Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Blaðsíða 31
29
Seyðisfj. Bronchopneumonia. 5 tilfeili skráð, þar af 2 rétt fyrir ára-
mót; vorii þaÖ 2 sárþjáðir sjómenn á enskum togurum, veikin A'ar
mjög svæsin í báðum sjúklinsunum, og dóu þeir báðir fyrstu dagana
í janúar þ. á. (1930).
Vestmannaeyja. Algengustu eftirköst inflúensunnar voru að þessu
sinni, eins og endranær, bronchopneumonia. Sjúklingar með þessum
fy]gi]<villa í verbúðum voru þegar fluttir á sjúkrahús.
2. U m t a k s ó 11 :
Rvík. Lungnabólga: 77 sjúklingar skráðir á árinu. 6 sjúkl. dóu.
Dánartalan því 7,8%. Má heita lág.
Borgarfj. Lungnabólga (pneum. croup.). Einn sjúklingur, gömul
kona. Batnaði.
Ólafsvikur. Lungnabólga stakk sér niður flesta mánuði ársins, en
aldrei nema fá tilfelli í einu. Alls fengu 11 sjúklingar veikina, af
þeim dó einn.
Hofsós. Taklungnabólga liefir lítið gert vart við sig. Alls eru skrá-
settir 5 sjúklingar; 1 dó úr henni.
Svarfdæla. Lungnabólga (pneum. croup.) var lítið eitt tíðari en í
fyrra (7 þá, 9 nú). 4 sjúkliriganna eru úr Ólafsfirði, skráðir af S. M.
Einn sjúklinganna dó, maður urn áttrætt. Einn hinna sjúklinganna,
kona á þrítugsaldri, var mjög þungt haldin er mín var vitjað, á 3.
degi eftir að hún veiktist; hafði hún haft lungnabólgu fyrir 4 árum,
mjög þunga, var þá mjög hætt komin og varð ekki laus við hita fyr
en eftir margar vikur. Nú fékk hún salvochin-injectio einu sinni á
dag í 3 daga, og' var orðin hitalaus og leið vel 2 dögum síðar; var að
vísu ekki víst, að batinn væri meðferðinni að þakka, en þó nokkrar
líkur til þess.
Akureyrar. Auk kveflungabólgu, er slæddist með kvefinu, kom tak-
lungnabólga fyrir 13 sinnum. Alls voru skráðir 8, er létust úr lungna-
bólgu.
Öxarfj. Lungnabólgu fengu 4 um vorið og var enginn faraldur að
henni.
Fljótsdals. Pneumonia crouposa stakk sér niður bæði vor og haust.
Flest tilfellin voru slæm og 1 sjúklingur dó, stúlka urn tvítugt.
Reyðarfj. Af pneumonia crouposa sá ég 5 tilfelli. Öllum batnaði.
Síðu. Taksótt fengu með flesta móti á þessu ári, eða 11 alls, en þar
af fengu 6 hana sem fylgikvilla með inflúensu. Enginn sjúklingur
dó úr lungnabólgu, en einn var mjög hætt kominn. Það var eins og
inflúensulungnabólga væri heldur vægari en venjuleg taksótt, en hafði
þó öll einkenni taksóttar, að því undanskildu, að hitinn fór smálækk-
andi í flestum þeim sjúklingum, þegar bati kom, — vantaði krisis.
Vestmannaeyja. Taksótt bar hér á í febrúar (3) og marz (2), og
aftur í nóvembermánuði (1) og' desember rnest (7). Mér gefast betur
salvochininject., sem ég hefi notað nú í nokkur ár, en optochin. bas.,
enda eru þær alveg hættulausar. Það cr eitt þeirra lyfja, sem ég ekki
tel mig geta án verið við lungnabólgu, og er lið að því lyfi í fjölda
mörg'um sjúkdómum auk taksóttar. Það er í ampullum á 2 ccm., not-
ast í vöðva; framleiðandi þess er Chemisch Pharmazeut. A/G. Bad
Hamburg. Geymist meðalið vel, og sársaukalaust er það svona notað.