Fréttablaðið - 20.02.2021, Side 38
Skrifstofustjóri
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða til sína skrifstofustjóra tímabundið í eitt ár með möguleika á
ótímabundnu starfi í framhaldi. Skrifstofustjóri ber ábyrð á bókhaldi Reykhólahrepps, stofnanna og
fyrirtækja sveitarfélagsins. Um er að ræða fullt starf.
Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
• Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Reykhólahrepps
• Umsjón með bókhaldskerfinu Navision
• Bókun reikninga og innheimta.
• Afstemmingar og önnur úrvinnsla úr fjárhagsbókhaldi
• Launaútreikningur
• Álagning fasteignagjalda
• Þátttaka í áætlunargerð
• Innra eftirlit
• Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum
• Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings sveitarfélagsins og stofnana þess
• Önnur tilfallanda verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði viðskipta eða fjármála og/eða mikil reynsla af sambærilegum störfum
• Reynsla og þekking af bókhaldskerfinu Navision er kostur
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Rík þjónustulund og góðir samstarfshæfileikar
• Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Góð íslenskukunnátta
• Góð almenn tölvukunnátta
Matráður
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða til sína matráð í mötuneyti Reykhólahrepps. Starfið er laust
frá 1. apríl n.k. Mötuneytið er staðsett í Reykhólaskóla og í Barmahlíð. Um er að ræða 100% starf.
Reykhólahreppur vill verða heilsueflandi sveitarfélag sem leggur áherslu á holla næringu í þeim
stofnunum sem sveitarfélagið rekur. St
Starfssvið
• Ber ábyrgð á matseld, innkaupum, stjórnun og skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsum
mötuneytisins.
• Fer með mannaforráð í mötuneyti,
• Sér um innkaup og pantanir á mat og hreinlætisvörum.
• Frágangur og þrif auk annarra tilfallandi starfa.
• Aðstoða við gerð fjárhagsáætlunar fyrir mötuneytið.
Hæfniskröfur
• Þekking og meðvitund um næringagildi og hollustu í matargerð.
• Hreinlæti og snyrtimennska.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Lipurð og færni í samskiptum.
• Góð íslenskukunnátta
• Menntun á sviði matreiðslu og reynsla er kostur.
Umsjónarmaður íþróttamannvirkja
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða til sína umsjónarmann íþróttamannvirkja, frá og með 1. apríl
2021. Um er að ræða 100% starf. Reykhólahreppur vill verða heilsueflandi sveitarfélag sem leggur
áherslu á hreyfingu og félagslegt gildi samveru.
Starfssvið
• Umsjónarmaður Grettislaugar, íþróttahúss og íþróttavalla, ber ábyrgð á rekstri og daglegri
stjórnun þeirra og einnig starfsmanna. Umsjónarmaður gengur vaktir og leysir af.
• Aðstoðar við fjárhagsáætlunargerð, sér um uppsetningu vaktarplana og innkaup.
• Sér um bókanir og þrif.
• Sér um minniháttar viðhald.
• Samskipti við þjónustuþega.
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla við rekstur og stjórnun æskileg
• Iðnmenntun æskileg.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Lipurð og færni í samskiptum, jafnt við fullorðna sem börn.
• Góð íslenskukunnátta
• Kostur ef viðkomandi hefur lokið námskeiði sundlaugarvarða.
Reykhólar er sveitarfélag með um 240 íbúa og þar af býr um
helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum.
Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.
Í boði er flutningsstyrkur.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2021. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsókn skal send á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahrepp eða á netfangið skrifstofa@reykholahreppur.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir í síma
430-3200 eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands Íslenskra Sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR