Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 85
83
Höfðahverfis. Áfengisnautn er hér lítil «g mér vitanlega enginn
drykkjumaður til i héraðinu. Helzt vill til að sjómenn geri sér einn
•.glaðan dag“ í vertíðarlok á haustin.
Histilfj. Afengisnautn einhver, ekki her þó á því til muna. Engum
veit ég' vera slíkt til meins, efnalega eða á annan hátt.
Berufj. Ekki hefi ég orðið hér var við drykkjuskap, er talizt geti,
og það má segja héraðsbúum til hróss, að þeir hafa ekki leitað eftir
áfengi hjá lækni.
7. Meðferð ungbarna.
Þetta ár er merkilegt að því leyti, að ungbarnadauði varð minni
en nokkurntíma áður, 43%c, en hafði orðið lægstur 1925 og þá 45,6%„,
og eru nú ekki margar þjóðir, sem okkur standa framar að þessu leyti.
Ekki mun það þó eingöngu vera dyggðum okkar að þakka heldur í
og með heilnæmara loftslagi fyrir smábörn og öðrum staðháttum. Er
við því að búast, að ungharnadauði reynist hér mishærri en í öðrum
löndum flestum. Sum árin erum við lausir við þær farsóttir, sein eru
hættulegastar börnum, t. d. kikhósta, en þegar þær ganga gera þær
aftur meiri usla en annarsstaðar, þar sem þær ganga jafnara yfir.
Annars mun meðferð ungbarna víðast i vel sæmilegu lagi og stór-
syndir ekki drýgðar í þvi efni, nema helzt á þann hátt, að kúldra
hörnin um of inni í hita og loftleysi i stað þess að byrja strax á að
herða þau með útiveru og gera þau á þann hátt ómóttækilegri fyrir
kvefsóttir, sem þeim reynast svo hættulegar, þó að læknar láti þess
ekki sérstaklega getið.
Um 2136 börn, sem skýrslur yfirsetukvenna ná til (tafla 34) er þess
getið, hvernig þau voru nærð eftir fæðinguna, og eru þær hundraðs-
tölur þannig (tölur Rvikur í svigum):
Brjóst fengu 87,3% (95,6%).
Pela fengu 9,9% (3,6%).
Brjóst og pela fengu 2,8% (0,8%).
Rvík stendur sig þannig betur í þessu efni en aðrir landshlutar og
má þó ástandið yfirleitt heita gott, ef upplýsingum yfirsetukvennanna
er treystandi. Vafalaust segja þær rétt til um það, að börnin eru lögð á
hrjóst og sennilega á brjósti þegar þær skilja við konurnar. En hversu
lengi? Ein ljósmóðirin í Reykjavík, Jóhanna Friðriksdóttir, greinir
tímalengdina nákvæmlega um sínar konur, og er hann að jafnaði ekki
rneira en 3 rnánuðir.
Verst ástand að þessu leyti virðist vera í eftirfarandi héruðum:
Ólafsvíkur ............ Af 39 konum lögðu aðeins 27 á hrjóst.
Reykhóla................... 17 — — 9 —
Blönduós ................. —38 — — 30
Siglufj................ — 54 — — — 36
Þistilfj...................—15 — — 11
Berufj................ — 5 — — — 3
Keflavíkur ........-••• — 28 — — — 15 -