Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 76
74
bergi fyrir starfsfólk, Brunnur undir húsinu. Röntgentæki keypt. Kost-
uðu um 10 þús. kr.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Rvík. Landakotsspítali rekinn sem undanfarin ár. Þar aðall. skurð-
sjúklingar. Margir verða að bíða lengi eftir plássi þar. Það er alltaf
ofsett sjúklingum. Sjúkrapláss eiginlega fyrir 50 sjúklinga, en meðal-
tal sjúklinga á dag 79.
Patrcksfj. Sjúkrahúsið. Aðsókn var svipuð og árið áður. Alls komu
á árinu 46 sjúldingar, þar af 20 héraðsbúar, 4 úr Bíldudalshéraði, 1 úr
Þingeyjarhéraði og 21 útlendingur.
Þingeyrar. í júlímánuði komu loks Ijóslækningatæki eftir langa
mæðu og fleiri ára viðleitni. Rafmagn er hér framleitt af mótorvél,
spennan óvanalega lág, 65 w. Voru lampar fyrir svo lága spennu ófáan-
legir og að margra áliti ómögulegt að smíða þá. Nú hafa þeir loks feng-
ist og ber ekki á neinum vandkvæðum. Þeir hafa reynzt vel og jafnvel
að mun öruggari i rekstri en í nágrannahéruðunum, þar sem spennan
er hærri. Maður hugði gott til þessarar rómuðu nýbreytni, og ekki hefir
mér dulizt árangur af henni í suinum tilfellum. Svo kemur fordæming
hennar eins og þruma úr heiðskiru lofti. Notkun ljósanna verður haldið
áfrain, þrátt fyrir það þótt ríkissjóður hætti að greiða tilkostnaðinn,
og er lítt trúlegt, að þau geri mikið tjón, ef gætilega er að farið. Er það
svo, að Þjóðverjar fordæmi þau eins og Englendingar? Virðist mér eigi
síður ástæða til að taka tillit til þess, sem Þjóðverjar segja um þessa
hluti. Á næsta ári er fyrirhugað að setja miðstöðvarhitun í liúsið og
gera baðklefa með sæmilegum útbúnaði í sambandi við liana. Verður
þá húsið all-sæmilega úr garði gert, að öðru en því, að rúmið er af
skornum skammti. Einkum gætir þess fyrir aukna aðsókn erlendra
sjómanna. Að visu dvelja þeir hér aðeins lítinn hluta árs, sem sé frá
októberbyrjun til febrúarloka, en á því tímabili hefir stundum orðið að
fylla hverja kró vegna þeirra, því illt þykir að vísa þeim á bug'. Þeir
eru og hafa verið aðaltekjulind hælisins, og er eingöngu þeim að þakka,
að afkoma þess hefir verið sæmileg.
Flateijrar. Sólskýli Súgfirðinga starfaði síðastliðið sumar, eins og áð-
ur, undir stjórn Kristjáns A. Kristjánssonar kaupmanns. Alls voru tek-
in þar 1400 sólböð. 64 tóku fleiri en 9 sólböð, 65 færri. Menn byrjuðu
með rúmar 5 mínútur, en uku tímann bráðlega upp í hálfa klukku-
stund, sjaldan lengur, þó æskileg't hefði það verið. Einstaka fóru tvisv-
ar á dag. Siðastliðið sumar var óvenju sólríkt; þrátt fyrir það var sá
tími, sem hæfur var til sólbaða, æði slitróttur. í 12—14 stiga hita eru
sólböðin þægileg; sé hitinn yfir 15 stig, eru smá vindgusur við og við
blátt áfram notalegar. Ummæli almennings eru þau sömu og áður, að
menn verði hressari til líkama og sálar og ónæmari fyrir kvefi og kulda.
Fullorðinn inaður og skýr, með hægfara fibrösa lungnaberkla lýsir
áhrifum sólbaðanna þannig: að síðan hann byrjaði á þeim hafi hann
ekki fundið til gigtar, en áður liefði hún sjaldan við hann skilið; enn-
fremur hafi hann sjaldan orðið illa kvefaður síðan, og þá jafnan losnað
fljótt við kvefið aftur; loks fái hann ekki lengur kuldahroll í sig', þó
hann sé úti í kalsaveðri. Ég hefi séð nokkur börn beinkramarveik, -
og — sennilega jiess vegna með sífellt blóðleysi, kvef og' niðurgangs-