Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Síða 38
Auk fraraangreindra farsótta, sem sérstakar töflur eru gerðar yfir
hér fyrir aftan, geta 'læknar við og við nokkurra fleiri, en að því er
virðist af handahófi og með engri reglu:
Ekthyma contagiosum: Þistilf jarðar 2.
Erythema nodosum: Rvik 8, Hafnarfj. 1, Húsavíkur l(i, Sevðisfj. 1,
Norðfj. 1.
Febris herpetica: Eyrarbakka 1, Akureyrar 1.
Pemphigus neonatorum: Eyrarbakka 1.
Stomatitis: Rvík 13, Flateyrar 1, Siglufj. 7.
Læknar láta þessa getið:
Seyðis/j. Eryth. nod. Eitt tilfelli. Sjúklingurinn hafði einnig pleurit.
Eyrcirbakka. Pemphigus contagiosus var á 2 vikna gömlu barni. Það
fæddist í miðjum ágústmánuði í sumar í nijög lélegum húsakynnum
hér í Flóa, en hreinlæti í góðu iagi eftir kringumstæðum. Fyrsta
blaðra sást á 5.—6. degi. Er ég sá það, voru blöðrur um allan kropp,
sumstaðar runnar saman í stórar blöðrur, eins og eftir mikinn bruna.
Barnið dó eftir nokkra daga. Ég hef aldrei áður séð sjúkdóm þenna
á svo háu stigi, en hann kemur hér all oft fyrir á vægu stigi með fá-
urn strjálum bólum, og' þá sjaldnast vitjað læknis. Barn þetta var full-
burða, er það fæddist og efnilegt að sjá, góð og hreinlát ljósmóðir,
er tók á móti því, og ekki hafði hún orðið vör við önnur tilfelli þessa
sjúkdóms um þær mundir.
Úr graftrarsótt (septicopyæmia non puerperalis) deyja samkv. dán-
arskýrslum ekki færri en 8, en hennar er ekki getið í öðrum skýrslum.
Hið sama er að segja um stífkrampa (tetanus), sem verður einni mann-
eskju að bana.
B. Aðrir næmir sjúkdómar. Krabbamein. Drykkjuæði.
Töflur V, VI, VII, 1—4 og VIII.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1—3.
Sjúklingafjöldi 1921—1929:
1921 1922 1923 1924 1925 192« 1927 1928 1929
Gonorrhoea .. . . 192 198 259 241 258 340 348 407 431
Syphilis . . 30 23 22 20 31 32 34 21 13
UIcus vener. . 7 17 9 1 8 5 5 3 12
L e k a n d a tilfellum fjölgar heldur en óverulega frá fyrra ári, og lítið
gætir sjúkdómsins enn nema í Reykjavík og stærstu kaupstöðunum.
Allmargt er um útlendinga í þessari sjúklingatölu. Er þess getið um
286 sjúklinga, að 41 af þeim hafi verið útlendingar, þ. e. 14,3%.
Sárasóttartilfellunum fer fækkandi hin síðari ár, svo að verulegu
munar. Um 8 af þessum 13 tilfellum er þess g'etið, að 5 af þeirn hafi
verið útlendingar, þ. e. 62,5%. í 4 tilfellum var um að ræða sárasótt
á fyrsta stigi, 3 í Reykjavík og 1 á ísafirði, og voru það allt útlendingar.