Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 110
1889
108
1. læknishérad. Echinococcus hepatis 3, integumenti abdominis 1, mammae 1.
Af þeim sjúklingum, sem höfðu blóðspýju, voru 5, sem fyrr eða síðar hafa hóstað
upp sullahúsum.
2. læknishérað. Echinococcus hepatis 9, pulmonum 3. Við eina konu (48 ára)
með stóran sull í neðri rönd lifrar, sem tók yfir alla hægri hlið niður í epigastrium
og náði yfir fyrir linea media vinstra megin, brúkaði ég ástungu. Sullurinn var
farinn að suppurera, og ég tappaði út í hálfan mánuð mikið af grefti með mörgum
og stórum dæturblöðrum í. Þegar þessi sullur var farinn að minnka og tæmast,
kom annar í Ijós niður undir costal-röndinni. Var hann minni, og punkteraði ég
hann líka. Eftir 2% mánuð komst konan á fætur og' er nú orðin alfrísk. Dóttir
hennar, 12 ára, liafði og sull aftan í lifrinni, sem opnaðist inn í pleura og þaðan
upp í gegnum lungun. Hún er nú á batavegi.
3. læknishérað. 8 sjúklingar voru undir læknishendi. 7 konur og 1 karl, en á
engum þeirra fór fram aðgerð. 2 dóu.
4. læknishérað. Tumores abdominis (hydatides?) 37.
5. læknishérað. 1 tilfelli, cura palliativa vegna fjarlægðar og fátæktar.
9. læknishérað. Iáfrarsullir 7 tilfelli.
12. læknishérað. Echinococcus hepatis 33. Tveir dóu.
13. læknishérað. Þrjá sullaveika sjúklinga hef ég opererað, alla með punktur
(canule á demeure). Á öllum var sullurinn frá lifrinni. Tveir sjúklingarnir dóu,
en einn talinn hafa orðið heill heilsu eftir 5 vikna dvöl hjá lækni.
74. læknishérað. Einn maður dó úr meinlætabólgu. Gerði út á þrem stöðum
milli rifjanna og lá í 40 vikur.
15. læknishérað. Echinococcus hepatis 28.
16. læknishérað. Echinococcus hepatis 7, abdominis 2.
17. læknishérað. 8 tilfelli. Af afleiðingum sullaveiki dó einn sjúklingur, bóndi
rúmlega fimmtugur. Krufði ég hann og fann tvær cystur, sem gengu á stilk út frá
neðra fleti lobus dx. hepatis, en hvergi viðloðandi að öðru leyti. Var önnur hér um
bil barnshöfuðstór, en hin þrefalt minni. Kapslar þeirra voru mjög þykkir, sá minni
kalkborinn nokkuð sums staðar. Báðar voru þær fullar af gulu efni grautarþykku,
og í stærri cystunni sáust innan um hér og hvar glæ, gulleit himnulög. Konan dó
með þeim hætti, að nokkuð líktist því sem echinococc-cysta hefði perforerað inn í
cavum peritonei.
19. læknishérað. Sjö sullaveikir sjúklingar, sem allir voru punkteraðir. Af þeim
voru 5, sem allæknuðust. Þetta resultat hlýtur að gefa bendingu um, hvort punktur
sé eins hættuleg og þeir vilja halda fram, sem vilja brúka hinn barbariska
Recamiers-máta.
20. læknishérað. Lungnasullur í einum, sem hefur legið allt árið og komið
mikið upp úr honuin af sullhúsum. Lifrarsullir 2. 1 dó.
5. Kláði (scabies).
Landlæknir segir ldáða vera mjög algengan, sömuleiðis geitur og lús.
Talin fram 204 tilfelli í 9 héruðum.