Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2021, Qupperneq 75

Fréttablaðið - 20.02.2021, Qupperneq 75
Aðalfundur í Arion banka hf., kt. 581008-0150, verður haldinn með rafrænum hætti þann 16. mars 2021, kl. 16.00. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku. Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans á síðasta fjárhagsári 2. Staðfesting ársreiknings bankans fyrir síðastliðið starfsár 3. Ákvörðun um greiðslu arðs 4. Kosning stjórnar bankans 5. Kosning endurskoðunarfélags 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna bankans og laun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar fyrir störf þeirra 7. Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar og samsvarandi breyting á samþykktum varðandi skipan tilnefningarnefndar Stjórn bankans leggur til að breyttar starfsreglur tilnefningarnefndar bankans verði samþykktar, en þær fela í sér breytingu á skipan tilnefningarnefndar. Stjórnin leggur enn fremur til að verði hinar breyttu starfsreglur samþykktar verði gerð breyting á ákvæði 13.2 í samþykktum bankans, þannig að í stað tilnefningar tveggja meðlima tilnefningarnefndar verði samþykki tillögu um starfsreglur tilnefningarnefndar á dagskrá aðalfundar bankans. Verði tillagan samþykkt, koma liðir 8 og 9 ekki til afgreiðslu á fundinum. 8. Ákvörðun um þóknun til nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans 9. Kosning tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans 10. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu bankans 11. Tillaga um heimild stjórnar til að samþykkja breytingu á kaupréttaráætlun 12. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum Tillagan felur í sér að hlutafé bankans verði lækkað um kr. 30.000.000 að nafnvirði, úr kr. 1.730.000.000 í kr. 1.700.000.000 að nafnvirði til jöfnunar á eigin hlutum bankans. Verði tillagan samþykkt felur hún í sér breytingu á ákvæði 4.1 samþykkta bankans sem skal eftirleiðis hljóða þannig: „Hlutafé bankans er kr. 1.700.000.000 – einn milljarður sjöhundruð milljónir króna.“ 13. Tillaga um endurnýjun á heimild bankans til kaupa á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum Verði tillagan samþykkt felur hún í sér að tímabundin heimild til að kaupa allt að 10% af hlutafé bankans í þeim tilgangi að setja upp endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum verði endurnýjuð. Heimildin mun gilda fram að aðalfundi bankans árið 2022 en hafi hann ekki farið fram 15. september 2022 rennur hún út í síðasta lagi þann dag. Framkvæmd endurkaupa er háð fyrirframsamþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. 14. Heimild til útgáfu breytanlegra skuldabréfa viðbótar eigin fjár þáttar 1 og samsvarandi breyting á samþykktum Tilefni tillögunnar er heimild sem hluthafafundur veitti stjórn bankans á aðalfundi 2019, til útgáfu breytanlegra skuldabréfa sem uppfylla kröfur sem viðbótar eigin fjár þáttur 1 samkvæmt 84. gr. b. laga nr. 161/2002. Heimildin var í gildi fram að aðalfundi árið 2020. Annars vegar er lagt til að með breyttu orðalagi gr. 4.8 endurspegli ákvæðið þá staðreynd að hin umræddu breytanlegu skuldabréf hafa verið gefin út. Hins vegar er lagt til að með nýju ákvæði 4.9 verði stjórn veitt heimild, með þeim skilyrðum sem þar koma fram, að gefa út breytanleg skuldabréf að hámarki fjárhæð kr. 20.000.000.000 eða samsvarandi fjárhæð í öðrum gjaldmiðlum og að sú heimild gildi fram að aðalfundi ársins 2025. 15. Tillaga um breytingu á samþykktum Fyrir aðalfundi liggur fyrir tillaga um að samþykktar verði nýjar samþykktir fyrir félagið. Hinar nýju samþykktir fela einkum í sér einföldun á gildandi samþykktum, breytta uppsetningu og innbyrðis samræmingu. Þá felur tillagan í sér að ákvæði gildandi samþykkta sem beinlínis koma fram í lögum verði felld brott, einkum í þeim tilgangi að takmarka hættu á misræmi milli samþykktanna annars vegar og ákvæða laga hins vegar, sem og að koma í veg fyrir að smávægilegar lagabreytingar kalli á frekari breytingar á samþykktum. Hinar fyrirhuguðu breytingar fela aðeins að litlu leyti í sér efnislegar breytingar á ákvæðum gildandi samþykkta félagsins en á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm er að finna yfirlit yfir ákvæði hinna nýju samþykkta og þær breytingar sem lagðar eru til auk þess sem þar er að finna hreint eintak af nýju samþykktunum (einnig að teknu tilliti til þeirra breytinga á samþykktum sem lagðar eru til í lið 5 (vegna dagskrárliðar 7) og liðum 9-11 (vegna dagaskrárliða 12-14)). 16. Önnur mál Reykjavík, 19. febrúar 2021 —— Stjórn Arion banka hf.arionbanki.is Boðun til aðalfundar Arion banka hf. Aðrar upplýsingar Endanleg dagskrá, tillögur, ársreikningur fyrir árið 2020 og önnur skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn er að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm og eru aðgengileg í höfuðstöðvum bankans. Sé misræmi milli fundargagna á ensku annars vegar og íslensku hins vegar, gildir íslenska útgáfan. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, skulu senda skriflega eða rafræna beiðni um slíkt í síðasta lagi tíu sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 þann 6. mars 2021. Kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Senda skal slíka kröfu til félagsstjórnar á netfangið hluthafar@arionbanki.is. Á aðalfundinum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf bankans njóta ekki atkvæðisréttar. Aðalfundurinn fer eingöngu fram með rafrænum hætti, með Lumi AGM veflausninni. Athugið að nauðsynlegt er að hafa stöðuga nettengingu. Hluthafar geta nálgast AGM veflausnina í gegnum vafra í tölvu eða snjalltæki. Mælt er með því að notast við tölvu og að nýjasta útgáfa af vafra sé uppsett (Chrome, Safari, Edge eða Firefox). Hluthöfum mun gefast kostur á því að spyrja spurninga sem kunna að vakna á fundinum, með skriflegum hætti í gegnum Lumi AGM veflausnina. Hluthöfum er heimilt að láta umboðsmann sækja aðalfundinn og fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Hluthafar einir bera ábyrgð á því hvaða einstaklingum/aðilum þeir veita umboð eða afhenda aðgangsupplýsingar. Á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm, má finna sniðmát af umboði sem hluthöfum er bent á að nýta sér. Umboð gilda einungis til fundarsetu á einum hluthafafundi nema annað sé skýrlega tekið fram í efni umboðsins, en getur þó aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess. Hluthafar sem hyggjast sækja aðalfundinn, eða eftir atvikum greiða atkvæði fyrir fundinn, þurfa að óska eftir aðgangi fyrirfram á vefsíðunni www.smartagm.com. Hluthöfum, sem jafnframt eru lögaðilar eða hyggjast láta umboðsmann sækja aðalfundinn, er bent á að tryggja að sá aðili sem sækir um aðgang hafi til þess heimild. Nánari upplýsingar um hvernig hluthafar geta nálgast aðgangsupplýsingar, framkvæmd rafrænnar atkvæðagreiðslu með Lumi AGM, reglur um rafræna atkvæðagreiðslu og aðrar upplýsingar sem geta átt við er að finna á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm. Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar, skulu hluthafar óska eftir aðgangi á vefsíðunni www.smartagm.com eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. eigi síðar en kl. 16.00 þann 11. mars 2021 og fyrir sama frest leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða framlögð skjöl sem þeir óska svara við á fundinum á netfangið hluthafar@arionbanki.is. Tilkynning til SDR heimildarskírteina Swedish Depository Receipts (SDR) heimildarskírteinishöfum, sem hyggjast sækja fundinn með rafrænum hætti eða greiða þar atkvæði samkvæmt umboði, skulu vera skráðir í skrá Euroclear Sweden AB („Euroclear“) fyrir kl. 17.00 (CET) þann 11. mars 2021 og framkvæma annað af eftirtöldu: I. Tilkynna Skandinaviska Enskilda Banken AB („SEB“) um þátttöku á fundinum með rafrænum hætti í síðasta lagi 11. mars 2021 þar um, eða II. Senda frumrit umboðs til SEB en það þarf að hafa borist SEB eigi síðar en 11. mars 2021. Form af umboðum og tilkynningu verða aðgengileg á heimasíðu bankans www.arionbanki.is/gm. Til að taka af allan vafa er athygli vakin á því að þeir SDR heimildarskírteinishafar sem hyggjast fá aðgangsupplýsingar til að taka þátt og kjósa rafrænt á fundinum sækja ekki um aðgang í gegnum vefsíðuna www.smartagm.com, heldur með tilkynningu til SEB sbr. I. hér að ofan. Frá og með lokun markaða 11. mars 2021 til og með 18. mars 2021 verður óheimilt að yfirfæra SDR heimildarskírteini í eða úr hlutum í Arion banka hf. Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.