Fréttablaðið - 20.02.2021, Qupperneq 58
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þetta er bragðmikill réttur og er bestur ef ást og gleði er sett í matargerðina. Kjúkl-
ingur er langbestur ef hann fær að
marinerast yfir nótt, svo það væri
sniðugast að byrja undirbúning
strax í dag. Tikka Masala er réttur
sem allir eru hrifnir af ef þeim líkar
indverskur matur á annað borð.
Hér er einfaldur Tikka Masala
kjúklingur en þarfnast tíma til
að verða að eðalrétti sem á að
lokka konurnar. Með svona mat
getur maður ferðast í huganum til
framandi landa.
Kjúklingur Tikka Masala
Til gaman má geta þess að Tikka
þýðir beinlaust kjöt og Masala er
kryddblanda gerð úr jógúrt. Þegar
kjötið er látið liggja í jógúrtkrydd-
blöndunni í sólarhring verður það
ótrúlega meyrt og bragðgott. Upp-
skriftin miðast við fjóra.
800 g kjúklingabringa
1 dl hrein jógúrt
2 hvítlauksrif
3 cm fersk engiferrót
Safi úr hálfri sítrónu
½ - 1 tsk. chiliduft eftir smekk
1 tsk. kóríanderduft
1 tsk. cuminduft
Sósa
1 laukur
2 hvítlauksrif
3 cm engiferrót
4 msk. olía
1 tsk. cumin
1 tsk. rifið múskat
1 tsk. túrmerik
1 tsk. chiliduft
1 msk. garam masala
1 tsk. tómatpuré
1 dós tómatar í bitum
1,5 dl rjómi
1 dl möndlur eða kasjúhnetur
½ búnt ferskt kóríander
Skerið kjúklingabringurnar
í bita. Setjið jógúrt í skál ásamt
pressuðum hvítlauk, smátt
skornum engifer, sítrónusafa,
chili, kóríander, cumin og salti.
Blandið vel saman og leggið bitana
í jógúrtið þannig að allir verði
þaktir marineríngunni. Látið
standa yfir nótt.
Skerið laukinn smátt. Rífið
engifer niður í rifjárni. Hitið olíu í
potti og steikið laukinn með hvít-
lauknum og engifer á miðlungs-
hita. Bætið þá við cumin, múskati,
túrmerik, chili, garam masala,
tómatpuré og tómötum. Látið
suðuna koma upp og látið malla í
nokkrar mínútur áður en rjóminn
er settur saman við.
Hitið olíu á pönnu. Steikið
kjúklingabitana þar til þeir fá á sig
fallegan lit. Þegar þeir eru steiktir
í gegn eru þeir settir út í sósuna
ásamt marineríngunni sem eftir
varð í skálinni. Setjið möndlur eða
hnetur saman við sem hafa verið
skornar smátt.
Látið allt malla í um það bil 10
mínútur. Bragðbætið með salti og
pipar eftir þörfum. Kóríander er
settur útí í lokin.
Berið réttinn fram með naan-
brauði, hrísgrjónum, raita-sósu og
mango chutney.
Naan-brauð
Það er vitaskuld best að bjóða upp
á heimagert naan-brauð. Hvernig
væri að koma frúnni á óvart?
1,5 dl mjólk
25 g ger
1 msk. sykur
500 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1,5 dl hrein jógúrt
4 msk. olía
50 g brætt smjör
Til að setja ofan á:
1 msk. sesamfræ
Kóríander
Pressaður hvítlaukur og smjör
Hitið mjólkina þar til hún verður
fingurvolg og setjið gerið út í.
Setjið sykur saman við og látið
blönduna standa þar til gerið fer að
bubbla.
Setjið í hrærivélarskál hveiti,
lyftiduft og salt og hrærið saman.
Bætið gerblöndunni saman við og
hnoðið allt saman í 10 mínútur.
Deigið á að vera frekar blautt en
það má bæta hveiti eða jógúrt við
til að fá það sem best að vinna
með.
Setjið plastfilmu og síðan viska-
stykki yfir skálina og látið standa
í klukkustund. Skiptið deiginu þá
í sex hluta og látið hefast aftur í 20
mínútur.
Hitið ofninn í 250 °C. Setjið
smávegis hveiti á borðið og fletjið
brauðin út. Stingið þau með gaffli
svo þau blási upp við bökun.
Penslið brauðið með bræddu
smjöri sem hvítlaukur hefur verið
settur saman við. Stráið smátt
skornu kóríander saman við.
Leggið á bökunarpappír á
bökunarplötu og bakið í nokkrar
mínútur, eða þangað til brauðið er
farið að taka lit og lyfta sér. Þetta er
hægt að gera á pitsustein eða úti-
grilli ef það er fyrir hendi.
Gott ráð er að pensla brauðið
aftur eftir bökun á meðan það
er heitt. Berið fram með Tikka
Masala.
Raita-sósa
Þessa sósu er mjög einfalt að laga
en hún passar vel með sterkum
mat.
3 dl hrein jógúrt
1 agúrka
2 vorlaukar
1 grænn chili-pipar
1 tsk. salt
Rífið agúrku með góðu rifjárni.
Dreifið salti yfir og látið standa
í fimm mínútur. Setjið gúrkuna
í hreinan klút og vindið þann-
ig að vökvinn renni af. Hreinsið
vorlaukinn og skerið smátt. Fræ-
hreinsið chili og skerið mjög smátt.
Þeir sem vilja geta sleppt chili.
Blandið öllu saman og látið standa
í kæliskáp í minnst 30 mínútur.
Framandi réttur á konudegi
Konudagur er á morgun. Þá má gera sér dagamun í matargerðinni heima. Aðrir fara út að borða.
Hér er indverskur kjúklingaréttur sem upplagt er fyrir herramenn að bjóða upp á annað kvöld.
Tikka Masala með kjúklingi er afar vinsæll réttur um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Heimagert naan-brauð er nauðsynlegt með Tikka Masala.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
MYNDLIST Á ÍSLANDI
Sérblaðið Myndlist á Íslandi kemur út fimmtudaginn 25. febrúar.
Þarna viljum við gefa stórum og litlum söfnum og galleríum tækifæri til að
koma á framfæri því sem verður í gangi á nýja árinu! Í þessu blaði bjóðum við
upp á hefðbundnar auglýsingar og kynningar sem unnar eru í samráði við
blaðamenn og ljósmyndara Fréttablaðins.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R