Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Page 120

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Page 120
1890 118 4. Rauðir hundar (mbeolae). Á skrá aðeins 1 tilfelli. 5. Kikhósti (tussis convulsiva). Á skrá eru 797 tilfelli í 11 héruðum. Veikin var bæði næm og þung, og er ljóst, að fjöldi barna hefur dáið úr henni, þar á meðal varla færri en 200 börn á 1. ári. I. læknishéraS. Þegar inflúenzan var í rénun, tók kikhóstinn við. Greip hann nálega öll börn meira eða minna og varð mjög skæður öllum ungum börnum. Dó hér í bænum nálega hvert ungbarn, sem fékk hann. Hin eldri áttu flest lengi í honum. Á farsóttaskrá eru aðeins 6 börn talin dáin úr veikinni, en landlæknir segir í skýrslu sinni, að í Reykjavíkursókn hafi dáið 46 börn innan 10 ára um haustið, og þótt ekki sé sagt beinum orðum, verður að skilja það svo, að hann telji þau flest eða öll hafa dáið úr kikhósta. 3. læknishérad. Gekk seinna hluta ársins. Var talsvert illkynjaður. í mörgum tilfellum fylgdi honum slæmt kvef og stundum lungnabólga. — Á farsóttaskrá eru 2 taldir dánir. 6. læknishérað. Snemma í ágúst kom upp kikhósti hér i kaupstaðnum, og breiddist hann smám saman út þar og í nærsveitum. Hann tók nærri öll börn í kaupstaðnum og nokkra fullorðna allt að 40 ára gömlum. Dóu úr honum eða fylgi- sjúkdómum hans, einkum lungnabólgu, mörg börn, en þó sárfá eldri en ársgömul. — Ca. 15 taldir dánir. .9. læknishérað. Kikhóstinn byrjaði í september. Hann var vægur í fyrstu, en fór smám saman versnandi og var skæðastur í nóvember, og dó úr honum fjöldi barna. Flestum þeirra varð að bana þungt Iungnakvef, enda dóu einkum börn á fyrsta og öðru ári. Tvö börn fengu krampa og dóu innan sólarhrings. Margt fulltíða fólk fékk veikina. Jafnframt kikhóstanum gekk á stöku stað veiki á börnum, er fremur líktist kveflandfarsótt en kikhósta, en samt hef ég talið þau tilfelli með kikhóstanum. Ýmis brjóstineðul bef ég látið úti á móti kikhóstanum, þar á meðal oxymel scillae, en enga verkun séð af neinu þeirra. Aftur á móti sýndist antifebrin hafa eigi alllitla verkun, einkum þar sem lungnakvef fylgdi. Kjálkalyftingu hef ég og reynt, og má með henni bæla niður hvert hóstakast, eða svo hefur hún reynzt mér, en það er ekki svo auðvelt að lcoma henni við hér á landi til sveita, þar sem sjúklingarnir eru svo langt frá lækni, en fáir hafa lag og kjark til að beita henni, þó að þeim séu kennd handtökin. — 17 taldir dánir. II. læknishérað. Kikhóstinn hefur geisað hér síðustu þrjá mánuði ársins. Veikin varð mjög skæð hér, og hefur fjöldi barna dáið úr henni og fylgisjúkdómum hennar, lungnabólgu og lungnakvefi. Hættast hefur unguin börnum á fyrsta ári verið, en nokkur eldri börn hafa og dáið. 12. læknishérað. Úr kikhósta og inflúenzu eru 2 taldir dánir, úr kikhósta og iðrakvefi 1 og úr kikhósta, iðrakvefi og inflúenzu 2. 13. læknishérað. Byrja$i seint í ágúst og tók fjölda marga, bæði börn og full-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.