Fréttablaðið - 20.02.2021, Page 83
Hekla er óhrædd
við að prófa sig
áfram með augn
förðun og er oft
með maskara í
skemmtilegum
litum.
„Ég fæ helst
innblástur á
Pinterest, þar sem
ég ligg helst yfir
óvenjulegri og
skapandi förðun
sem hönnuðir eru
að vinna með á
tískupöllunum.
Fyrir tveimur árum
gerðist ég svo fræg
og fríkuð að kaupa
mér bleikan mask
ara í Sephora. Við
tók löng og ítarleg
leit að merki sem
framleiðir litríka
maskara. Á end
anum fann ég hinn
litaglaða snyrti
vöruframleiðanda,
ColourPop, og náði
að fylla almenni
lega á lagerinn.“
1. Neo Nude A-Line Liquid Blush
Armani Beauty
Kinnalitir í vökvaformi eru ein
faldir í notkun og gefa aðeins
náttúrulegri áferð að mínu mati
en púðurkinnalitir. Þessi er í miklu
uppáhaldi.
2. Luminous Silk Perfect Glow
Flawless Oil-Free Foundation
Armani Beauty
Ég vil að farðinn minn sé hvorki
feitur né þekjandi og þessi upp
fyllir þau skilyrði með glæsibrag.
3. Skin Fetish: Highlighter
+ Balm Duo
PatMcGrath studios
Ég hafði lengi leitað að vöru sem
gefur hóflegan ljóma frekar en að
gera mig að mennskri diskókúlu.
Þetta er hún, látið orðið berast.
4. All Nighter Setting Spray
Urban Decay
Talandi um að líma farðann á and
litið, þetta er sennilega mikilvæg
asta varan í snyrtiveskinu mínu.
Notaðu þetta og þú munt aldrei
aftur þurfa að laga farðann til
þegar líður á daginn eða kvöldið,
sama hvað þú djöflast. Hann bara
haggast ekki.
5. 24-Hour Brow Setter
Benefit
Augabrúnir mínar og augnhár
eru litlaus frá náttúrunnar hendi,
sem olli mér töluverðum útlits
komplexum á yngri árum. Í dag
þykir hins vegar smart að vera
með aflitaðar augabrúnir svo ég
græði loksins á þessu. Þetta glæra
augabrúnagel nota ég til að halda
þeim í skefjum.
1
4
5
2
3
Hlaupum hraðar
- slítum fjötrana og sækjum tækifærin
Landsmönnum öllum er boðið á Iðnþing 2021 í beinni
útsendingu fimmtudaginn 4. mars kl. 13.00–14.30.
Það er mikilvægt að leggja línur og hvetja til þess að störfum verði fjölgað og verðmæti
aukin. Á Iðnþingi 2021 verður kastljósinu beint að þeim hindrunum sem ryðja þarf úr
vegi á næstu 12 mánuðum til að mögulegt verði að sækja þau tækifæri sem geta
skapað auknar gjaldeyristekjur og aukið nauðsynlega viðspyrnu í efnahagslífinu.
IÐNÞING 2021
Skráning á si.is
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 51L A U G A R D A G U R 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1