Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Blaðsíða 87
85
var ekki heilbrigt og talaði við þessa ljósmóður og aðrar, að þær yrðu
að fullvissa konurnar um það, að þær stofnuðu lifi barna sinna i hættu
með því að vilja ekki hafa þau á brjósti fyrsta misserið. Sama sagði
ég konunum sjálfum og geri enn, þegar tækifæri gefst. Mér virðist
þetta hafa borið árangur. Arið 1919 kom ég í héraðið; af 16 börn-
um, sem ég hafði skýrslur um frá því ári, voru aðeins 7 lögð á brjóst,
eða tæpur helmingur; en af 20 börnum á þessa árs skýrslum eru 17
brjóstbörn, þ. e. rúml. fjórir fimmtu hlutar. Oftast er fljótt leitað lil
læknis ef börnin verða lasin, þó að ekki sé nema um meltingartrufl-
anir að ræða. Ungbarnadauði er hér lítill. Seinustu 10 árin 1909—
1919 (vantar skýrslur 1913), þá er dánartalan 71%, og hefir því mikið
batnað í þeim efnum. Og séu tekin 6 seinustu árin, hafa af 127 lif-
andi fæddum börnum dáið aðeins 2, eða tæp 16 af þúsundi. Þessar
tölur eru miðaðar við börn dáin á fyrsta ári, því við það skilst mér
að dánartala ungbarna verði að miðast; annars hefir aðeins 1 barn
dáið á aldri 1—5, seinustu 6 árin.
Vestmannaeyja. Meðferð ungbarna virðist fara batnandi með ári
hverju síðan ég' kom hingað. Brjóstbörnum fjölgar að mun, því flest-
allar mæður hafa börn sín á brjósti, nema eitthvað sérstakt hamli,
t. d. brjóstberklar, eða mæður mjólki ekki. Fá börn eru skemmri
tíma en 3 mán. á brjósti, venjul. 6—10 mánuði.
8. íþróttir.
íþróttir eru nú mikið iðkaðar í landinu og fer enn í vöxt. Leik-
fimi er kennd i öllum stærri skólum, og í bæjunum flestum eru auk
þess fleiri og færri leikfimisflokkar og íþróttafélög. Við sveitaskól-
ana bagar víðast húsnæðisleysi. Sund er talsvert iðkað einkuin í sam-
bandi við alþýðuskólana í sveitunum en nær oflítið til sjávarplássanna,
sem þess hefðu mesta þörf. Þó eru allvíða sérstakir sundskólar og
vel sóktir.
Læknar minnast lítið á íþróttir og ekki í hlutfalli við það, sem
iþróttalíf er þó i landinu.
Er þetta hið helzta:
IHngcyrar. íþróttafélag er þar 25 ára gamalt. Kennari er ung-
ur iþróttamaður, er lært hefir hjá Buck í Danmörku. Æfingar sniðn-
ar við hæfi hvers þátttakanda. Köld böð á eftir.
Svarfdæla. Sundskálabyg'g'ingunni í Svarfaðardal var lokið á þessu
vori og laugin tekin til notkunar. Var sund kennt þar í vor við mikla
aðsókn og í vetur hafa nokkur hálfsmánaðarnámskeið verið haldin
þar. Leikfimi er lítilsháttar kennd við suma skólana, en engin
sérstök hús eru neinstaðar til þess og lítið um áhöld.
Höfðahuerfis. íþróttir eru nokkuð iðkaðar einkum knattspyrna.
Hefir íþróttafélagið komið sér upp knattspyrnuvelli. Eftir nýjár í
lyrra hélt ég áfram leikfimisæfingum með félagsmönnum.
Vestmannaeyja. Hér eru 2 knattspyrnufélög og stunda unglingar
töluvert mikið útileika vor og suinar. — Sund er kennt og fyrirskip-
að börnum, sem heima eru á sumrum og er að þvi heilsuvörn á sólríku