Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Blaðsíða 26
24
Bíldudnls. Mislingar bárust hingað frá Patreksfirði í maímánuði.
Voru vægir og breiddust ekki mikið út, og enginn dó.
ísafj. Mislingar, sem gengu hér í árslokin 1928, eru útdauðir um ný-
ár, en berast hingað aftur í inarz og eru viðloðandi fram í ágúst og
deyja þá út. Þeir hafa farið hægt yfir og tiltölulega fáir veikzt, enda
skam'mt orðið á milli faraidranna og flestir ónæmir. 168 tilfelii eru
skrásett. Engir dánir.
Ilesteyrar. Mislingar bárust með vermönnum úr (safjarðarhéraði í
Grunnavíkurhrepp. Fyrsti sjúklingur er skrásettur á. júní og seinna
1 sama hreppi 8 sjúkl., eða alls 9; í Sléttuhrepp kom veikin, en þar
veiktust aðeins 2 (á Hesteyri), enda var gætt strangrar varúðar, að
veikin bærist ekki út. Veikin var yfirleitt væg á öllum sjúklingunum.
Hólmavíkur. Mislingar komu í héraðið í október 1928, gengu í jan.
og febr. 1929, en hverfa alveg snemma í marz. Veikin barst mn allt
héraðið, að undanteknum Bitruhreppi, sem tókst að verjast. AH-margir
þungt haldnir, en enginn dó. Afleiðingar alvarlegar í sambandi við
herklaveiki.
Blönduós. Mislingar að mestu um garð gegnir uin áramót 1928-—29.
Aðeins fá tilfelli í jan. og febr., og svo aftur ný smitun úr öðru héraði
i maí, og enn á ný i júlímánuði.
Ilofsós. Með mislinga eru skrásettir 3 sjúklingar. Það eru síðustu
leifarnar frá árinu áður, því að þeir gengu hér fyrir áramótin.
Siglufj. Mislingar bárust hingað bæði í maí og júnímán., með sjó-
mönnum, en bárust ekki út, sjúklingarnir einangraðir, enda lítill akur
fyrir veikina hér, skömmu um garð gengna.
Suarfdæla. Mislingar voru í héraðinu frá árinu áður, voru all-tíðir
í janúar, en fóru stórum þverrandi úr því, voru alveg um garð gengnir
fyrir miöjan marz. Eitt barn dó úr afleiðingum þeirra.
Akuregrar. Mislingar gengu nokkuð í bænum og nærsveitum fyrstu
tvo mánuði ársins í áframhaldi við faraldur það, er hófst árinu á und-
an í september um haustið. Virtust þeir devja út eftir sjö mánaða
göngu, en þó bar aftur á þeim litillega í maí og júní. Þeir voru vægir
og eftirkastalitlir.
Regkdeela. Mislingar komu í Köldukinn í júlímánuði. Kona frá fsa-
firði var á ferð, smitaði á 2 bæjum. Mislingar komu út á henni sjálfri,
að sögn, er hún kom til Akureyrar. Veikin var væg, enginn dó, engin
slæm eftirköst, og sýktist þó aldrað fólk og veilt. Veikin þekktist svo
snemma, að hún varð stöðvuð, fór aðeins á 3 bæi í Kinn, og kom það
sér vel um hásláttinn, að ckki varð mcira úr, en fjöldi fólks á þessum
slóðum, sem ekki hafði fengið mislinga áður.
Þistilfj. Mislingar komu hingað í einum manni, var hann sóttkví-
aður, og lauk svo þeirri sögu. Annars var gát höfð á skipum eins og
fyrr, meðan til mislinga spurðist.
Segðisfj. 4 tilfelli skráð meðan héraðslæknir var utan (apríi — júní).
Nær öll heimili í kaupstaðnum hafa haft mislinga.
Norðfj. í maímánuði veiktist piltur, nýkominn af Djúpavogi, af misl-
ingum. Sagði hann þá ganga þar. Hann var kaupamaður við útgerð
hér í bænum. Annar piltur og stúlka, við sömu útgerð og líka frá