Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 102
1888
100
Tíðateppa.
17. læknishérað. Tíðir stöðvuðust hjá ungri stúlku eftir ofkælingu. Eftir það
fékk hún regluleg hóstaköst með blóðspýtingi á hverjum degi, og kom stundum
talsvert blóð upp. Hún hafði aldrei haft brjóstsjúkdóm, og Iungun virtust heilbrigð
við rannsókn. Hún var skoðuð 3 mánuðum eftir að blóðspýtingurinn hófst, og var
hún þá mjög máttfarin og blóðlítil, en þegar tíðirnar komust í lag, hætti blóð-
spýtingurinn, og hún hefur verið frísk siðan.
Vansköpun.
20. læknishérað. Hér fæddist vanskapað barn (androgynus). Membrum virile
var mjög lítið, engin þvagrásarpípa í því, þvagpípuopið var neðan við membrum,
eistun voru ekki niðri. Barn þetta dafnaði lítið, var sífellt veikt af lungnapípubólgu,
magaveiki o. fl. og dó eftir um 3 mánuði.
III. Fæðingar.
1. læknishérað. Tangarfæðing 4 sinnum vegna adynamia, rigiditas eða þrengsla.
2. læknishérað. Læknir viðstaddur eina tvíburafæðingu. Náði síðara barninu
með extractio.
3. læknishérað. Ein óeðlileg fæðing. Konan, 40 ára gömul multipara, var komin
í fæðingu 48 klst. áður en ég kom, þar sem ég var á ferðalagi í öðrum enda héraðs-
ins. Vatnið var íarið fyrir löngu, orificium vítt og höfuðið í annarri hvirfilstöðu sat
fast í efra grindaropinu. Grindin virtist nokkuð þröng, hríðirnar, sem aldrei höfðu
verið sterkar, voru orðnar mjög veikar. Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir til
að örva legið, lagði ég töng á, en gat ekki bifað höfðinu, þótt ég togaði af afli.
Þar sem ég var örmagna af ferðalaginu og illa á inig kominn af svefnleysi, lét ég
sækja kollega minn, Ólaf Guðmundsson á Akranesi. Þegar hann kom eftir nálega
7 klst., voru hríðir algerlega hættar. Töngin var lögð á aftur, en án árangurs, þó
að hún lægi ágætlega á og við toguðum af kröftum til skiptis í % stundir með stutt-
um hvíldum. Við gerðum því perforatio á höfði fóstursins, sem var dáið, og með
mikilli fyrirhöfn tókst okkur að losa það og ná því fram. Á öxlunum stóð talsvert.
Konan komst tiltölulega vel frá fæðingunni, fékk létta barnsfararsótt og lá í 6 vikur.
4. læknishérað. Þrjár tangarfæðingar, 1 framdráttur og 1 retentio placentae.
Fylgjan var rotnuð, og konan dó úr pyaeini, rétt eftir að ég hafði náð fylgjunni.
6. læknishérað. Tvær tangarfæðingar.
7. læknishérað. Læknir sóttur sjö sinnum til sængurkvenna, og lifðu allar.
9. læknishérað. Tvær tangarfæðingar. Mæður og börn lifðu. Auk þess sóttar
fyígjur.
11. læknishérað. Við eina örðuga barnsfæðingu hef ég verið. Konan var primipara
og fæðingin fyrsta kollfæðing', höfuðið komið niður í litla grindarhol, óhreyfanlegt
og konan sóttlaus, ekkert lífsmark með fóstrinu. Ég lagði fæðingartöngina á, og
eftir að ég hafði dregið í klukkutíma, tókst mér loks að ná fóstrinu, sem var mjög
stórt, höfuðið aflagað og höfuðbeinin brotin af átakinu. Á fóstrinu sáust rotnunar-
merki. Konan var allhress á eftir og hefur siðan komizt til heilsu, en lengi varð