Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Blaðsíða 78
76
J70. Og svo má lengi telja. Afleiðingin af þessari auknu aðsókn er auð-
sæ fyrir lækninn og fjölskyldu hans: Óhemju óþægindi við matreiðslu
í iitlu eldhúsi, sífelldur ólti við of náið samband sjúklinga, I. d. berkla-
sjúklinga, við heimilið. Héraðsbúum mínum hefir fyrir löng'u skilizt
hið mikla gagn, er sjúkraskýlið veitir, enda má segja, að þeir reyni af
fremsta megni að gera það vel úr garði. Síðastliðið ár var virkjaður
lækur, er rennur skammt frá þorpinu, og framleiðir hann ca. 8 hest-
öfl. Læknisbústaðuririn, ásamt skýlinu, raflýstur. Ennfremur fæst
nægilegt rafmagn til suðu og Ijóslækninga. Greiði ég kr. 500.00 fyrir
þau afnot árlega og' þykist gera góð kaup. Rekstur skýlisins hefir geng-
ið með betra móti í ár. Tekjuafgangur var um 1800 kr. Verður hon-
ur varið til Röntgenáhaldakaupa. Er ákveðið að þau verði keypt á
þessu ári.
Akureyrar. Aðsóknin er minni, 7 legudögum færra en árið á und-
an og' 44 sjúklingum færra en ella hefði verið fyrir þá ráðstöfun
spítalanefndarinnar í júnímánuði, að neita utansýsluberklasjúkling-
um um aðgöngu. Var það gert vegna of mikilla þrengsla, sem um hríð
höfðu orðið á sjúkrahúsinu vegna stöðugs aðstreymis berklasjúkl-
inga langt að, en einkum frá Norð-Austurlandi og Austurlandi. Af
sjúklingum voru: Úr Akureyrarkaupstað 133, úr Eyjafjarðarsýslu, ut-
an kaupst. 143, úr öðrum sýslum 70, úr útlöndum 5. Að meðaltali
voru 52 sjúklingar á dag og dvaldi hver 61 dag að meðaltali. AIls fengu
99 sjúklingar Ijósböð (allt berklasjúklingar) í samtals 3714 Ijóstíma.
Af sjúklingum voru 23, er bjuggu úti í bæ og gengu til ljósa. Hinir
spítalasjúklingar. 27 Röntgenmyndir voru teknar og margar gegnlýs-
ingar gerðar. (Hin nýju Röntgentæki komu fyrst í október).
Seyðisfí. 97 sjúklingar. 26 úr sjálfu læknishéraðinu, 36 útlendingar
(aðallega sjómenn af enskum togurum) og 35 úr öðrum héruðum. 32
eða um V?, af sjúklingunum voru berklaveikir. Eftir að Röntgentækin
komust upp (í september) voru öll beinbrot mynduð fyrir og eftir
repositio. 15 Röntgenmyndir hafa verið teknar og nokkrar gegnlýs-
ingar gerðar. 60 sjúklingar fengu ljósböð á árinu. Sérstaklega góðan
árangur hefi ég séð af ljósböðum við framfaralaus börn.
Síðu. Engin breyting hefir orðið á rekstri sjúkrahússins, og' engin
hjúkrunarkona er fengin ennþá; er það tilfinnanleg vöntun, og gengur
ekki nema í fámennum héruðum, þar sem læknir getur annað því að
líta eftir öllu og hjálpa til við hjúkrun sjálfur.
Vestmannaeyja. Alls á árinu 285 sjúklingar, og legudagar 6503. Árið
áður voru þeir 6090. Nýir sjúklingar á árinu voru 266. Eftir við ára-
mótin 22. Læknar við sjúkrahúsið eru: Héraðslæknir og P. V. G.
Kolka.
Rangárvalla. Sjúkraskýlið starfaði, eins og að undanförnu yfir
vetramánuðina, að september og maí meðtöldum.
II. Sjúkrahjúkrun. Heilsuverndun. Sjúkrasantlög.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Tvö hjúkrunarfélög:
Hjúkrunarfélag Reykjavíkur, sein leigir hjúkrunarkonur
og vökukonur til sjúklinga. Hefir I hjúkrunarkonu og 1 vökukonu.