Fréttablaðið - 20.02.2021, Page 18
SVO ER ÉG AÐ VONAST
TIL AÐ ÞEIR FINNI JARÐ-
SKJÁLFTA SEM ERU TÍÐIR
Á ÞESSU SVÆÐI.
ÉG VIL NOTA TÆKIFÆRIÐ
OG ÞAKKA KENNURUM OG
LEIKSKÓLAKENNURUM
FYRIR SÉRSTAKAN HETJU-
SKAP Á ÞESSU ÁRI.
Risaeðluleit í Viðey
Rithöfundurinn Þóra Karítas Árna-
dóttir ætlar að vera í fjölskyldufríi í
bænum um helgina en stefnan er þó
alls ekki að taka því rólega.
Hvað á að gera um helgina?
„Við verðum í bænum um helgina
og mér sýnist á öllu að við séum ekk-
ert að fara að taka því mjög rólega í
þetta sinn en þetta verður svona
menningarhlaðin helgi í bland við
barnafmæli og barnaleikhús.
Á laugardaginn erum við að fara
að sjá Stúlkuna sem stöðvaði stríðið
með leikhópnum 10 fingur og Helgu
Arnalds í fararbroddi og svo er ég
svo heppin að fá smá djamm, en ég
fer með góðum hópi vinkvenna á
myndina Ómöguleg ást á frönsku
kvikmyndahátíðinni og út að
borða.
Svo langaði drengina mína að
heimsækja risaeðlueyju svo við
vorum að hugsa um að nota frídag-
ana eftir helgi í að sigla út í Viðey og
sjá hvort rekumst á einhverjar eðlur
þar.“
Hvað er það skemmtilegasta sem
þið gerið með börnunum?
„Að ferðast og fara í leikhús og
bíó. Heima við er það legó, leir, litir
og kósýkvöld. Við látum okkur
dreyma um Lególand einn daginn,
vonandi fyrir fermingaraldur þegar
allir hafa fengið bóluefni.“
Þóra segir fjölskylduferð í brúð-
kaup í Gotlandi standa upp úr í
minningabankanum.
„Gotland er barnaparadís og
draumaeyja þar sem Lína lang-
sokkur býr. Eyjan hefur að geyma
strönd sem er í uppáhaldi, rauð
jarðarber sem maður tínir sjálfur
upp í munninn og fleira ævintýra-
legt sem situr vel og lengi í minn-
ingabanka barna.“
Eru helgarnar yfirleitt vel plan-
aðar?
„Alls ekki en ég hef þó verið í
átaki og hef undanfarið reynt að
skipuleggja eitthvað skemmtilegt
um hverja helgi til að hafa einhverja
stefnu, því ég er frekar f læðandi
týpa í grunninn og hef undanfarið
áttað mig á mikilvægi skipulagn-
ingar þegar börn eru annars vegar.
Við erum svolítið að vinna með
rennibrautasundstaði og þá stað-
reynd að þeir yngstu njóta þess að
sjá sömu leiksýningar og bíósýn-
ingar í augnablikinu.“
Þóra segir fjölskylduna fagna því
að leikhús hafi opnað á ný og bræð-
urnir hafi séð Karíus og Baktus um
síðustu helgi.
„Við förum líka reglulega á söfn
og kaffihús. Við búum í miðbænum
svo einföld verkefni eins og að labba
niður í bæ og kaupa Smartiesköku
reynist oft ágætis uppskrift að
flæðandi degi með yngri deildinni
og svo heimsækjum við gjarnan
Kjarvalsstaði.
Annars er veturinn líka svo-
lítið fjölskylduvænn, sérstaklega
snjórinn og þá er stuð að komast
út á snjósleða en á stefnuskránni er
að prufa Bláfjöll hið fyrsta svo þeir
yngri verði skíðafærir,“ segir Þóra
sem treystir á að sá elsti taki að sér
kennslu.
Hvernig hefur heimsfaraldur lagst
í mannskapinn?
„Ég held við höfum ekki breytt
miklu fyrir utan að hitta færri og
sækja ekki jógastöðvar og sund.
Svo var til dæmis ekki í boði að leika
við vini í götunni sem var svolítið
skrýtið að útskýra fyrir fimm ára,
en magnað hvað börn skilja allt vel
þegar við þau er rætt.
Þar sem við Siggi maðurinn minn
erum bæði sjálfstætt starfandi
skiptum við þá deginum bróðurlega
á milli okkar heima og að heiman.
En það er eins og allir viti að það er
mun auðveldara að vera í vinnunni
en að halda uppi leikskólapró-
grammi heima hjá sér og ég vil nota
tækifærið og þakka kennurum og
leikskólakennurum fyrir sérstakan
hetjuskap á þessu ári.
Ég tek hatt minn ofan fyrir kenn-
ara- og heilbrigðisstéttinni okkar og
hef verið þakklát fyrir að skólastarf
hefur haldist að mestu leyti óskert.
Mér finnst klárlega að þessar stéttir
sem halda uppi samfélaginu okkar
mættu fá bestu laun sem í boði eru,
ekki síst á þessum álagstímum á
þeirra starfsvettvangi.
Hvað á
að gera í
vetrarfríinu?
Fram undan er vetrarfrí í mörgum skólum
og þó stór hluti þjóðarinnar leggi land undir
fót er ýmislegt hægt að sýsla í nágrenni höf-
uðborgarinnar. Við hleruðum tvo foreldra
um hvað eigi að gera með krökkunum.
Sigurður ætlar að fara með Hauk
Helga 10 ára og Friðrik Bjarka 7 ára í
Krýsuvík . FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Þóra Karítas er með skemmtileg plön um helgina og í vetrarfríinu ásamt
sonum sínum; Flóka 16 ára, Árna 5 ára og Degi sem er nýorðinn þriggja ára.
Kirkjuskoðun í Krýsuvík
Sigurður Helgi Pálmason, annar
stjórnenda hinna vinsælu þátta
Fyrir alla muni sem sýndir eru á
RÚV, ætlar að nota helgina í að sýna
sonunum æskuslóðir.
Hvað á að gera um helgina?
Við feðgarnir ætlum að fara í
Krýsuvík um helgina ef veður leyfir
og búa til minningar. Foreldrar
mínir voru með bústað þarna þegar
ég var ungur og ég þekki vel til Kleif-
arvatns og svæðisins þar í kring.
Planið er að kíkja í Seltún, þar er
hægt að skoða gufu- og leirhveri á
góðum göngupöllum. Svo er ég að
vonast til að þeir finni jarðskjálfta
sem eru tíðir á þessu svæði. Ég ætla
svo að sýna þeim Grænavatn og
Krýsuvíkurkirkju. Við endum svo
daginn þar sem bústaður foreldra
minna var og fáum okkur heitt
súkkulaði og smá bakkelsi með.
Ég er einhvern veginn alltaf að
afrita og líma það sem ég upplifði
með mínu fólki yfir á strákana
mína, í þeirri von um að þeir eignist
sömu góðu minningar og ég á.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þið gerið saman?
„Það eru í raun og veru þessi
ferðalög okkar. En hvort drengj-
unum finnist þau eins skemmtileg
er eitthvað sem þeir verða að svara,“
segir hann í léttum tón og bætir svo
við; „Jú, þeim finnst æði að fara með
pabba að skoða kirkju og hlusta á
hvernig hún var byggð frá grunni
eftir að sú gamla brann.
En til þess að þeir hafi gaman af
þessu með mér þá verð ég að taka
þátt í því sem þeim þykir skemmti-
legt – ég hef haft það fyrir venju að
segja eins oft og ég mögulega get já
við þá þegar þeir koma með hug-
myndir.
Til dæmis síðasta sumar langaði
þá að læra á hjólabretti, við sáum
að Hjólabrettaskóli Reykjavíkur
var með fjölskyldunámskeið sem
við skelltum okkur á. Það tók þá
ekki langan tíma að ná tökum á
brettunum og þeir voru f ljótlega
byrjaðir að kenna gamla – sem gerir
þetta allt svo skemmtilegt.“
Eru helgarnar yfirleitt vel plan-
aðar?
„Það má segja að það eina sem er
alltaf á planinu hjá okkur á sunnu-
dögum séu pönnu kökur sem ég
hef bakað fyrir þá nánast frá fyrsta
degi. Þess utan þá erum við svolítið
að skella okkur með stuttum fyrir-
vara að skoða nærliggjandi svæði.
Það hentar okkur vel og oftar en
ekki leiðir það okkur í eitthvað allt
annað en við höfum lagt upp með
að gera.“
Hvernig hefur heimsfaraldur lagst
í mannskapinn?
„Síðustu mánuðir hafa auðvitað
haft áhrif en á margan hátt hafa þeir
verið frábærir. Sem betur fer þá eru
strákarnir mínir frekar slakir og eru
fljótir að aðlagast nýjum aðstæðum.
Það má kannski segja að eina sem
þeir hafa virkilega saknað er að
komast í sund.
Ég hef reynt að vera extra dugleg-
ur að fara með þá á útivistarsvæði.
Heiðmörk er gott dæmi um svæði
þar sem er auðvelt að finna fullt af
skemmtilegum upplifunum. Þar eru
til dæmis hellar sem hægt er að fara
með vasaljós og skoða, Búrfell sem
er mjög auðvelt að ganga á og skoða
risagíg, og svo auðvitað að ganga
um skógræktarsvæðið með öllum
tilheyrandi ævintýrum.
Við höfum einnig verið duglegir
að heimsækja ömmu og afa sem eru
í nágrenni við Heiðmörk. Þegar ég
hugsa núna til baka, höfum við bara
verið nokkuð duglegir að gera akk-
úrat það sem ég er alltaf að vonast
til að búa til hjá þeim – minningar
með pabba og fjölskyldunni þeirra.
Fram undan eru vetrarfrí í mörgum skólum og tilvalið að nýta tímann til samveru með sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN