Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Qupperneq 100
1888
98
náði engu út. Þá lagði ég gegnum kviðvegginn skurð um IV2 þuml. á lengd, og ullu
þá út kynstur af graftarkenndum vökva með stórum, rotnuðum sullblöðrum, alls
meira en 30 pottar. Eftir 3 daga hafði safnazt inikið fyrir að nýju, sjúklingur hafði
þrautir i kvið og átti erfitt með öndun. Umbúðirnar voru teknar af, og þegar sull-
blaðra, sem stíflaði opið, hafði verið dregin út, spýttust út 8 pottar af sama vökva
og áður, og stóð boginn í loft upp. Sárið var nú opnað þriðja hvern dag í hálfan
mánuð, en á 15. degi eftir fyrstu aðgerð dó sjúklingur úr bronchitis acuta.
8. læknishérað. Aðeins tveir sullaveikissjúklingar eru að minni vitund hér
í sýslu.
9. læknishérað. 8 tilfelli.
10. læknishérað. 1 tilfelli — punktur og resorption.
11. læknishérað. Tvo sjúklinga hef ég brennt eftir aðferð Recamiers. Öðrum
batnaði, en hinn dó að aflokinni brennslunni úr brjóstþyngslum, er þyrmdu yfir
hann. Höfðu þjáð hann meira og minna um nokkur hin síðari ár. Við þriðja sjúkling-
inn varð ég að viðhafa ástungu, því að hvorki var tími né tækifæri til brennslu.
Einföld ástunga dugði ekki, og kom ekkert út um hana. Neyddist ég því til að
stækka ástungugatið með hníf, og runnu þá út samanhlaupin suJlahús. Sjúklingn-
um varð ekkert meint við og lifir enn, en ekki geri ég mér neina von um bata, því
að auk sullaveikinnar var hann yfirkominn af holdsveiki.
12. læknishérað. Echinococcus hepatis 26, renum 1 (dó).
13. lælcnishérað. Sá sjúkdómur, sem læknir fyrst mætir hér af öðrum sóttum
en landfarsóttum, er sullaveiki. Hana sér maður hér oft og tíðum á ungum sem
gömlum.
lí. læknishérað. Tveir dóu af sullaveiki.
15. læknishérað. Lifrarsullir 29. Ásamt icterus 4, sprakk i abdomen 1, sprakk
í vesica 2, sprakk í lunga 1. Þennan síðasta sjúkling skoðaði dr. Halberg á herskipinu
með mér og áleit þar phthisis og ráðlagði granul. dioscorid., en ég áleit það empyema
og vildi gera punctur. Það var samt ekki gert, því að skömmu á eftir sprakk og
gekk upp. Síðan hefur sprungið og gengið niður. Sjúklingur er að koma til.
16. læknishérað. Echinococcus abdominis 2, hepatis 7, pulmonum 2.
17. læknishérað. Echinococcus 16 (2 dóu). Sá sjúkdómur, sem mest kveður að
hér, er sullaveiki, og er svo um megnið af sjúklingum þeim, er hér leita læknisráða,
að þeir annaðhvort hafa veikina með meira eða minna greinilegum einkennum eða
frá þeim hafa gengið fyrir lengri eða skemmri tíma sullahús og sullavökvi eða
gröftur. Að sullaveikin er svo almenn hér, er engin furða, þar sem hundar eru svo
margir vegna fjárræktarinnar og samblendni við hundana svo mikil, enda margir
illa trúaðir á, að sullaveikin stafi af hundunum. Þó sýnist það nú fremur en áður
vera að komast inn í meðvitund manna, að svo sé, og margir eru þeir, er taka þvi
fegins hendi að fá kamala til að gefa inn hundum sínum.
18. læknishérað. Sullaveiki 5. Sextugur maður fékk harðan, nokkuð stóran
hnút í vinstra nára og tók fyrst eftir honum fyrir 2 árum. Tveimur máuðum áður
en ég sá manninn, fór hnúturinn að sárna, og fylgdi þessu almennur slappleiki.
Upp úr því kom gröftur með þvagi, er lyktaði illa, og þvaglát urðu erfið. Jafnframt
komu „blöðrur“ i þvaginu, og var manninum þá erfiðast um þvaglát. Stuttu eftir að