Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 27
Djúpavogi, veiktust nokkru seinna. 2 Færeyingar fengu líka veikina,
en þeir höfðu heimsótt Færeying, sem var í sömu sjóbúðinni. Sam-
gönguvarúð var höfð. Engir fleiri veiktust.
Ileij8ar[). Mislingasjúklingar eru taldir 65 á árinu, en sú tala er vit-
anlega allt of lág. Vægu tilfellin koma lítt til greina, og í þetta sinn
voru mislingar rnjög vægir. Þeir bárust frá Seyðisfirði í nóv. 1928 og
öreiddust mjög hægt út. Hæst var tala sjúklinga i janúar — 34 —,
en í marz aðeins 6, og eftir það enginn. Mislingar gengu hér 1925—26,
svo allflestir þeirra, sem komnir voru til vits og ára, voru búnir að
Ijúka sér af með þá. Þrisvar fullvrtu aðstandendur sjúklinga, að þeir
hefðu fengið mislinga áður á barnsaldri. Eitt barn dó af afleiðingum
veikinnar (bronchopneumonia), enda var það ekki búið að ná sér
eftir kikhóstann frá því árinu áður. Annars hefir á árinu lítið orðið
vart við eftirköst veikinnar, nema þó nokkrir voru lengi að ná sér
með sjónina. Bronchopneumonia fengu 4, einn dó, eins og áður cr um
getið.
Fáskrúðsfj. Misiingar gengu fyrst i Stöðvarfirði í janúar og febrúar-
mán., og komu þar á allflest heimili, en bárust ekki út fyrir takmörk
hreppsins. Sýktust þar alls 69 manneskjur, 56 í janúar og 13 i fcbrúar.
Sóttin barst hingað í desember 1928 og sýktust þá 7 manneskjur. Far-
aldur þessi var að sögn injög vægur, læknir var aldrei sóttur þangað,
en tölu sjúklinganna hef ég'frá skilríkum manni, þar búsettum. Aftur
komu mislingar upp hér síðast í maímánuði, þá í Búðakauptúni, með
unglingsstúlku, sem fluttist hingað frá Djúpavogi. í þetta skipti sýkt-
ust alls 41. Sóttin var mjög væg og barst ekki út úr kauptúninu.
Rerufj. Mislingar gengu í héraðinu í maí—júlí. Þeir hafa sennilega
borizt hingað með mótorbát frá Seyðisfirði. Margir af skipshöfninni
höfðu ckki haft mislinga og voru af l'jörðum, þar sem veikin hafði
gengið. Veikin byrjaði snemma í maí á Djúpavogi, en breiddist síðan
út um Berufjörð og Álftafjörð. Flestir eru skráðir í inaí, en þá er
undirritaður1) kom hingað, í júníbyrjun, var veikin all-almenn, var
bæði á nokkrum bæjuin við Djúpavog, í.húsum í kauptúninu og
einnig í Álftalirði. Eins og skráin ber að nokkru leyti með sér, veikt-
ist töluvert af fullorðnu fólki. Það, sem sérstaklega er um þessa veiki
að segja, er það, að hún’var yfirieitt væg, enda mjög væg, sem marka
má af þvi, að fullorðið og enda aldrað fólk komst létt út af henni. Af
sömu ástæðu eru ekki nærri allir skráðir, því læknis var ekki vitjað.
Þess má geta hér, að einn hreppurinn, Breiðdalshreppur, slapp við
veikina og hefir varist undanfarið, um margra ára bil. Eru þar fáir
c.ða engir, einnig af eldra fólki, sem hafa fengið veikina, og vilja
hreppsbúar því reyna að vcrjast henni til hins ítrásta, þar scm líkur
eru til, að hún myndi verða alvarleg af þeim sökum.
Siðu. Mislingar gengu í Mýrdalshcraði í janúar, og voru þar engar
varnir hafðar. En hér hagar svo til, að í sumum sveitum héraðsins er
svo langt síðan að mislingar hafa gengið, að aðeins elzta fólkið hefir
fengið þá. Var því mjög óálitiegt að fá þá yfir héraðið um hávetur.
1) Þ. e.: Árni Árnason.