Fréttablaðið - 20.02.2021, Page 24

Fréttablaðið - 20.02.2021, Page 24
Svartur sandur nefnist verk-efni sem Einar Magnús Magnússon vinnur að. Það eru sjónvarpsþættir sem fjalla um ótrúlegar mann-raunir þýskra sjómanna sem strönduðu skipi sínu, Friedrich Albert, á Skeiðarársandi í janúar 1903. Eftir tvísýna baráttu um borð í strönduðu skipinu komust þeir í land holdvotir og ráfuðu um sand- inn í illviðri í ellefu daga, kaldir og matarlitlir, áður en þeir komust til byggða og voru þá sumir berfættir. Tveir dóu á leiðinni og einn hvarf. Nú fyrir skömmu, á sama árstíma, fór Einar Magnús á strandstaðinn, með nokkrum félögum. Þó veður væri hið fegursta, þeir í ullar- og hlífðarfötum, vel skóaðir og með ísbrodda, þá fengu þeir að kynn- ast kuldanum á Skeiðarársandi og lenda í nútímastrandi með því að festa bílana. „Okkur þóttu fjar- lægðirnar miklar á sandinum þótt við værum á f ljúgandi og akandi farartækjum. En allt mögl varð líkast aumu væli þegar aðstæður okkar voru bornar saman við þær sem skipbrotsmenn lentu í,“ segir Einar Magnús, sem komst á ævin- týralegan hátt yfir endurminn- ingar þýska skipstjórans um þrek- raunirnar 1903. „Það var bara eins og hinn týndi kaleikur,“ segir hann og hefur nú skrifað handrit að átta leiknum sjónvarpsþáttum, byggt meðal annars á þeim heimildum. „Skipið strandaði austan til á Skeiðarársandi og eftir villur á sandinum bar mennina til vesturs og stundum óðu þeir vötn í brjóst- hæð. Frá strandstað eru nú um 20 kílómetrar að Hvalsýki sem eru ósar Núpsvatna og f leiri áa. Á tíunda degi tókst mönnunum að komast þar yfir á lítilli skektu sem þeir höfðu útbúið úr braki skipsins og dregið með sér. Þeir hírðust yfir nótt í miklum kulda á sunnanverðum Brunasandi og fylgdu þaðan spor- um sem þeir fundu upp að Orustu- stöðum, þar sem fátæk hjón bjuggu ásamt dóttur sinni, skammt frá jaðri Skaftáreldahrauns. Þennan dag sem við vorum á strandstaðnum, voru akkúrat 118 ár liðin frá þeim degi,“ útskýrir Einar Magnús. Hlúð var að mönnunum af mik- illi kunnáttu og ósérhlífni, að sögn Einars Magnúsar. „Menn lögðu sig í lífshættu við að sækja lækni austur í Hornafjörð á hestum, um 200 kílómetra hvora leið, yfir stórfljót og sanda. Það eru margar hetjur í þessari sögu, þar á meðal íslensku hestarnir. Á læknisheimilinu á Breiðabólsstað á Síðu voru síðan framkvæmdar af limanir vegna hættulegra kalsára á fimm mönn- um við mjög frumstæðar aðstæður. Húsfreyjan hafði sótthreinsað allt heimilið áður og þegar skipbrots- menn komu til Þýskalands ætluðu læknar þar ekki að trúa hversu vel aðgerðirnar hefðu tekist.“ Handrit Einars Magnúsar er nú í yfirlestri. Þættirnir munu lúta lögmálum kvikmyndarinnar þó sannleikanum sé haldið til haga, að hans sögn. „Auk hrakninganna eru ákveðin átök sem aðalpersóna Svarts sands gengur í gegnum og eru ekki leiddar til lykta fyrr en í lok þáttanna í Þýskalandi.“ Einar Magnús segist vera að leggja upp í kynningu á handrits- drögunum og verkefninu með stuðningi góðra aðila. „Svo þarf fjármagn og framleiðendur. Þetta er stórt. Ég vil frekar sjá handritið ofan í skúffu hjá mér en að þessi stórbrotna og mikla saga sé sögð af vanefnum.“ ALLT MÖGL VARÐ LÍKAST AUMU VÆLI ÞEGAR AÐ- STÆÐUR OKKAR VORU BORNAR SAMAN VIÐ ÞÆR SEM SKIPBROTSMENN LENTU Í. Okkur þóttu fjarlægðirnar miklar Einar Magnús Magnússon vinnur að ritun handrits að sjónvarps- þáttum um hrakningar strandmanna á Skeiðarársandi í janúar árið 1903. Hann heimsótti nýlega söguslóðir með vöskum hópi. Leiðangursmenn 2021: Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, Magnús Leifur Sveinsson hljóðmaður, Einar Magnús Magnússon, kvikmyndagerðarmaður og handritshöfundur, Eyþór Eðvalds- son áhugamaður, Kristinn Kristinsson og Hörður Ágúst Harðarson leiðangursstjórar, Gísli Daníel Reynisson, eigandi stærstu farartækja leiðangursins og Haraldur Bjarnason tökustaðarstjóri. Leiðangursmenn lentu í nútímastrandi þegar þeir festu bílana en allt fór vel enda vanir menn á staðnum og allir sem einn vel búnir og með ísbrodda. Eins og sjá má er Skeiðarársandur nú ekki svartur heldur hvítur. Einar Magnús hefur unnið að verkefninu Svartur sandur um árabil en það var útgerðarfélagið Bergur-Huginn sem styrkti þá félaga til leiðangursins. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.