Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Síða 99
97
1964
Akureyrar. Hvað áfengissjúklingum viðvíkur, má segja, að erfitt sé
að koma með nákvæma tölu þeirra, á meðan engin sérstök stofnun er
til hér fyrir slíka sjúklinga. Deyfilyfjaneytendur eru svo fáir, að telja
þá á fingrum sér. Enginn morfínisti eða kókaínisti er hér.
E. Atvinnusjúkdómar.
Töflur XV, XVI.
Með atvinnusjúkdóma eru taldir 14 karlar, en engin kona.
Reykhóla. 5—6 hafa heymæði. Handadofi er áberandi hjá mjalta-
fólki, er oftast “Carpal-tunnel syndrom”.
Flateyrar. Af atvinnusjúkdómum mætti helzt telja alls konar my-
oses, sem greinilega má rekja til starfa viðkomandi aðila í flestum til-
fellum.
Grenivíkur. Til eru bændur, er illa þola heyryk.
Hafnarfj. Heyrnardeyfa hjá járnsmiðum, sem eru í stöðugum
hávaða, telst víst atvinnusjúkdómur. Ég hef ráðlagt nokkrum að nota
eyrnatappa, sem eru fáanlegir í apótekum, og veita þeir nokkra vernd
ffegn heyrnarskemmdum.
F. Fötlun.
Töflur XV, XVI.
1. Fávitar. 2. Daufdumbir. 3. Málhaltir. 4. Heyrnarlausir. 5. Blindir.
Fávitar eru taldir 494, daufdumbir 88, málhaltir 41 (vantar úr
Feykjavík), heyrnarlausir 166 og blindir 256. 1 Heyrnleysingjaskól-
anum í Reykjavík voru 24 nemendur skólaárið 1964—1965.
G. Ýmsir sjúkdómar.
Hér verður aðeins birt skýrsla um augnlækningaferðalög og augn-
sJúkdóma, er augnlæknar fundu á ferðum sínum.
Augnlækningaferðir.
Samkvæmt lögum nr. 12 25. janúar 1934 ferðuðust 4 augnlæknar um
jandið á vegum heilbrigðisstjórnarinnar: Kristján Sveinsson, augn-
^knir í Reykjavík, um Vesturland, Helgi Skúlason, augnlæknir á
Akureyri, um Norðurland, Bergsveinn Ólafsson, augnlæknir í Reykja-
um Austfirði og Ulfar Þórðarson, augnlæknir í Reykjavík, um
^uðurland.
13
L