Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Side 53
51
bætast við 60 nýir, en 1929 aðeins 13 o. s. frv. Þetta sýnir hve veikin
gengur bylgjótt og er reynsla hér sem víðar sú, að vissar sóttir eins
°g mislingar, kikhósti, mænusótt, inflúensa og kvefsóttir eiga mikinn
þatt i að auka berklana eða skara eldi að þeim, ef svo má segja.
í Akureyrarhéraði dóu úr berklaveikinni 1909—1916 2,1%0, 1917—
1924 2,3%c, 1925—1929 3,5%0.
Af þessu sést, að berklamanndauðinn stóð nokkuð í stað fram að
1924, en frá 1924 er ljóst orðið, að berkladauðinn hefir greinilega
vaxið. Og athugandi er, að við þenna útreikning allan hefi ég jafnan
dregið dána utanhéraðssjúkl. frá. Að þeim meðtöldum var t. d. berkla-
dauði í héraðinu 1929 6%0.
Á skrá eru nú 113 karlmenn og 134 konur, sem skiptast þannig
eftir aldri:
Sjiiklingar 0—20 ára ........................ 72
20—40 152
yfir 40 — ........................... 23
Hin mismunandi sýking eftir hreppum hefir verið svipuð í mörg ár,
þ. e. tiltölulega mest í Saurbæjarhr. og Glæsibæjarhr. eða rúml. 3% i
hvorum þessara hreppa miðað við hreppsíbúa. Þar næst kemur
Skriðuhreppur, þá Akureyri, því næst Arnarneshr. og hinir hrepparn-
ir lækkandi hver af öðrum lítið eitt, en enginn með minna en 2%
berklasjúkl. i hlutfalli við ibúatölu.
Þeir 247 berklasjúkl. sem nú eru í héraðinu skiptast inilli 132
heimila, en aðgætandi er, að þar á meðal eru hin stóru berklaheim-
ili, Kristneshæli með 60 sjúkl. og Akureyrarsjúkrahús með 20 sjúkl.,
annars eru ekki í neinum hluta héraðsins neinn sérlegur munur á
tölu heimila og tölu sjúkl.
Höfðahverfis. Þegar ég kom í héraðið 1924, höfðu 28 sjúklingar
verið skráðir í berklabók, þar af 18 innanhéraðs. Af þessuin 18 eru 7
eftir í héraðinu, hinir dánir eða farnir. Síðan 1924 hefi ég skráð 16
sjúklinga, en aðeins 1 af þeim utanhéraðs. Berklabókin byrjar 1908
en árin 1911 1914 er enginn læknir i héraðinu og enginn sjúklingur
skráður. Ég hefi skráð 15 innanhéraðssjúklinga í tæp 6 ár, en áður
höfðu verið skráðir 18 sjúklingar á 13 árum. Eftir þessu að dæma
hefir veikin vaxið. Á þessum 6 árum hafa 3 af 15 sjúklingunum dáið,
allt börn með meningit. tub. Þung tilfelli önnur en meningitistilfellin
hafa ekki komið fyrir síðan ég kom hingað. Viðvíkjandi útbreiðslu
keniur í ljós, að veikin gerir aðallega vart við sig í einstöku ættum,
eða réttara sagt á einstökum heimilum, hjá sifjaliði og hjúuin, sein
þar hafa dvalið.
lieykdæla. Samkv. berklabók skráðir 1904—1929 47 berklaveikir
héraðsbúar á samtals 31 bæ, og skiptast þannig á bæina :
' Á 4 bæi koma 3 berklaveikir á bæ hvern
— 19 —1 -----------
Venjulega skráðir 1—2 nýir sjúklingar á ári, nema 1907, 1910 og
1914 —- 4 hvert ár, 1918 3 og 1924 11 sjúklingar. Að sjúklingunum