpartækja. — Framdráttur tókst ekki, þótt læknir hefði
perforerað, og' verður frásögnin ekki skilin annan veg en konan hafi dáið, þótt ekki
sé það tekið beint fram.
5. læknishérað. Retentio placentae 1.
6. læknishérað. Tvær tangarfæðingar hjá primipara vegna hríðaleysis og þröngr-
ar grindar.
7. læknishérað. Læknir var viðstaddur 5 fæðingar, og lifðu allar konurnar.
8. læknishérað. Læknir var viðstaddur þrjár fæðingar til að taka fylgju, og
heilsaðist konunum vel.
9. læknishérað. Læknir var viðstaddur 4 fæðingar. Eg var sóttur til sængurkonu
sökum þess, að fylgjan kom eigi af sjálfsdáðum. Barnið var fætt löngu fyrir tímann
(6—8 vikum). Naflastrengurinn var slitinn frá fylgjunni, holdbrúin var sprungin,
og konan hafði þvagteppu. Ég svæfði hana og reyndi að ná fylg'junni. Legopið var
mjög kiprað saman, því komið var á fimmta dægur, frá því barnið fæddist. Ég
komst fyrst með einn og svo tvo fingur inn í legopið, en eigi tókst að ná fylgjunni,
því að sterkir drættir komu við snertinguna í hringvöðvana, og tókst mér ekki að
sigra þá, og viðhafði ég þó chloroform, svo mikið sem ég frekast þorði. Konan var
allvel frísk og hafði ekkert blóðrennsli. Fór ég svo búinn heim, og hefur mín eigi
verið vitjað í þessu tilfelli. — Yfirsetukonan náði fylgjunni smám saman, en konan
dó skömmu seinna. — Önnur kona dó af barnsförum, að því er virðist úr barns-
fararsótt.
II. læknishérað. Læknir tók 2 börn með töng og dró fram barn í sitjandastöðu.
Konunum heilsaðist vel.